Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Byggðin brothætt en útgerðin hagnast um milljarða

Ívar Ingi­mars­son, sem ólst upp á Stöðv­ar­firði, svarar aug­lýs­ingu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Byggðin brothætt en útgerðin hagnast um milljarða
Ívar Ingi­mars­son Einn þekkt­asti Aust­firð­ing­ur­inn eftir atvinnu­mennsku í knatt­spyrnu.

Aust­firð­ing­ur­inn Ívar Ingi­mars­son, fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­maður og núver­andi fjár­festir í ferða­þjón­ustu, segir að ekki „fari saman mynd og hljóð“ þegar aug­lýst er eftir starfs­manni brott­hættra byggða í sama sveit­ar­fé­lagi og fyr­ir­tæki hagn­ast um allt að 11 millj­arða króna á ári.

Þetta bendir hann á vegna aug­lýs­inga frá Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi með yfir­skrift­inni „Við lifum öll á sjáv­ar­út­vegi“. Tilefni hennar er frum­varp atvinnu­vega­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra um að breyta útreikn­ingi veiði­gjalds þannig að hann miði við raun­veru­legt verði á fiski, sem er lík­legt til að tvö­falda upp­hæð­ina sem útgerðir greiða í veiði­gjöld. Í aug­lýs­ing­unni er ungur maður í Fjarð­ar­byggð að lýsa bænum sínum, Nes­kaup­stað, og lýsir því síðan yfir: „En hér í þessum bæ þá lifum við öll á sjáv­ar­út­veg­inum“. „Veiði­gjaldið er skattur á sam­fé­lög,“ segir síðan í aug­lýs­ing­unni sem má finna hér.

„Hér í þessum bæ þá lifum við öll á sjáv­ar­út­veg­inum“
Ungur maður í aug­lýs­ingu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi

„Ég bjó í sjáv­ar­þorpi þar sem stór­út­gerðin lok­aði. Þar var frysti­hús, tog­ari, véla­verk­stæði, neta­verk­stæði, bræðsla, skreið­ar­vinnsla, kaup­fé­lag, banki, póst­hús. Þetta er allt farið og öllu lokað og enn þá í dag er hægt að kaupa stór ein­býl­is­hús í þorp­inu á 25-30 milj­ónir,“ segir Ívar.

Hann ólst upp á Stöðv­ar­firði, þorpi sem er einnig hluti af sveit­ar­fé­lag­inu Fjarð­ar­byggð, en fór síðar í atvinnu­mennsku í knatt­spyrnu, meðal ann­ars með Reading í ensku úrvals­deild­inni. Ívar seg­ist hafa sett inn eft­ir­far­andi athuga­semd við aug­lýs­ingu útgerð­ar­manna, en að hún hafi síðar horfið.

„Það er skrítið þegar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á Nes­kaups­stað Fjarða­byggð skilar 11.000 miljón króna hagn­aði og á sama tíma er aug­lýst eftir starfs­manni brot­hættra byggða á Stöðv­ar­firði Fjarða­byggð. Það fer ekki saman hljóð og mynd.“

Ívar vísar þar til hagn­aðar Síld­ar­vinnsl­unnar, sem er stað­sett í sama sveit­ar­fé­lagi, Fjarð­ar­byggð, þó það teygi sig yfir mis­mun­andi byggðir á Aust­fjörð­unum. Síld­ar­vinnslan hagn­að­ist um 5,7 millj­arða króna í fyrra, 9,5 millj­arða króna árið 2023 og ríf­lega 11 millj­arða króna 2021.

Frá Stöðv­ar­firðiMeð sam­þjöppun eign­ar­halds á afla­heim­ildum og útgerðum hafa störf horfið úr mörgum byggðum, eins og Stöðv­ar­firði.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hefur, eins og ein­staka útgerðir, keypt aug­lýs­ingar á Facebook sem bein­ast gegn frum­varpi stjórn­valda um veiði­gjöld og svo ein­stak­lingum í stjórn­málum sem tala fyrir því.

Ívar end­ur­tekur orð sín frá árinu 2020. „Ég ætla ekki að þykj­ast vita mikið um hag­fræði. En ég veit nóg til að vita að það er skrítið þegar innan sama sveita­fé­lags er fyr­ir­tæki í einum hluta þess að skila 11.000 miljón króna árlegum hagn­aði, meðan í öðrum hluta er verið að ráða starfs­mann fyrir brot­hætta byggð.

Sam­fé­lags­leg ábyrgð missir merk­ingu sína.

Hag­fræðin segir að allt þurfi að vera hag­kvæmara og arð­bær­ara ásamt því að vaxa svo við getum haldið áfram að bæta lífs­gæði okkar. Nú síð­ast heyrði ég þetta í fréttum, ef við virkjum ekki meira getum við ekki bætt lífs­gæði okkar. Við getum ekki farið í orku­skipti og nýtt öll okkar tæki­færi nema að virkja 124% meira en við gerum núna, og í leið­inni gengið á nátt­úru okkar sem bætir lífs­gæði okkar meira en nokkuð annað.

Ég hugs­aði með mér, er ekki eitt­hvað rangt við þetta. Og ég held að það sé eitt­hvað mikið rangt við þetta og það eru fleirri á þeirri skoðun meðal ann­ars banda­ríski hag­fræð­ing­ur­inn Robert Reich sem fer yfir málin í mynd­inni Inequality for all. Mynd sem ég segi að eigi erindi við alla.

Ef arð­ur­inn af því að virkja meira fer í vasa fárra þá bæt­ast ekki lífs­gæði þjóð­ar­innar sjálf­krafa. Ekkert frekar en þegar litlu sjáv­ar­þorp­unum var lokað í nafni hag­ræð­ingar sem fór meira og minna í vasa örfárra ein­stak­linga, og situr þar í milj­örðum talið.

Spurn­ingin hlýtur að vera hversu mikið má hag­ræða svo hag­ræð­ing verði slæm fyrir meiri­hlut­ann? Ef meira og meira af því sem verður til við þessa hag­ræð­ingu fer í vasa örfárra, hvernig nýti­ast það þá meiri­hlut­anum?

Ekker sér­stak­lega vel og það er sýnt svo vel í þess­ari mynd.

Þessi mynd er um Banda­ríkin, og sem betur fer erum við ekki þar. En við stefnum óþarf­lega hratt í þá átt.

Þeir sem eiga milj­arð­ana þetta 1% er að stinga af, og of mikil hag­ræð­ing í þágu þeirra er held ég ekk­ert spes fyrir meiri­hluta þjóð­ar­innar.

Of mik­ill ójöfn­uður er ekki góður fyrir neinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil