Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samlegðaráhrif af sjónmengun þriggja vindmyllugarða við höfuðborgina

Allt að 210 metra háar vind­myllur eiga að rísa milli Heng­ils­ins og höf­uð­borg­ar­innar.

Samlegðaráhrif af sjónmengun þriggja vindmyllugarða við höfuðborgina
Sýni­leiki Svæðið sem dökk­blár litur þekur á kort­inu er þar sem allt að fimmtán vind­myllur sjást, en græn­leita svæðið markar sjón­ar­hóla með færri og allt niður í eina vind­myllu. Mynd: Orkuveitan

Allt að fimmtán nýjar 210 metra háar vind­myllur munu skreyta fjalla­sýn höf­uð­borg­ar­búa ef áform Orku­veit­unnar við Hengil verða að veru­leika. Nýr vind­orku­garður bíður nú umsagna. Hann er hluti af stefnu Orku­veit­unnar að vera „afl­vaki sjálf­bærrar fram­tíðar“ með fjöl­breyttri orku­öflun. Þetta kemur fram í mats­á­ætlun Orku­veit­unnar sem lögð var fram í dag.

Stað­setn­ing fyr­ir­hug­aðs vind­orku­garðs er við Dyraveg, sem liggur liggur milli Hengils og Grímanns­fells. Lega hans er sunnan við en að hluta sam­síða Nesja­valla­leið, áður en komið er að Dyra­fjöllum á leið vestan frá Suð­ur­lands­vegi.

Samlegðaráhrif ásýndar

Við mat á nýja vind­myllu­garð­inum við Dyraveg verður horft til þess að útsýni og kjör­svæði fugla verði hvort sem er fyrir áhrifum af öðrum vind­myllu­görðum sem eru fyr­ir­hug­aðir á svæð­inu. Það er vind­orku­garður Zephyr Iceland á Mos­fells­heiði, skammt norðan við, og annar vind­orku­garður Orku­veit­unnar við Lykla­fell, skammt vestan við. Á Lykla­felli

„Í umhverf­is­mati verður umfjöllun um sam­legð­ar­á­hrif m.t.t. ásýnd­ar­á­hrifa og áhrifa á fugla með vind­orku­garð­inum við Dyraveg og öðrum hugs­an­legum fram­kvæmdum á svæð­inu,“ segir í skýrsl­unni.

Fyr­ir­hugað er að taka ljós­myndir frá þekktum úti­vist­ar­svæðum til að leiða fram ásýnd­ar­á­hrifin, til dæmis frá Steini á Esjunni, Helga­felli við Hafn­ar­fjörð, Úlf­ars­felli, Þing­völlum, Blá­fjöllum og Vörðu­skegga í Hengl­inum.

Átta kílómetrum frá orkuverum

Ástæðan fyrir stað­ar­vali Orku­veit­unnar fyrir vind­orku­garð­inn er nálægð við Nesja­valla­virkjun og Hell­is­heið­ar­virkjun, sem eru í um 8 kíló­metra fjar­lægð. „... Ásamt því að vera í grennd við Nesja­valla­veg, háspennu­línur og hita­veitu­lögn­ina frá Nesja­völlum. Svæðið er því innan land­svæðis sem almennt telst raskað af manna­völdum, s.s. með sjá­an­legum mann­virkjum og í nálægð við dreifi­veitur og starfs­svæði Orku­veit­unnar.“

Vind­orku­garð­ur­inn mun að hluta liggja ofan á frið­lýstri forn­leif, svoköll­uðum Dyravegi sem liggur að Dyr­fjöllum frá Lykla­felli, þar sem annar vind­orku­garður Orku­veit­unnar er fyr­ir­hug­aður. Dyra­vegur er gömul þjóð­leið milli Árnes­sýslu og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá er nær­liggj­andi Heng­ils­svæðið á nátt­úru­minja­skrá.

Mosfellsheiði hýsi þrjá vindorkugarða

Árið 2021 sam­þykkti Skipu­lags­stofnun mats­á­ætlun fyrir vind­orku­garð á Mos­fells­heiði, sem átti að hafa til að bera allt að þrjá­tíu vind­myllur á 1.310 hekt­ara land­svæði, með allt að 200 mega­vött í afköstum. Fram­kvæmdin er á vegum Zephyr Iceland, dótt­ur­fé­lags sam­nefnds, norsks vind­orku­fé­lags.

Árið 2023 lagði Orku­veitan til vind­orku­ver á Lykla­felli við Orku­stofnun. Ákvörðun um hvort til virkj­unar komi verður tekin að afloknu lög­bundnu ferli í sam­ræmi við lög um ramma­á­ætlun. Verði vind­orku­kostur felldur í nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar tekur Orku­veitan næstu skref „með hlið­sjón af nið­ur­stöðum rann­sókna, í sam­ráði við nær­sam­fé­lagið og í sam­ræmi við eig­enda­stefnu félags­ins.“

Sömu­leiðis lagði Orku­veitan til vind­orku­garð á Lamba­felli, vestan við Þrengsla­veg.

Í lýs­ingu Ferða­fé­lags Íslands á Mos­fells­heiði, sem segja má að spanni svæði vind­orku­garð­anna þriggja, segir að svæðið ein­kenn­ist af grónum hraunum. „Víð­feðmir melar og móar, gras­hvammar og tjarnir setja einnig sterkan svip á nátt­úru heið­ar­innar.“

Þá er Heng­ill­inn eitt svips­mesta fjallið í fjalla­hring höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og skagar hæst upp í 805 metra hæð við Vörðu-Skegga, hugs­an­lega innan tíðar með vind­myllur í for­grunni.

Opið er fyrir athuga­semdir til 28. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina