Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þingmaður gerir athugasemd við ráðningu Helga Seljan á RÚV

Vil­hjálmur Árnason, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, setur ráðn­inga­mál ein­stakra starfs­manna RÚV á dag­skrá stjórn­mál­anna.

Þingmaður gerir athugasemd við ráðningu Helga Seljan á RÚV
Vil­hjálmur Árnason Þing­mað­ur­inn og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, lætur sig varða ráðn­ingu á frétta­stofu RÚV. Mynd: Alþingi

Þing­mað­ur­inn Vil­hjálmur Árnason ræddi við Arnþrúði Karls­dóttur á Útvarpi Sögu í gær þar sem þau fóru meðal ann­ars yfir hið svo­kall­aða „byrl­un­ar­mál“ Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra. Þar skýtur þing­mað­ur­inn föstum skotum á Rík­is­út­varpið og Helga Seljan fjöl­miðla­mann, sem vann á sínum tíma að umfjöllun um mútu­mál Samherja í Namibíu.

Vil­hjálmur Árnason, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis sagði Arnþrúði frá því að Eva Hauks­dóttir, lög­maður Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra, hefði sent nefnd­inni erindi þar sem farið var fram á að skipuð yrði sjálf­stæð rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sem myndi rann­saka byrl­un­ar­málið svo­kall­aða. Það mál snýr að því að Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri Samherja, heldur því fram að fyrr­ver­andi eig­in­kona hans hafi eitrað fyrir honum og stolið síma hans á meðan hann lá í lífs­hættu inni á spít­ala. Hún hafi síðan komið sím­anum í hendur starfs­fólks Rík­is­út­varps­ins sem hafi opnað sím­ann og sent efni úr honum á Stundina og Kjarnann, sem síðan birti umfjöllun upp úr gögnum sím­ans.
Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra felldi niður rann­sókn máls­ins eftir hátt í þriggja ára rann­sókn. Rík­is­sak­sókn­ari stað­festi þá ákvörðun. Sex blaða­menn voru rann­sak­aðir af lög­regl­unni vegna máls­ins.

„Getur Helgi Seljan bara alltaf fengið vinnu hjá Rík­is­út­varp­inu þegar honum hentar?“
Vil­hjálmur Árnason, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis

Í við­tal­inu kemur Arn­þrúður inn á sparn­að­ar­til­lögur almenn­ings sem rík­is­stjórnin óskaði eftir og segir Rík­is­út­varpið hafa verið ofar­lega á blaði þar, og að fólk sé mjög gagn­rýnið á þá stofnun rík­is­ins, meðal ann­ars þegar kemur að hlut­leysi.

Vil­hjálmur tekur undir þau orð og bætir um betur og segir: „Já, við eigum einmitt að sinna slíku eft­ir­liti, að sjálf­sögðu. Eins og núna, þá virð­ast bara ein­hverjir blaða­menn geta gengið inn og út en þetta eru aug­lýstar stöður. Getur Helgi Seljan bara alltaf fengið vinnu hjá Rík­is­út­varp­inu þegar honum hentar? Það er örugg­lega fullt af öðrum blaða­mönnum sem vilja fá vinnu hjá Rík­is­út­varp­inu. Fengu þeir sama tæki­færi og hann? Við eigum að spyrja svona spurn­inga”.

Fram kom nýverið að fjöl­miðla­mað­ur­inn Helgi Seljan, sem var einn þeirra er fjall­aði meðal ann­ars um Sam­herj­a­málið svo­kall­aða árið 2019, er varð­aði greiðslur útgerð­ar­fé­lags­ins til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu, hefði hafið störf á Rík­is­út­varp­inu að nýju við frétta­tengda þætti í útvarpi og sjón­varpi. Helgi var þó ekki einn þeirra fjöl­miðla­manna sem voru til rann­sóknar hjá lög­reglu vegna umfjöll­unar um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja.

Vil­hjálmur Árnason hefur rætt mögu­leik­ann á því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ætti að koma á rann­sókn­ar­nefnd vegna ásak­ana Páls Stein­gríms­sonar um byrlun og síma­stuld, eftir kröfu lög­manns Páls þess efnis. Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur á móti kallað eftir rann­sókn á því að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra skyldi hafa haldið blaða­mönnum í stöðu sak­born­inga í tæp þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina