Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr segist ekki hafa brotið siðareglur Alþingis

Stuðn­ings­menn Silju Báru segja þing­mann­inn hafa sýnt dóm­greind­ar­leysi

Jón Gnarr segist ekki hafa brotið siðareglur Alþingis
Stuðn­ings­menn Silju ósáttir við Jón Pró­fessor ver Magnús Karl Mynd: Skjáskot

Í síð­ustu viku voru kynnt úrslit rekt­ors­kjörs Háskóla Íslands en kosið var milli Silju Báru Ómars­dóttur, pró­fess­ors við Stjórn­mála­fræði­deild, og Magnúsar Karls Magn­ús­sonar, pró­fess­ors við Lækna­deild. Silja Bára vann þá kosn­ingu og hlaut 50,7% atkvæða en Magnús 47,6%. Í fyrri umferð hafði Magnús fengið 33,6% atkvæða en Silja Bára 29,3%.

Hafa sumir stuðn­ings­menn Silju Báru og Magnúsar eldað grátt silfur á göngum skól­ans und­an­farnar vikur og er lít­ill kær­leikur þar á milli þrátt fyrir að úrslitin hafi verið kynnt.

Hluti af stuðn­ings­mönnum Silju Báru heldur því fram að kenn­arar skól­ans hafi hringt í nem­endur og sagt þeim að kjósa Magnús en vægi nem­enda í kjör­inu var 30% á móti 70% hjá starfs­fólki Háskóla Íslands. Í við­tali við Mannlíf sagði Magnús Karl að hann kann­ist ekki við að kenn­arar hafi hringt í eigin nem­endur fyrir sína hönd. Þá sagði hann einnig að sér þætti óeðli­legt að hringja í eigin nem­endur til að hvetja þá til að kjósa ákveð­inn fram­bjóð­anda.

Mannlíf hefur hins vegar heim­ildir fyrir því kenn­arar við lækna­deild skól­ans hafi sagt við nem­endur sína í kennslu­stundum að þeir ættu að kjósa Magnús Karl.

Þessar ásak­anir hafa farið fyrir brjóstið á stuðn­ings­mönnum Magnúsar og skrif­aði Jón Ólafsson, pró­fessor í menn­ing­ar­fræði og Sov­ét­sögu, harð­orða færslu á sam­fé­lags­miðla um málið. Undir hana tóku nokkrir starfs­menn HÍ.

Annað sem hluti stuðn­ings­manna Silju Báru voru ósáttir við í kosn­inga­bar­átt­unni var fram­koma Jóns Gnarr, þing­manns Við­reisnar, en hann lýsti yfir stuðn­ingi sínum við Magnús Karl og kom fram í mynd­böndum á sam­fé­lags­miðlum með Magnúsi.

Þykir þeim Jón hafa sýnt dóm­greind­ar­leysi í hlut­verki sínu sem alþing­is­maður og mögu­lega brotið siða­reglur Alþingis. Vísa þeir sér­stak­lega í meg­in­reglur um hátt­erni þar sem stendur að þing­menn eigi ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra. Þykir þeim per­sónu­legur ávinn­ingur Magnúsar í þessu til­felli veru­legur og þá skapi það hags­muna­á­rekstur að ein­stak­lingur tekur sem beinan þátt í lög­gjöf um Háskóla Íslands skuli lýsa yfir stuðn­ingi við ein­stakan fram­bjóð­anda og taka þátt í fram­boði hans.

Jón Gnarr er hins vegar ósam­mála þessu. „Ég lít alls ekki svo á að ég hafi verið að beita, hvað þá mis­beita, stöðu minni sér­stak­lega til hags­bóta neinum manni. Það eina sem ég gerði var að skrifa litla með­mæla­grein fyrir vin minn, þar sem ég lýsti mínum per­sónu­legu kynnum af honum. Auk þess gerðum við saman stutt efni fyrir sam­fé­lags­miðla. Ég lék ekki í aug­lýs­ingu, fékk ekki neitt greitt né vil­yrði um nokkuð annað. Að öðru leiti hef ég litlu við þetta mál að bæta,“ sagði þing­mað­ur­inn í skrif­legu svari til Mannlífs.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar og utan­rík­is­ráð­herra, svar­aði ekki ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Mannlífs um hennar álit á mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum