Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Árneshreppur – Paradís á hjara veraldar

Árneshreppur – Paradís á hjara veraldar
Árnes­hreppur er fal­inn dem­antur. Ljósmynd: westfjords.is

Árnes­hreppur er eitt fámenn­asta og afskekktasta sveit­ar­fé­lag á Íslandi. Sveitin er útvörður Stranda og íbúar eru nú 43 tals­ins. Hreppa­mörk Árnes­hrepps eru í norðri við Geir­ólfs­gnúp sem einnig eru sýslu­mörk Stranda­sýslu og Norður-Ísa­fjarð­ar­sýslu. Að sunnan eru hreppa­mörkin við svo­kall­aðan Spena sem skilur á milli Árnes­hrepps og Kald­rana­nes­hrepps.  

Ein­stak­lingar hafa byggt upp ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, söfn og sýn­ingar og stofnað ný fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu, bæði hvað varðar afþr­ey­ingu og aukið gisti­rými. Sund­laugin í Kross­nesi gekk í gegnum miklar end­ur­bætur sem Ung­menna­fé­lagið Leifur heppni stóð fyrir, en ung­menna­fé­lagið byggðir laug­ina í Kross­nesi árið 1954 með hjálp sjálf­boða­liða.

Kross­neslaug er í næsta nágrenni við Atl­ants­hafið. Ljósmynd: westfjords.is

Árnes­hreppur nýtur þess að nátt­úran er stór­brotin og fögur. Hægt væri að nefna hvert fjallið á fætur öðru sem standa vörð um firði og víkur, kletta­borgir, frá­bæra strand­lengju með ýmist mal­ar­fjörum eða hömrum í sjó fram, ásamt fal­legum sand­fjörum í botnum fjarða. Þar sem dreif­býlið er mikið í sveit­ar­fé­lag­inu er nán­ast alls staðar hægt að finna kyrrð og ró og verða eitt með nátt­úr­inni. En samt sem áður hefur ferða­mönnum fjölgað með hverju ári og árið 2020 var þar engin und­an­tekn­ing þrátt fyrir að vera mjög sér­stakt og for­dæma­laust ár eins og sagt hefur verið ótal sinnum. Straumur Íslend­inga lagði leið sína í sveit­ina og var ótrú­lega gaman fyrir ferða­þjóna að taka nán­ast ein­göngu á móti löndum sínum sem virki­lega nutu þess að koma og skoða sig um. Margir voru að koma í fyrsta sinn og urðu alveg bit á sjálfum sér að vera ekki löngu búin að sækja Árnes­hrepp heim.  Þegar haustaði tók við kvik­mynda­æv­in­týri sem lengdi sum­ar­ver­tíð­ina fram eftir hausti og unnu heima­menn að því í góðu sam­starfi, hver á sínu sviði, að leysa öll mál sem leysa þurfti. Þar má meðal ann­ars nefna að bænd­urnir í sveit­inni kenndu leik­ur­unum að slá með orfi og ljá, snúa heyi með hrífum og að skera hrút sem auð­vitað var bara í plati. 

Árnes­hreppur stendur nú á þeim tíma­mótum að fyrir dyrum stendur að þrí­fösun og ljós­leið­ara­væð­ing ná hingað í sveit­ina. Þá skap­ast auknir mögu­leikar til nýbreytni í atvinnu­lífi sem ekki hefur verið hægt að sinna fram að þessu. Þar má nefna alls kyns tölvu­vinnslu, svör­un­ar­þjón­usta og mögu­leikar bænda til sölu beint frá býli myndi loks­ins ræt­ast með betri raf­orku.

Í Norð­ur­firði má finna gist­ingu, mat­vöru­verslun og kaffi­hús og auð­vitað fal­lega smá­báta­höfn. Ljósmynd: westfjords.is

Gistingu má finna á eft­ir­töldum stöðum; Hótel Djúpavík ehf, Ferða­þjón­ustan Urð­ar­tindur, Ferða­fé­lag Íslands, Bergistangi gisti­heim­ili og á næsta ári bæt­ist aftur við Finn­boga­staða­skóli sem er að mestu leiti í fríi þetta árið. 

Veit­ingar eru seldar á Hótel Djúpavík og Kaffi Norð­ur­firði. Tjald­svæði eru tvö bæði í Norð­ur­firði, hjá Urð­ar­t­indi og Ferða­fé­lag­inu. Norð­ur­fjarð­ar­höfn hefur mikið aðdrátt­ar­afl, þar er rekin blóm­leg smá­báta­höfn og fyr­ir­tæki í báts­ferðum fer þaðan norður á Horn­strandir. 

Rúsínan í pylsu­end­anum er svo Kross­neslaug sem stað­sett er í landi Kross­ness, sem er rétt fyrir norðan Norð­ur­fjörð.  Söfn og sýn­ingar eru á eft­ir­töldum stöðum; Í Síld­ar­verk­smiðj­unni í Djúpavík er Sögu­sýn­ing Djúpa­víkur sem er fasta­sýn­ing, þar er farið um með leið­sögn á hverju, degi kl. 10:00. Á sumrin er einnig sett upp árleg lista­sýn­ing undir heit­inu The Factory og stand þær yfir­leitt í 3 mán­uði, þar er ókeypis aðgangur. Minja- og hand­verks­húsið Kört í Tré­kyllis­vík er með fasta sýn­ingu á gömlum munum, að mestu leiti úr sveit­ar­fé­lag­inu og enn­fremur er selt þar gæða hand­verk.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur