Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Össur dregur Jakob Bjarnar og Stefán E. sundur og saman í háði

„Hún hlýtur að hafa smollið einsog hrís á silki­mjúkan aft­ur­enda sið­fræð­ings­ins“

Össur dregur Jakob Bjarnar og Stefán E. sundur og saman í háði
Össur Skarp­héð­ins­son Össur kann að koma fyrir sig orði. Mynd: Facebook

Össur Skarp­héð­ins­son sakar tvo blaða­menn um elli­for­dóma í nýrri Facebook-færslu.

Líf­fræð­ing­ur­inn og fyrrum ráð­herr­ann Össur Skarp­héð­ins­son er ekki par hrif­inn af þeim Jakobi Bjarnari Grét­ars­syni, blaða­manni Vísis og Stefáni E. Ein­ars­syni, blaða­manni og hlað­varps­stjórn­anda á mbl.is og sakar þá um mikla elli­for­dóma.

„Elli­for­dómar frétta­manna

Tveir frétta­menn skera sig úr fyrir “blatant” elli­for­dóma. Annar er Jakob Bjarnar, fal­legur og góður piltur, sem ég eyddi einu sinni nótt með í Búða­hrauni.

Þegar ég set fram skoðun á frammi­stöðu stéttar hans varð­andi “leka­mál” úr for­sæt­is­ráðu­neyti sem honum er and­stæð, þá er mér “farið að förl­ast” (Lesist: Össur er orð­inn svo gam­all að hann er hættur að geta hugsað).“ Þannig hefst færsla Össurar en hann segir Jakob einnig setja þá Ögmund Jónasson, fyrr­ver­andi ráð­herra og Hauk Arn­þórs­son stjórn­sýslu­fræð­ing, undir sama hatt:

„Í sömu kategóríu setur hann líka Ögmund Jónasson og Hauk stjórn­sýslu­fræð­ing Arn­þórs­son. Jakobi Bjarnar líkar ekki við skoð­anir okkar og varar les­endur sína við því að taka mark á þeim því við séum orðnir “stút­ungskallar”.“

Þá segir Össur að Stefán E. sé á sama róli og upp­nefnir vinnu­stað hans sem „hrúta­kofa“.

„Á sama róli er sið­fræð­ingur “hrúta­kofa” Moggans, sem jafn­framt er póli­tískur rit­stjóri frétta á Mogganum. Sá drengur – fal­legur einsog Jakob Bjarnar - náði ekki upp í nef sér af bræði vegna þess að Ólafur Þ. Harð­ars­son, einn virt­asti álits­gjafi þjóð­ar­innar, hafði aðrar skoð­anir en “hrúta­kof­inn” á því hvaða áhrif upp­námið kringum barna­mála­ráð­herr­ann hefði á stöðu rík­is­stjórn­ar­innar. Stefán Einar í rök­þroti afgreiddi Ólaf sem “elli­æran”.“

Tekur Össur fram að þetta sé sér­stak­lega eft­ir­tekt­ar­vert í ljósi þess að rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, Davíð Oddsson, hafi sama sól­ar­hring verið búinn að skrifa „snagg­ara­lega ádrepu um leka­málin“ sem hann segir að hljóta hafa „smollið einsog hrís á silki­mjúkan aft­ur­enda sið­fræð­ings­ins“:

„Það er reyndar sér­stak­lega merki­legt í ljósi þess að Davíð Oddsson, rit­stjóri Moggans, var á sama sól­ar­hring búinn að skrifa snagg­ara­lega ádrepu um leka­málin. Hún hlýtur að hafa smollið einsog hrís á silki­mjúkan aft­ur­enda sið­fræð­ings­ins, sem að vísu kann enn að vera öróttur eftir rass­skell­ingu Kristrúnar Frosta­dóttur fyrir kosn­ingar. En vita­skuld þarf hinn póli­tíski elti­hrellir ekki að taka mark á Davíð Oddsyni, aðal­rit­stjóra.“

Ástæðan fyrir því að Stefán þurfi ekki að taka mark á yfir­manni sínum, segir Össur vera þá stað­reynd að Davíð sé löngur orð­inn elliær.

„Davíð er nefni­lega eldri en Ólafur Þ. Harð­ar­son. Þarafleið­andi er hann ómark­tækur enda skv. skil­grein­ingu sið­fræð­ings­ins fyrir löngu orð­inn “elliær.”

Punctum sali­ens er þessi: Mega menn ekki eld­ast og taka þátt í sam­fé­lag­inu án þess að vera atyrtir fyrir aldur sinn þrátt fyrir að vera miklu spræk­ari og frísk­ari í and­anum - örugg­lega lífs­glað­ari - en þessir tveir "korn­ungu" herra­menn?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum