Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna kallar Hallgrím sófa-bardagamann

„En af því að þú kall­aðir mig trump­ista í gær viltu í dag kalla mig mann­hat­ara“

Sólveig Anna kallar Hallgrím sófa-bardagamann
Sólveig Anna Jóns­dóttir Verka­lýðs­for­ing­inn er ósátt við orð rit­höf­und­ar­ins. Mynd: Efling

Rit­höf­und­ur­inn og list­málar­inn Hall­grímur Helgason lenti saman við Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, verka­lýðs­for­ingja á Sam­stöð­inni í gær þegar talið barst að vókisma. Þar kall­aði rit­höf­und­ur­inn Sólveigu Önnu Trömp­ista en baðst síðar í þætt­inum afsök­unar á þeim orðum. Í gær­kvöldi skrif­aði Hall­grímur svo færslu sem fór öfugt ofan í Sólveigu og stuðn­ings­fólk hennar.

Færsla Hall­gríms er eft­ir­far­andi:

„Og ég sem ætl­aði að eiga rólegan sunnu­dag! Svo kall­aði Smári mig óvænt inn á síð­ustu stundu í Syni Egils á Sam­stöð­inni. Enn meira kom á óvart að heyra Sólveigu Önnu í miðjum þætti kalla woke ömur­legt. Ég hljóp á mig og sagði hana tala eins og Trump, en sá sam­stundis fyrir mér þessa frétt á Vísi, sá eftir T-orð­inu og bað hana afsök­unar í þætt­inum.

Í kjöl­farið fagna svo verka­lýðs­for­ingj­anum allir hægridúdd­arnir á X-inu og Snorri Másson poppar af gleði. Verð að játa að ég sá þessar vend­ingar ekki fyrir. Hélt að woke væri sjálf­sagður hlutur öllu vök­ulu fólki og vel­mein­andi. En þarna ná Efling og Mið­flokk­ur­inn óvænt saman, sem og Mist­flokk­ur­inn í Valhöll.

En við höldum kúrs og lúffum aldrei á mann­rétt­indum allra, hvar í kyni, húð­lit, stríðum og órétt­læti sem þau standa. Veljum alltaf mannúð gegn mann­hatri!“

Færslan vakti mikla athygli en yfir 100 athuga­semdir birt­ust þar sem fólk ýmist lastaði rit­höf­und­inn fyrir skrifin eða hrósuðu. Sólveig Anna svar­aði eftir hádegi í dag og er allt annað en sátt.

„Þú veist von­andi að ég heiti ekki Efling, heldur Sólveig Anna.

En fyrst þú vilt dyggð­ar­skreyta þig með því að láta eins og ég/Efling séum ein­hvers­konar mann­hat­arar og ras­istar þá vil ég segja að það er ömur­legur mál­flutn­ingur. Mikill woke-botn sem þú ert kom­inn á með því.“ Þannig hefst svar verka­lýðs­for­ingj­ans en síðan talar hún um frum­kvöðla­starf Eflingar:

„Í Eflingu hefur frá því að ég tók við forrystu verið unnið það sem mögu­lega væri kallað frum­kvöðla­starf ef um aðra en okkur væri að ræða, í því að opna félagið fyrir öllu félags­fólki og tryggja að allt fólk sé ekki bara vel­komið heldur geti tekið þátt í póli­tísku starfi félags­ins sem og menn­ing­ar­legu. Við túlkum alla fundi (höfum fyrir vilja okkar til að tryggja að þau sem ekki skilja íslensku geti tekið þátt stundum verið sökuð um að elska ekki þjóð­tung­una). Við þýðum öll gögn. Við birtum allar fréttir á fleiri tungu­málum en íslensku. Við erum með stórar samn­inga­nefndir mann­aðar Efl­ing­ar­fólki alls­staðar aðkomnu úr heim­inum þar sem að allir hjálp­ast að við að skilja aðstæður. Allar glærur á fundum og nám­skeiðum eru tví­tyngdar (og allt til við­bótar texta­túlkað). Allt okkar félags-póli­tíska starf gengur útá að Efl­ing­ar­fólk standi saman - sama hver menn­ing­ar­legur, trú­ar­legur eða landa­fræði­legur bak­grunnur er.“

Þá segir Sólveig Anna að fólk með mjög fjöl­breyttan bak­grunn starfi í stjórn Eflingar:

„Í stjórn félags­ins er fólk með gríð­ar­lega fjöl­breyttan bak­grunn, sama með trún­að­ar­ráð og alla aðra vett­vanga okkar. Ég gæti áfram talið upp dæmi um þá höf­uð­á­herslu sem við leggjum á að allt Efl­ing­ar­fólk sé ávallt vel­komið og vel séð í öllu starfi. Þú finnur ekk­ert annað verka­lýðs­fé­lag á þessu landi sem vinnur með sam­bæri­legum hætti, og þó viðar væri leitað. Við vinnum svona af því að við trúum á gildi lýð­ræð­is­ins og sam­stöð­unnar.“

Lokaorð Sól­veigar Önnu eru sterk:

„En af því að þú kall­aðir mig trump­ista í gær viltu í dag kalla mig mann­hat­ara. Enda mik­ill mann­vinur og rétt­sýn í einu og öllu - segir þér í það minnsta speg­il­myndin. Ég myndi flissa ef að þetta væri ekki svona tremendously sad eins og stundum er sagt.“

Sólveig Anna gerði svo gott betur og birti svar sitt til Hall­gríms á Facebook-vegg sínum og kallar hann fyr­ir­sjá­an­legan „sófa-bar­daga­mann“:

„Svar mitt við status Hall­gríms Helga­sonar - þar sem að hann seg­ist hafa beðið mig afsök­unar á því að kalla mig Trump­ista af því að hann hafi fattað að það kæmi mögu­lega um það frétt (lol) og kallar mig svo mann­hat­ara. Sófa-bar­daga­menn­irnir eru alltaf svo fyr­ir­sjá­an­legir - eina bar­daga­list­inn sem þeir kunna er að upp­nefna og sví­virða þau sem eru þeim ekki þókn­an­leg, rang-hugs­ar­ana. Ef maður mætir þeim í per­sónu og vill taka slag­inn þá fara þeir fyrst í fýlu, verða svo hræddir og finna loks­ins hug­rekkið til að slást þegar þeir eru komnir í skjól heima með lykla­borðið í fang­inu. Öruggir í berg­máls­hell­inum sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina