Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Egill segir Íslendinga ekki geta sætt sig við hótanir gegn Grænlandi

„Þetta er komið út fyrir allan þjófa­bálk,“ segir hann.

Egill segir Íslendinga ekki geta sætt sig við hótanir gegn Grænlandi
Egill Helgason Vill að Íslend­ingar láti til sín taka.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í við­tali í gær að Banda­ríkin myndu „100%“ inn­lima Grænland og sagð­ist ekki úti­loka að beita her­valdi.

Agli Helga­syni fjöl­miðla­manni er nóg boðið og vill að Íslend­inga láti í sér heyra.

„Þetta er komið út fyrir allan þjófa­bálk - að hafa í sífelldum hót­unum við frið­sælt, vita mein­laust, vin­veitt lýð­ræð­is­ríki. Jafnvel að senda á það her­lið,“ segir Egill á Facebook.

„Við Íslend­ingar getum heldur ekki sætt okkur við þessa fram­komu gagn­vart vinum okkar á Græn­landi.“

Fjöl­margir taka undir með Agli.

Björn Valur Gíslason, fyrr­ver­andi þing­maður VG, gagn­rýnir stuðn­ings­leysi Norð­ur­land­anna.

„For­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna og póli­tísk for­ystu­sveit þeirra mætti vera mun skýr­ari í stuðn­ingi sínum við Græn­lend­inga og heim­sækja landið heim í þeim til­gangi að sýna þeim stuðn­ing,“ segir hann.

„Af hverju hefur íslenska rík­iss­stjórnin ekki heim­sótt Grænland og lýst yfir stuðn­ingi við það?“ spyr Elísabet Jök­uls­dóttir rit­höf­undur.

Donald Trump sagði í gær að honum væri sama hvaða skila­boð það myndi færa að taka yfir Grænland. „Ég hugsa ekki um það. Mér er í raun­inni alveg sama. Grænland er allt öðru­vísi mál. Þetta er alþjóð­legur friður. Alþjóð­legur friður og styrkur.“ Hann heldur því fram að inn­limun Græn­lands í Banda­ríkin sé nauð­syn­leg vegna skipa­sigl­inga Rússa og Kínverja í norð­ur­höfum.

Rík­is­stjórn Íslands hefur talað var­lega um aðfarir Banda­ríkj­anna að Græn­landi. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði þó í gær að heim­sókn JD Vance til Græn­lands væri „frekar dap­ur­leg“. „Það verður aldrei nógu oft sagt að það á virða full­veldi ríkja. Það á að virða alþjóða­lög,“ sagði hún við RÚV.

„Dan­mörk og Græn­land eru í nor­rænu fjöl­skyld­unni. Líkt og Ísland og önn­ur Norður­lönd er allt ríki Dan­merk­ur hluti af NATO, þar sem banda­menn vinna þétt sam­an við að styrkja ör­yggi á Norður­slóðum. Gagn­kvæm virð­ing og sam­vinna banda­manna er eina leiðin fram á við,“ skrif­aði hún á sam­fé­lags­miðl­inum X, sem er í eigu Elons Musk, stuðn­ings­manns og sam­starfs­manns Trumps.

Trump virð­ist ekki hafa tekið það til sín. Sama dag sagð­ist hann ekki úti­loka að beita her­valdi til að kom­ast yfir Grænland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum