Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öll börn fædd árið 2025 fá gefins Barnabónus

Andvirði a.m.k 150 millj­óna króna í Barna­bónus til nýfæddra barna

Öll börn fædd árið 2025 fá gefins Barnabónus
Barna­bón­us­inn Boxið er aldeilis búbót fyrir nýbak­aða for­eldra. Mynd: Aðsend

Bónus fagnar nýjum ein­stak­lingum með veg­legri gjöf. Barna­bónus er nýtt verk­efni sem Bónus hefur hleypt af stokk­unum til að styðja við bakið á barna­fjöl­skyldum og létta þeim lífið í þessum nýja kafla lífs­ins. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Bónus.

„Barna­bónus er veg­legur upp­haf­s­pakki með nauð­syn­legum vörum sem ættu að nýt­ast vel hinu nýfædda barni og for­eldrum þess á fyrstu mán­uð­unum eftir fæð­ingu,“ segir Björgvin Vík­ings­son fram­kvæmda­stjóri Bónus.

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að Bónus hafi í 36 ár tekið þátt í að auka hag­sæld á Íslandi og stuðlað að því að bæta lífs­gæði fjöl­skyldna með því að bjóða nauð­synja­vörur á kosta­kjörum. Fellur því þetta verk­efni vel að stefnu og grunn­gildum Bónus, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Finnsk fyr­ir­mynd

„Hug­myndin að Barna­bónus kemur upp­runa­lega frá Finn­landi en Barna­boxið þar í landi hefur verið eitt af þekkt­ustu og áhrifa­rík­ustu félags­legu verk­efnum Finna frá því fyrir miðja 20. öld,“ útskýrir Björgvin. Árið 1938 kom finnska ríkið Barna­box­inu á fót, til að styðja við bakið á nýjum for­eldrum og draga úr útbreiddri fátækt í land­inu. Boxinu var ætlað að tryggja aðgengi for­eldra nýfæddra barna að nauð­synja­vörum og bún­aði og að öll börn fengju sömu tæki­færi í upp­hafi, óháð fjár­hags­stöðu for­eldr­anna.

„Okkar Barna­bónus er hug­mynd af svip­uðum toga, því okkur er annt um við­skipta­vini og vel­ferð þeirra. Við vonum að vör­urnar í kass­anum komi sér vel, en þær eru valdar í sam­vinnu við fag­fólk,“ segir Björgvin.

Gjöf sem eykur vellíða

Bónus nýtur meðal ann­ars leið­sagnar Helgu Reyn­is­dóttur ljós­móður við val á vörum.

„Í box­inu verða vörur fyrir barnið en þessi tími, fyrst eftir fæð­ingu, er tími breyt­inga, undra og upp­götv­ana,“ segir Helga. Það sé því mik­il­vægt fyrir for­eldra að þau séu í jafn­vægi og sinni vel sinni and­legu og lík­am­legu heilsu. „Svona gjöf er stór liður í því að auka vellíðan á þessum tíma og létta á fjár­hags­á­hyggjum hjá nýbök­uðum for­eldrum,“ segir Helga. Í Barna­bónus er til dæmis að finna ung­barna­galla, bleiur, blaut­þurrkur, tann­bursta og tann­krem, dömu­bindi, snuð, krem, and­lit­skrem fyrir móð­ur­ina, leka­hlífar, Milt þvotta­efni, og margt fleira.

Barna­bón­us­innÝmislegt nyt­sam­legt má finna í box­inu.

Það eina sem þarf að gera til að fá slíkan Barna­bónus er að skrá sig á bonus.is/barna­bonus. Andvirði hverrar gjafar er tals­verður og fjöldi sam­starfs­að­ila sem þarf til þess að koma svo stóru verk­efni á lagg­irnar.

„Við erum afskap­lega þakk­lát fyrir hve vel sam­starfs­að­ilar okkar tóku í þessa hug­mynd og hjálp­uðu okkur að gera hana að veru­leika,“ segir Björgvin.

Sjálf­boða­liðar gefa vinnu sína til styrktar Gleym mér ei

„Það er mikil vinna sem liggur að baki svona verk­efni,“ útskýrir Björgvin en Bónus naut aðstoðar fjölda sjálf­boða­liða sem gefa vinnu sína til styrktar Gleym mér ei.

Sjálf­boða­liðar frá Lady Circle„Það er mikil vinna sem liggur að baki svona verk­efni“

„Ein af lyk­il­stoðum verk­efn­is­ins er að styðja við öll börn í land­inu og því teljum við mik­il­vægt að styðja við bakið á öllum for­eldrum og það er heiður að styrkja félag eins og Gleym mér ei,” segir verk­efna­stjóri verk­efn­is­ins, Pétur Sig­urðs­son.

„Allt í allt gerum við ráð fyrir að gefa 5.000 Barna­bón­us­box á þessu ári, sam­tals að and­virði a.m.k. 150 millj­óna króna,“ segir Björgvin. „Vonandi verða gjaf­irnar mikil búbót fyrir fjöl­skyldur á þessum tíma­mótum í lífi þeirra og létta undir með þeim, en eins og við vitum öll þá fylgir því ærinn kostn­aður að eign­ast barn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara