Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjáðu árangur Súsönnu! – Sigrún Lilja Gyðja hvetur fólk til að setja sjálft sig í fyrsta sætið

Sjáðu árangur Súsönnu! – Sigrún Lilja Gyðja hvetur fólk til að setja sjálft sig í fyrsta sætið
Sigrún

 Sigrún Lilja Gyðja hvetur fólk til að setja sjálft sig í fyrsta sætið og fara inní haustið með því að stunda sjálfs­rækt.

„Það skemmti­leg­asta sem við gerum er að hjálpa fólki við að bæta heilsu og auka sjálfs­traustið.“ Segir Sigrún Lilja sem er konan á bak við lík­ams­með­ferð­ar­stof­una THE House of Beauty

Sigrún

Sigrún Lilja er hvað þekkt­ust fyrir að hafa ung að aldri stofnað íslenska hönn­un­ar­merkið Gyðju Collection og hannað fjöld­ann allan af vörum sem slógu í gegn hér­lendis og víða um heim á sínum tíma. Hún á og rekur lík­ams­með­ferð­ar­stof­una The House of Beauty, sem á stuttum tíma hefur orðið vin­sæll við­komu­staður Íslend­inga sem vilja bæta lík­am­legt form og heilsu.

„Ég opn­aði THE HOUSE OF BEAUTY fyrir rúmum þremur árum síðan. Við mað­ur­inn minn keyptum litla stofu sem inni­hélt nokkur tæki með lík­ams­með­ferðum sem ég nýtti reglu­lega sjálf með góðum árangri.“ segir Sigrún og heldur áfram „Ég vissi að þessar lík­ams­með­ferðir væru einnar sinnar teg­undar á land­inu og gríð­ar­lega öfl­ugar enda stund­aði ég þær sjálf og hafði gjör­sam­lega fallið fyrir þeim.“ Segir Sigrún sem fagn­aði þriggja ára afmæli stof­unnar í vor ásamt stækkun hennar.

Covid lok­anir nýttar til að stækka

„Fljót­lega eftir að við opn­uðum kom í ljós að hús­næðið var of lítið miðað við eft­ir­spurn, þrátt fyrir rúman opn­un­ar­tíma. Við erum með opið virka daga, frá 7 og 8 á morgn­ana og oft­ast til klukkan 22.00 eða 23.00 á kvöldin og einnig um helgar. Samt var fjög­urra vikna bið í með­ferðir hjá okkur. Því var ákveðið að stækka stof­una og við nýttum tím­ann í COVID-lok­unum til þess. Við höfum nán­ast þre­faldað stof­una ásamt því að bæta við öfl­ugu með­ferð­ar­úr­vali síðan í upp­hafi.“ segir Sigrún.

The House of Beauty er í Fákafeni 9 og lík­ams­með­ferð­ar­stofan er öll hin glæsi­leg­asta. Krist­als­ljós­krónur, speglaflísar og glam­úr­lúkk með klass­ísku ívafi skapa þægi­legt og afslappað and­rúms­loft. „Sköp­un­ar­gáfan fékk að njóta sín tölu­vert í þessu verk­efni. Ég lét sér­fram­leiða fyrir mig hús­gögn erlendis og einnig lét ég sér­fram­leiða speglaflísar sem prýða stóra veggi á göngum stof­unnar,“ segir Sigrún.

Árangur við­skipta­vina hefur þótt mik­ill og vakið eft­ir­tekt

„Í hvert skipti sem ný árang­urs­saga dettur inn þá fyllist maður gleði og þakk­læti. Þakklæti fyrir að geta boðið fólki upp á eitt­hvað sem raun­veru­lega hjálpar ein­stak­lingnum og gleði yfir að sjá ánægj­una sem skín úr and­liti við­kom­andi.

Árang­urs­sög­urnar okkar skipta örugg­lega hund­ruðum. Ein er t.d. af konu sem kláraði 10 vikna með­ferð­ar­pakka. Hún tók með­ferð­ar­pakk­ann í einum rykk en að vísu með Covid lok­un­ar­pásu í 6 vikur og náði gríð­ar­lega flottum árangri.
Hún tap­aði 70,5 cm í heild­ina og þar af 16,5 cm í mitt­inu. Að auki missti hún 15 kg sem er góður bónus, en mark­miðið okkar er aldrei ákveð­inn þyngd­armissir heldur sjá­an­legur árangur. Þess vegna bjóðum við öllum okkar við­skipta­vinum uppá „fyrir og eftir“ myndir til að sjá árang­ur­inn með berum augum,“ segir Sigrún Lilja

„Við þrýstum ekki á fólk að birta mynd­irnar af sér og fara margir í gegn með glæstan árangur sem aðeins þeir vita af. Það fylgir bara trún­að­inum og er algjör­lega eðli­legt miðað við það sem við sér­hæfum okkur í, sem eru lík­ams­með­ferðir. En svo er alltaf sumir sem eru til í að leyfa okkur að birta mynd­irnar og leyfa fólki að sjá hvað við erum að gera alla daga og okkur þykir mjög vænt um það,“ segir Sigrún.

Ein af nýj­ustu árang­urs­sög­unum er frá Súsönnu Ósk.

„Súsanna var svo ynd­is­leg að leyfa okkur að deila hennar árangri. Hún byrj­aði hjá okkur í með­ferðum í sept­em­ber sl. með það að mark­miði að bæta heils­una og dag­lega verki.

En hún kom til okkar sár­þjáð og gekk nærri með göngu­grind eins og hún segir frá sjálf í við­tal­inu.

Árang­ur­inn hennar er glæsi­legur en núna mætir hún upp­rétt með bros á vör til okkar og full af orku í tím­ana sína. Munurinn frá því að hún gekk fyrst inn haltr­andi og gat varla gengið upp­rétt er í raun ótrú­legur. Að auki hefur hún misst 91 cm í ferl­inu sem er góður bónus.“ Segir Sigrún og bætir við:

 „Sögur eins og Súsönnu eru ástæða þess að við erum alltaf til­búin að leggja hart að okkur við að aðstoða við­skipta­vini af fremsta megni til að ná hámarks­ár­angri. Slag­orðið okkar er: „Þinn árangur er okkar mark­mið.“ Það má með sönnu segja að við viljum að þeir sem komi til okkar nái árangri,“ segir hún.

Hér má sjá við­tal við Súsönnu segja frá sinni reynslu.

Fjölda fyrir og eftir mynda við­skipta­vina The House of Beauty má sjá á instagrammi stof­unnar hér.

Með­ferðin sem er að hjálpa gigt­ar­sjúk­lingum

„Ein af okkar vin­sæl­ustu með­ferðum er Lipom­assage Sil­kligth, ein öfl­ug­asta sog­æða­með­ferð sem hægt er að kom­ast í. Fyrir utan að hafa gríð­ar­lega öflug áhrif á mótun lík­ama, app­el­sínu­húð, bjúg­söfnun og stað­bundna fitu, þá er þetta með­ferðin sem margir kjósa að fara í til að halda niðri verkjum, t.d. vegna gigtar- eða stoð­kerf­is­vanda­mála. Við fáum marga gigt­ar­sjúk­linga til okkar viku­lega sem ná að halda niðri verkjum með því að koma í þessa með­ferð. Lipom­assage með­ferðin bætir blóð­flæði og dregur úr bólgum og bjúg. Það skemmti­leg­asta við starfið er að sjá fólk ná góðri heilsu á ný. Eftir að hafa sjálf misst heils­una og þurft að berj­ast fyrir því að ná henni aftur þá fyrst gerði ég mér grein fyrir því hversu dýr­mæt heilsan er. Ég brenn fyrir því að aðstoða fólk við að byggja upp heils­una og þessi með­ferð er þar gríð­ar­lega öfl­ugt tæki, enda skipta jákvæðar reynslu­sögur í dag örugg­lega hund­ruðum,“ segir Sigrún.

Lík­ams­með­ferðin sem Vicotia Secret mód­elin nýta er fáan­leg á Íslandi

Ein af með­ferðum The House of Beauty nefn­ist Velas­hape, en það er með­ferð sem er vel þekkt erlendis og þá kannski sér­stak­lega fyrir að vera lofuð af mörgum stór­stjörnum.
„Með­ferðin, sem þykir ein sú öfl­ug­asta sem völ er á til að vinna á stað­bund­inni fitu, þétta slappa húð og móta lík­amann er ein helsta með­ferðin sem Victoria Secret mód­elin nýta áður en þær fara á svið eða í mynda­tökur fyrir und­ir­fat­ar­is­ann til að ná húð­inni eins lýta­lausri og hægt er. Að auki hafa Khloé Kar­dashian og Kim Kar­dashian báðar lofað með­ferð­ina í hástert og sýnt frá því í þátt­unum Keeping up with the Kar­dashi­ans þegar þær fara í með­ferð­ina.“ segir Sigrún Lilja.

Settu þig í fyrsta sætið í haust og taktu þátt í haustá­skor­un­inni SJÁLFSRÆKT

„Það vin­sælasta hjá okkur eru svo­kall­aðir „makeover“ pakkar þar sem við­kom­andi mætir í valdar með­ferðir nokkrum sinnum í viku í nokkrar vikur með ákveðnu mark­miði í huga. T.d. erum við með Húð og styrk­ingar makeover, Húð og grenn­ingar makeover, Heilsu­efl­ingu og Tummy tuck sem dæmi,“ Segir Sigrún og bætir við „Núna í þessu Covid ástandi og öllu sem því  hefur fylgt þráir fólk að koma heils­unni og form­inu í lag og því fórum við í loftið með svo­kall­aða haustá­skorun sem ber nafnið SJÁLFSRÆKT.

Þessi áskorun er fyrir fólk sem er til­búið að setja sjálft sig í fyrsta sætið með sjálfs­rækt.
Það er hægt að velja um 7 mis­mun­andi haust „makeover“ pakka í áskor­un­inni sem eru á ein­stökum kjörum og alla pakk­ana er hægt að velja um lengd, 14 daga, 3 vikna, 5 vikna, 8 vikna eða 10 vikna pakka, fer allt eftir mark­miðum við­kom­andi.

Fyrir þá sem vita ekki hvaða með­ferðir eða pakkar henta þá bjóðum við upp á fría mæl­ingu og ráð­gjöf hjá með­ferð­ar­að­ila sem við bendum fólki á að sé besta skrefið til að byrja. Það er án allra skuld­bind­inga en þarna er hægt að fara yfir mark­mið við­kom­andi og ráð­leggja með hvaða með­ferðir henta til að ná því.“ Segir Sigrún og heldur áfram „Árangur er alltaf per­sónu­bund­inn og er sam­starfs­verk­efni með­ferð­ar­að­ila og við­skipta­vinar. Við gefum tækin og tólin, gefum góð ráð en svo er það á ábyrgð við­kom­andi að fara eftir leið­bein­ingum til að aðstoða við útkomu með­ferð­anna.“

Gera ekki kröfu um hreyf­ingu eða sér­stakt matar­æði

„Við gerum enga sér­staka kröfu um hreyf­ingu eða matar­æði enda eru þeir sem koma til okkar eins mis­jafnir og þeir eru margir. Sumir geta ein­fald­lega ekki hreyft sig og þurfa því aðstoð okkar til að byggja lík­amann upp. En við gefum góð ráð hvað varðar t.d. vatns­drykkju, gufu, góða nær­ingu og ýmis önnur trikk til að bæta við heils­una og hjálpa lík­am­anum til að hámarka árangur hvers og eins. Svo hvetjum við við­skipta­vini til dáða í ferl­inu og það hefur alltaf jákvæð áhrif líka,“ Segir Sigrún.

En eru með­ferðir The Hosue of Beauty fyrir alla?

„NEI er stutta svarið.  Þum­al­putta reglan er sú að ÞINN ÁRANGUR ER OKKAR MARKMIÐ og ef til­skil­inn árangur er ekki að nást fljót­lega eftir að pró­gramm hefst  þá er mik­il­vægt að láta með­ferð­ar­að­ila vita svo hægt sé að gera breyt­ingar á prógrammi við­kom­andi, því við erum eins mis­jöfn og við erum mörg og lík­ami okkar bregst mis­mun­andi við. Því er mik­il­vægt að grípa inn í og gera breyt­ingar á með­ferð­ar­prógrammi ef þörf krefur og þannig höfum við verið að ná góðum árangri.

Fókusinn hjá okkur er ekki að við­skipta­vinir missi ákveð­inn fjölda kílóa heldur aðstoðum við við­skipta­vini að vinna á stað­bundnum breyt­ingum á fitu­söfnun, slappri húð, bjúg, bólgum, slitum og ýmsu öðru. Við fók­usum frekar á að árangur sjá­ist með berum augum og á myndum heldur en að missa ákveð­inn fjölda kílóa. Þó er það oft jákvæð auka­verkun að missa þyngd í með­ferð­ar­prógrammi hjá okkur, en það er per­sónu­bundið. Með­ferð­irnar henta heldur ekki þeim sem eru ekki til­búnir til að leggja sitt af mörkum og axla ábyrgð á eigin árangri. Árangur bygg­ist á sam­starfi með­ferða, með­ferð­ar­að­ila og við­skipta­vinar.“ segir Sigrún Lilja.

Fyrir þá sem vilja bóka sér tíma í fría mæl­ingu og ráð­gjöf hjá The House of Beauty þá er það hægt á ein­faldan hátt HÉR.

Fyrir þá sem vilja kynna sér með­ferðir og Haustá­skorun The House of Beauty betur þá er það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur