Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rafbílavinir rífast um Teslu: „Það er til nokkuð sem heitir siðferði“

Tesla er aftur mest seldi bíll­inn á Íslandi. Á sið­ferðið eða buddan að ráða?

Rafbílavinir rífast um Teslu: „Það er til nokkuð sem heitir siðferði“
Mótmæli Hópur mót­mælir aðkomu Elons Musk að nið­ur­skurði og valda­sam­þjöppun Trump-stjórn­ar­innar við Tesla-umboð í New York, 1. mars síð­ast­lið­inn Mynd: Shutterstock

Tesla er snúin aftur í fyrsta sætið sem mest seldi bíll­inn á Íslandi, þrátt fyrir hrun víða í Evrópu í sölu vegna stjórn­mála­þátt­töku Elons Musk, sem vill veg hægri öfga­flokka sem mestan.

Nýjar inn­flutn­ings­tölur fyrir bif­reiðar sýna að 92 Teslur voru fluttar til lands­ins í mars, sem skákar þannig Kiu í mán­uð­inum. Þar af eru 82 af und­ir­teg­und­inni Tesla Y, en ný útgáfa er nú komin í sölu.

Raf­bíla­eig­endur og -unn­endur í hópnum Rafbílar á Íslandi skipt­ast í tvær fylk­ingar vegna þró­un­ar­innar. „Mark­að­ur­inn var að bíða eftir nýja Y og nú er toppnum náð aftur,“ segir einn þeirra sem ræsti eld­fima umræðu um málið. „Einstaka fúl­menni kalla Tesluna þó nas­ista­bíla, en þeir verða bara að versla Kína bíla af heið­urs­mönn­unum þar niður frá.“

Íslendingar bregðast öðruvísi við

Ísland sker sig þannig að ein­hverju leyti frá öðrum Evr­ópu­ríkjum, þó sölu­tölur eigi eftir að sýna stöðu nýrrar Teslu Y. Í Þýska­landi sýnir ný könnun að 94% svar­enda myndi ekki kaupa Teslu. Sala á Teslu í Þýska­landi féll um 41% strax árið 2024 miðað við 2023, þrátt fyrir 27% aukn­ingu á raf­bíla­sölu á því ári. Sölu­fallið jókst í 70% fyrstu tvo mán­uði á árinu 2025.

Bjarni Jónsson, fyrr­ver­andi for­maður lífs­skoð­un­ar­fé­lags­ins Sið­menntar, gefur skýrt stefnu­ljós í umræðu raf­bí­launn­enda. „Það er áhuga­vert að lesa þessi ummæli ykkar. Það er til nokkuð sem heitir sið­ferði og að maður setur sér ákveðin við­mið til að lifa eftir. Valið stendur á milli þess að standa með sið­rænni nálgun í því hvernig maður beitir kaup­hegðun sinni sem er í línu við sið­ferði­leg eigin við­mið. Eða að gefa dauð­ann og djöful í allt slíkt og stilla kaup­hegðun sinni óháð því sem ger­ist í kringum mann í heim­inum. Maður hefur val og get t d nefnt Teslu sem dæmi. Á maður að styðja við auð­ug­asta mann ver­aldar sem er ein­ræðis sinni og nas­isti eða ekki. Við höfum valið!“ Við ummælin birt­ast tíu aðhlæj­endur en 93 við­lík­endur, þegar þetta er skrifað.

Sala frá árs­byrjun / Salan í marsMikil hröðun í sölu á Teslu mælist í mars. Tesla skýst á topp­inn með nýjan Y.

Rafskautuð umræða

Umræða raf­bíla­manna speglar víð­ari pólarís­er­ingu í sam­fé­lag­inu hér sem vest­an­hafs. „Elon Musk er að hjálpa við að skera niður í rík­is­út­gjöldum í BNA. Skoðið málið hlut­laust en ekki bara trúa RÚV sem er með mikla vinstri slag­síðu. Þetta nas­ista­bull er til­bún­ingur and­stæð­inga repúblik­ana,“ segir einn vel gír­aður Eyja­maður úr sjáv­ar­út­vegs­geir­anum.

Þá kemur einn þeirra vinstra megin frá en fer á miða­krein. „Ég skil það að vilja ekki selja Tesluna sína vegna þess að for­stjór­inn er ómenni. Ég er ánægður með Tesluna mína, og þó ég sé minna ánægður með hana vegna Elon Musk að þá er stað­reyndin sú að ég fæ hvergi jafn góðan bíl fyrir pen­ing­inn. En það sem ég skil ekki að fólk haldi áfram að verja hann og ég velti því fyrir mér hvaða grimmd­ar­verk þarf hann að fremja til þess að sumir hérna inni fara að gagn­rýna hann þrátt fyrir að eiga Teslu.“

Tesla Y er þjóðarbíllinn

Tesla kemur mun betur út í ár í sölu heldur en á sama tíma­bili í fyrra, þegar Toyota og Renault tróndu á toppnum. Árið þar áður, 2023, kom Tesla skammt á eftir Toyotu, með 373 inn­flutta bíla miðað við 459 Toyotur.

Þess ber að geta að af öllum und­ir­teg­undum bif­reiða er Tesla Y lang­mest seldi bíll­inn á Íslandi frá 1. jan­úar 2022. Hafa 4.876 ein­tök verið nýskráð, en aðeins 2.903 af næst­vin­sælasta bílnum, sem er túrista­tryllir­inn Dacia Duster. Nú kemur í ljós hvort raf­magnað and­rúms­loftið í kringum Elon Musk muni stöðva frek­ari fram­gang Teslu Y meðal Íslend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara