Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrjár grímuklæddar manneskjur börðu Írisi með kúbeini

„Ég hélt að þau myndu drepa mig“

Þrjár grímuklæddar manneskjur börðu Írisi með kúbeini
Íris Vanja Val­geir­dóttir Íris er ósátt við við­brögð lög­regl­unnar. Mynd: Facebook

Kona sem varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás á Akureyri fyrir tveimur mán­uðum síðan er afar ósátt við við­brögð lög­regl­unnar.

Íris Vanja Val­geirs­dóttir vissi ekki hvað á sig stóð veðrið þegar þrjár grímu­klæddar mann­eskjur brutu sval­ar­dyrnar á heim­ili hennar á Akureyri fyrir tveimur mán­uðum. Tólf ára sonur hennar var sof­andi en eldri sonur hennar, tengda­dóttir og vin­kona voru stödd í íbúð­inni og vak­andi.

Brotin sval­ar­hurðMann­eskj­urnar brut­ust inn með kúbeini.

Grímu­klæddu mann­eskj­urnar voru vopn­aðar kúbeini og létu höggin dynja á Írisi Vönju.

Enginn fyr­ir­vari

„Það var eng­inn fyr­ir­vari,“ segir Íris Vanja í sam­tali við Mannlíf. „Það voru engin skila­boð, engar hót­anir það var ekk­ert.“ Íris Vanja seg­ist hafa verið farin að sofa þegar árásin byrj­aði: „Við vorum sem sagt að fara að flytja á sunnu­dags­kvöldi [til Reykja­víkur] og vorum búin að bera allt dótið mitt út í bíl, ég, sonur minn sem er 25 ára, tengda­dóttir mín og vin­kona mín. Svo var 12 ára sonur minni þar líka. En við vorum orðin svo þreytt því klukkan var orðin svo margt. Ég fer að sofa fyrir mið­nætti og 12 ára sonur minn. Við fengum bara lán­aðar dýnur. Svo vakna ég við þessi svaða­legu brot­hljóð. Þetta var svo óraun­veru­legt því ég sá bara tvær grímu­klæddar mann­eskjur en þær voru víst þrjár.“

Íris Vanja segir að eldri sonur hennar, tengda­dóttir og vin­kona hafi reynt að hlaupa út um úti­dyra­hurð­ina á meðan hún hafi hlaupið inn í svefn­her­bergi. „Þau stinga kúbein­inu á milli til að opna hurð­ina. Og svo er ég barin í stöppu.“

Íris VanjaÍris var mjög illa farin eftir árás­ina.

Í færslu sem hún skrif­aði á Facebook um málið segir hún að eldri sonur sinn hafi reynt að sparka upp svefn­her­berg­is­hurð­inni en ekki náð því þar sem hún hafi legið fyrir hurð­inni. „Þau héldu að ég væri dáin,“ skrif­aði hún í færsl­unni. „Og ég hélt að þau myndu drepa mig“.

Íris VanjaÍris er enn með mar og kúlu eftir árás­ina.

Í bar­smíð­unum hlaut Íris Vanja stærð­ar­innar kúlu á höfði og mar við gagn­auga, auk rif­beins­brots og áverka víða um lík­amann. Enn í dag, nærri tveimur mán­uðum síðar er hún með kúlu á höfð­inu og mar við gagn­augað. Vinkona hennar hlaut einnig mikla skurði á fingrum vegna gler­brot­anna sem rigndu inn við inn­brotið og þegar henni var hrint á gólfið af árás­ar­að­il­unum. Rottweiler-tík Írisar varð fyrir svo slæmum spörkum í árásinni að hún lam­að­ist tíma­bundið og var flutt til dýra­læknis þar sem henni var gefin bæði verkja- og kvíða­still­andi lyf.

Frá vett­vangiSem betur fer var Íris búin að setja flest alla búslóð­ina í flutn­inga­bíl.

Ósátt við lög­regl­una

Íris Vanja seg­ist afar ósátt við lög­regl­una en eldri sonur hennar hafði heyrt umgang fyrir utan húsið fyrir inn­brotið og hringt í lög­regl­una. Hún hafi síðan þrýst á neyð­ar­hnapp sem hún ber um háls­inn vegna syk­ur­sýkis sem hún þjá­ist af, þegar árásin á hana hófst. Þá hafi sonur hennar einnig hringt aftur í lög­regl­una eftir að bar­smíð­arnar hófust. „Samt kom lög­reglan ekki á for­gangi heim,“ segir hún í sam­tali við Mannlíf og heldur áfram. „Hún kom samt ekki á for­gangi þó að þau hefðu verið búin að króa mig af bak við hurð­ina inni í her­bergi til að berja mig og þau, sonur minn, tengda­dóttir og vin­kona héldu að það væri búið að drepa mig. Og lög­reglan er enn að keyra niður göt­una þegar þau eru að berja mig og þau ná að flýja áður en lög­reglan kemur.“

Segir hún að örygg­is­vörð­ur­inn sem fékk neyð­ar­boðið úr neyð­ar­hnappi hennar hafa verið á undan lög­regl­unni á vett­vang. „Það var ekki fyrr en lög­reglan átt­aði sig á alvar­leika máls­ins að allt fyllt­ist hér af lög­reglu­bílum. Og svo kom sjúkra­bíll en ég var svo illa áttuð. Ég held að ég hafi rot­ast því ég man þetta svo illa.“ Var henni til­kynnt af sjúkra­flutn­ings­manni að það þyrfti að færa hana strax á spít­ala vegna ótta um inn­vortis heila­blæð­ingar. „Ég ætl­aði fyrst að fá mér sígar­ettu en ég var ekki að átta mig á því hvernig ég liti út í framan. Ég skildi ekki neitt í neinu af þessu þarna. En að þeir [lög­reglu­menn­irnir] hafi tekið sér þetta langan tíma að koma finnst mér vera ófyr­ir­gef­an­legt með öllu.“

Sagt að drífa sig út úr bænum

Íris Vanja segir lög­regl­una hafa seinna þennan dag sagt henni að best væri fyrir hana að drífa sig úr bænum sem fyrst. „Seinna um dag­inn, þá er ég í skýrslu­töku númer þrjú uppi á lög­reglu­stöð. Þá segja þau við mig að það sé best fyrir okkur að drífa okkur út úr bænum áður en þeim verði hleypt úr haldi,“ segir Íris Vanja í sam­tali við Mannlíf en árás­ar­að­il­arnir náð­ust allir en ekki er hægt að nafn­greina þá vegna rann­sókn­ar­hags­muna. „Það er eins og það þurfi að vernda þau fyrir okkur en ekki okkur fyrir þeim.“

Þá segir hún að lög­reglan hafi hvorki kynnt henni né vin­konu hennar fyrir þeim að þær ættu rétt á rétt­ar­gæslu­manni en að henni hafi verið bent á það í bar­áttu­hópi gegn ofbeldi á Facebook.

„Síðan segja þeir mér að fara á flutn­inga­bílnum með dótið mitt á flutn­inga­bílnum klukkan sex að degi en árásin gerð­ist 20 mín­útur yfir mið­nætti. Þá á ég að fara suður með allt dótið á flutn­inga­bíl, með sjón á öðru aug­anu. Og ég gat varla setið. Og koma mér fyrir.“

Á erfitt með tal og skrif

En hvernig líður Írisi í dag?

„Skelfi­lega. Ég er alltaf hrædd. Ég er hjá áfallateym­inu á Land­spít­al­anum. Og ég er syk­ur­sjúk og ég næ ekki sykrinum niður. Hann er alltaf í botni sama hvað þau sprauta mig og gera og græja. Þetta er út af streitu og álagi.“ Þá benti vin­kona hennar á það að eftir árás­ina hafi hún tekið eftir því að Íris Vanja birti stundum sam­heng­is­lausar færslur á Facebook. Aðspurð hvort hún hafi hlotið heila­hrist­ing í árásinni seg­ist Íris ekki vita það en að hún hafi verið send í annan heilaskanna. „Ég veit ekki hvað þetta er en lækn­ir­inn sendi mig í annan heilaskanna og sagði að heil­inn ætti svo erfitt með að með­taka áfallið að það ætti eftir að taka langan tíma að jafna sig út, þannig að ég færi að tala og skrifa rétt.“

Tík Írisar er í pössun eins og er þar sem hún hefur ekki ennþá treyst sér til þess að ann­ast hana og fara ein út að labba með hana.

Fjar­stæðu­kennt

Að lokum segir Íris að árásin sé svo fjarri hennar raun­veru­leika, hún hafi aldrei verið í fíkni­efnum eða öðru rugli. „Þegar ég segi fólki að það hafi komið grímu­klæddar mann­eskjur inn um svala­dyrnar og barið mig með kúbeini, heldur fólk að ég sé ekki í lagi í hausnum.“

Íris segir 12 ára son sinn mjög bratt­ann þrátt fyrir árás­ina en að hann sé að hitta sál­fræð­ing en sé vina­margur og félags­lega sterkur. Hann hafi í fyrstu verið hræddur að vera einn heima á nýja heim­il­inu en líði nú betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina