Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aprílgöbb dagsins: Tréfættur kettlingur, hjónavígslur í Hagkaup og bugaður Teslu-eigandi

Hljópst þú apríl?

Aprílgöbb dagsins: Tréfættur kettlingur, hjónavígslur í Hagkaup og bugaður Teslu-eigandi
1. apríl Vík­ur­fréttir fóru alla leið í gabb­inu. Mynd: Víkurfréttir

Í dag, 1. apríl er eini dagur árs­ins þar sem það er almennt sam­þykkt að fólk, fyr­ir­tæki og fjöl­miðlar ljúgi að almenn­ingi.

Í gegnum árin hafa mis­góð göbb litið dags­ins ljós í fjöl­miðlum en sem dæmi má nefna Apr­ílgabb Vísis árið 1977, sem reyndar rætt­ist löngu síðar en þar var full­yrt að skák­meist­ar­inn Bobby Fischer ætl­aði sér að sækja um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Árið 1954 birti Tíminn frétt um fljúg­andi disk sem hefði lent á Mýr­dals­sandi en það reynd­ist Apr­ílgabb. Þá er einnig hægt að nefna gabbfrétt­ina þar sem sagt var að McDonalds-skyndi­bita­keðjan hefði farið í mál við Kópa­vogs­kirkju vegna lík­inda á kirkj­unni og McDonalds-merk­inu.

En hvaða Apr­íl­göbb má finna í fjöl­miðlum á Íslandi í dag? Hér má sjá nokkur dæmi.

Þó að almenna reglan með 1. apríl sé að láta fólk hlaupa apríl, það er að segja plata það í erind­is­leysu, helst yfir þrjá þrösk­ulda, þá fara ekki allir eftir þeirri reglu.

Nokkrir lands­byggð­ar­miðlar tóku höndum saman og komu með sama Apr­ílgabbið. Skessu­horn, Aust­ur­frétt og Vík­ur­fréttir ákváðu að nýta sam­fé­lags­miðl­ana í gabbi sínu en miðl­arnir birtu frétt um fyr­ir­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar um að setja 24% virð­is­auka­skatt á sam­fé­lags­miðla og streym­isveitur og er SÍS sagt hvetja fólk til þess að birta ákveðna mynd á sam­fé­lags­miðla sína til að mót­mæla.

Mót­mæla­myndinGott gabb?

Krónan er eitt af þeim fyr­ir­tækjum sem er með gabb í dag. Versl­unin nýtir sam­fé­lags­miðla til þess að gabba almenn­ing með til­kynn­ingu þar sem sagt er frá nýrri lúgu við versl­un­ina í Garðabæ nokkuð er lagt í gabbið þar sem ljós­mynd er sýnd sem á að sýna lúgu. Í til­kynn­ing­unni segir að þetta sé liður í að þjón­usta neyt­endur enn betur en áður en að tak­markið séu 10 vörur.

KrónugabbGóð hug­mynd, eða hvað?

Hagkaup er annað fyr­ir­tæki sem lætur fólk hlaupa apríl í dag en er í sam­starfi við Mbl.is. Versl­unin birti á Facebook plat­frétt frá mbl.is um ókeypis hjóna­vígslur sem hægt væri að fá í dag í Hag­kaupum.

Hag­kaups­gabbRóm­an­tískt.

Nútíminn nýtir sér áhuga land­ans á Donald Trump, Banda­ríkja­for­seta en þar segir að Trump hafi neyðst til að segja af sér eftir afhjúpun Rúss­lands­for­seta. Er Pútín sagður hafa sýnt gögn sem sýndu fram á að Trump hefði unnið fyrir Rúss­nesku leyni­þjón­ust­una síðan 2014. Eru les­endur síðan gabb­aðir til þess að ýta á hlekk sem á að sýna frá beinni útsend­ingu frá Hvíta hús­inu en þess í stað kemur hlekkur á Rick Astley syngja Never Gonna Give You Up.

NútímagabbEflaust yrðu margir sáttir ef þetta væri alvöru frétt.

Vísir birti gabbfrétt af Sveini Waage sem þótt­ist vera orð­inn þreyttur á áreit­inu sem hann hafi orðið fyrir sem eig­andi Teslu-bif­reiðar. Svo þreyttur væri hann að hann ætl­aði sér að selja bíl­inn fyrir slikk.

Sveinn WaageTesla er ekki vin­sælasta bíla­teg­undin í augna­blik­inu.

Vík­ur­fréttir var eins og áður segir í sam­kurli með Skessu­horni og Aust­ur­frétt í sínu Apr­ílgabbi en bætti þó um betur og birtu hvorki meira né minna en tvær aðrar plat­fréttir á vef sínum. Sú fyrri segir frá því að skrokkur Boeing 757 far­þega­þotu hafi verið fluttur með pramma að strönd­inni við Sandvík á Reykja­nesi. Ætlunin sé að koma vél­inni fyrir á svarta sand­inum, rétt ofan flæða­máls, sem hluti af verk­efni sem snýr að því að laða ferða­menn að svæð­inu. Við frétt­ina var birt ansi raun­veru­lega ljós­mynd af flug­véla­skrokknum í togi í sjónum.

Flug­vélin fluttAnsi vel gert!

Hin fréttin er öllu sér­kenni­legri en þar segir frá kett­lingi sem fædd­ist með tré­fót í Grinda­vík. Ímynd­un­ar­afl Vík­ur­frétta­manna er ansi gott en í frétt­inni er talað um sagn­fræð­ing sem segir frá sjó­ræn­ingja­k­etti sem hafi sloppið í land þegar Alsír­ingar komu í land í Grinda­vík í Tyrkjarán­inu en hann hafði einmitt tré­fót og var með lepp. Þá er talað við erfða­fræð­ing sem segir að um ein­stakt til­felli sé að ræða.

Kett­ling­ur­inn með tré­fót­inn og for­faðir hansVík­ur­frétta­menn hafa húmor, það er ljóst.

Þá var Akureyri.net með Apr­ílgabb um til­raun til þess að opna Vínbúð í herra­fata­deild JRJ-húss­ins en styr hafa verið vegna áforma ÁTVR að loka Vín­búð­inni í miðbæ Akur­eyrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina