Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fór með rusl til fréttastofu RÚV

„Hægt að skuttla inní andyrið eða skilja eftir fyrir utan. Það kemst til skila. Grófari úrgangur fer ennþá uppá Morg­un­blað,“ segir Birgir Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem Biggi Veira.

Fór með rusl til fréttastofu RÚV
Birgir Þór­ar­ins­son Betur þekktur sem Biggi Veira.

„Nennirðu kannski að skutla þessu niður á frétta­stofu. Þau eru að bíða eftir þessu. Þetta er óflokkað rusl,“ segir Biggi Veira við starfs­mann í mót­töku Rík­is­út­varps­ins, þar sem hann afhendir rusla­poka.

Biggi, eða Birgir Þór­ar­ins­son, er þekktur sem tón­list­ar­maður úr hljóm­sveit­inni GusGus, en hann er einnig vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann segir í Facebookfærslu við mynd­bandið að um sé að ræða heim­il­issorpið hans.

„Hægt að skuttla inní andyrið eða skilja eftir fyrir utan. Það kemst til skila. Grófari úrgangur fer ennþá uppá Morg­un­blað,“ segir hann.

Um er að ræða mót­mæli vegna umfjöll­unar RÚV um ást­ar­mál Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, sem sagði af sér emb­ætti barna- og mennta­mála­ráð­herra eftir til­kynn­ingu og yfir­vof­andi umfjöllun um að hún hefði átt í ást­ar­sam­bandi við 16 ára pilt þegar hún var 23 ára og eign­ast með honum barn fyrir 35 árum.

Logi Ein­ars­son, ráð­herra menn­ingar- og fjöl­miðla­mála, segir í sam­tali við mbl.is að athæfið sé óboð­legt. „Mér finnst þetta ekki boð­legt hátt­ar­lag,“ segir hann. „Fjöl­miðlar leika mik­il­vægt lýð­ræðis­hlut­verk og aðhalds­hlut­verk í sam­fé­lag­inu og við verðum að trúa að þeir vinni á hlut­læg­an hátt og það er ekki sæm­andi að stjórn­mála­fólk sé að ham­ast á þeim,“ bætir hann við.

Ekki hægt að taka fréttir RÚV alvarlega

Mannlíf hafði sam­band við Birgi til að spyrja hann nánar út í málið.

„Mér fannst ömur­leg­heitin, lág­kúran, ófag­mennskan og sjálfs­rétt­læg­ingin sam­fara frétta­flutn­ingi um Ásthildi Lóu yfir­gengi­leg og langt fyrir neðan þá virð­ingu sem þessi stofnun ætti að hafa. Sjáfs­rétt­læt­ing­inn þeirra, í eigin umræðu­upp­stiltu Silfri var sér­stak­lega ógeð­felld. Svona frétta­miðil er ekki hægt að taka alvar­lega. Léleg slúðu­frétta­mennska á ekki að líð­ast á þesss­ari mik­il­vægu stofnun og eft­ir­leik­ur­inn er alvar­legur áfell­is­dómur á stjórn og stefnu Rúv,“ sagði tón­list­ar­mað­ur­inn í skrif­legu svari til Mannlífs.

Er þessi afstaða þín gagn­vart RÚV ný eða hefur hún tekið breyt­ingum und­an­farið?

„Mér þykir mjög vænt um Rík­is­út­varpið. Víðsjá og Lestin eru stór­kost­legir þættir í Íslensku útvarpi og svo hefur Doddi á Rás 2 alltaf getað fært birtu í dimma daga. Ég hlusta næstum alltaf á morg­un­út­varp Rásar 2 og finnst gott að kom­ast á dýpi helstu mála þar. Stofn­unin hefur alvar­lega mik­il­vægt hlut­verk í Íslenskri menn­ingu og er því sorg­legt að sjá hversu frétta­flutn­ingur sjón­varps­ins er oft lélegur, hlut­drægur og finnst mér hann hafa versnað með nýja útvarps­stjór­anum. Speg­ill­inn á Rás 1 er samt oft frá­bær.“

Hvaða við­brögðum vonastu eftir frá RÚV?

„Afgreiðslu­daman brosti bara og sagð­ist koma þessu til skila, og ég býst því fast­lega við afsögnum í allri yfir­manna­keðj­unni sem teng­ist þessu máli, alveg uppí útvarps­sjó­r­ann sjálfann,“ sagði Birgir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum