Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórskemmtilegar sögugöngur Minjasafnsins á Akureyri

Stórskemmtilegar sögugöngur Minjasafnsins á Akureyri
Minja­safnið Akureyri. Mynd fengin af vef Minja­safns­ins.

Það er ekki ofsögum sagt að starf­semi Minja­safns­ins á Akureyri sé afar fjöl­breytt, enda stendur safnið fyrir fjöl­mörgum við­burðum auk sýn­ing­ar­halds og heim­sókn á safnið er eitt­hvað sem eng­inn sér eftir.

Markmið safns­ins er að safna; varð­veita og rann­saka menn­ing­ar­sögu­legar minjar; einkum þær sem eru lýsandi fyrir dag­legt líf og atvinnu­vegi í hinum gull­fal­lega Eyja­firði.

Leitast er í sýn­ingum safns­ins við að gefa góða inn­sýn í sögu og menn­ingu hér­aðs­ins.

Það er óhætt að segja að Minja­safnið sé annað og mun meira en sýn­ing­ar­salur enda er starf­semi þess mun fjöl­breytt­ari en mögu­lega virð­ist við fyrstu sýn.

Ber­sýni­legar eru á safn­inu glæsi­lega sýn­ingar og við­burðir, en starf­semin grund­vall­ast hins vegar á að safna; varð­veita; rann­saka og fræða.

Minja­safns­kirkjan fal­leg í vetr­ar­bún­ingi. Mynd fengin af vef Akur­eyrar.

Gerir góðar stundir enn ógleym­an­legri

Minja­safns­kirkjan er stærsti gripur Minja­safns­ins; hún er svart­bikuð timb­ur­kirkja sem stendur norðan við Minja­safns­garð­inn. Kirkjan var upp­haf­lega á Sval­barði, aust­an­megin Eyja­fjarðar, en hana reisti kirkju­smið­ur­inn Þor­steinn Dan­í­els­son frá Skipa­lóni árið 1846. Kirkjan svart­bik­aða er gott dæmi um íslenskar sveita­kirkjur sem reistar voru á Íslandi um mið­bik nítj­ándu aldar.

Það er gaman að segja frá því að hægt er að leigja forn­frægu og fal­legu Minja­safns­kirkj­una í hinum róm­aða bæ Akureyri, fyrir athafnir eða tón­leika, og fal­leg kirkjan, glæsi­legt umhverfi og gott and­rúms­loft gera athafnir og tón­leika enn ógleym­an­legri en ella.

Einn örfárra varð­veittra íslenskra skrúð­garða

Þá er svo sann­ar­lega vert að minn­ast á Minja­safns­garð­inn sem er klár­lega ein af perlum Minja­safns­ins og Akur­eyrar, og er safn­gripur í sjálfu sér. Garð­ur­inn er einn örfárra varð­veittra íslenskra skrúð­garða frá alda­mót­unum 1900. Sjón er sögu rík­ari.

Áhuga­sömum um þetta fal­lega og fróð­lega safn er bent á að opn­un­ar­tími þess er eft­ir­far­andi:
Opið frá 10-17 alla daga frá 1. júní til 1. októ­ber. Frá 2. októ­ber til 31. maí er opið dag­lega frá 13-16. Opnað er fyrir hópa utan þess tíma. Einnig er hægt að skoða safnið á virkum dögum á opn­un­ar­tíma skrif­stof­unnar frá kl. 8-16, sam­kvæmt  sam­komu­lagi og er sím­inn 462 4162.

Aðgengi

Minja­safnið er í 20 mín­útna göngu­fjar­lægð frá miðbæ Akur­eyrar og vilji fólk taka strætó þá eru það leiðir 5 og 6.

Gamli bær­inn í Laufási er opinn frá 9-17 alla daga frá 2. júní til 1. sept­em­ber. Frá 16. sept­em­ber er hann opinn eftir sam­komu­lagi. Hægt er að leigja Gamla prests­húsið í Laufási fyrir fundi og veislur. Nánari upp­lýs­ingar í síma: 895 3172.

Stór­skemmti­legar sögu­göngur

Og eins þetta sem bent hefur verið á sé ekki nóg þá býður Minja­safnið á Akureyri upp á göngu­ferðir með leið­sögn um Akureyri fyrir hópa ef óskað er. Í þessum skemmti­legu og fróð­legu göngu­ferðum safns­ins gefst tæki­færi til að fræð­ast um sögu Akur­eyrar á ein­stakan hátt.

Gengið er um elstu hverfi bæj­ar­ins; staldrað við merki­leg hús; göngu­fólk frætt um sögu hús­anna og íbúa fyrr á tíð.

Minja­safnið hóf þessar einkar athygl­is­verðu og vel skipu­lögðu sögu­göngur fyrir nokkrum árum og ríkir mikil ánægja með göng­urnar enda hefur þátt­taka í þeim farið vax­andi með hverju árinu, og ferð­irnar svo sann­ar­lega komnar til að vera.

Bæj­ar­búar hafa verið einkar dug­legir að mæta í aug­lýstar göngur og gaman er að geta þess að á und­an­förnum miss­erum hefur færst í vöxt að slíkar göngur séu pant­aðar af hópum sem leggja leið sína til Akur­eyrar.

Slíkar göngur – sem Minja­safnið býður upp á – hafa verið mjög vin­sælar sem hluti af dag­skrá árs­há­tíða eða ráð­stefna; boðið er upp á nokkrar sögu­göngur: Má þar nefna Inn­bæj­ar­göngu um gömlu Akureyri – á íslensku, en sögu­göngur fyrir hópa þarf að panta með um það bil tveggja vikna fyr­ir­vara og fer verð eftir fjölda þátt­tak­anda hverju sinni.

Drauga­slóð

Einnig stendur Minja­safnið fyrir fjöl­mörgum við­burðum og Drauga­slóð safns­ins á Akur­eyr­ar­vöku – í lok ágúst – hefur öðl­ast fastan sess í huga Akur­eyr­inga og er ákaf­lega vel sótt. Þá er einnig boðið upp á söngvökur, sem eru nokk­urs konar ferða­lag um söng­hefð Íslend­inga í tónum í Minja­safns­kirkj­unni; hægt er að panta allan árs­ins hring, en söngvaka kostar 45.000 krónur og við­burðir eru aug­lýstir sér­stak­lega.

Hér eru upp­lýs­ingar um aðgangs­eyri, dag­skort og árskort. 

Aðal­stræti 58
IS-600 Akureyri
Sími: 462 4162 / Fax: 461 2562
Netfang: [email protected]
Heima­síða: minja­safnid.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur