Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Húðskammaður fyrir að benda á tengsl Áslaugar Örnu

Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, átti í vök að verj­ast.

Húðskammaður fyrir að benda á tengsl Áslaugar Örnu
Sigurjón Þórð­ar­son í dag Þing­maður Flokks fólks­ins hefur verið gagn­rýndur fyrir orð sín um Morg­un­blaðið, sem hann segir óeðli­legt að veita rík­is­styrki vegna þess að það sé fjöl­mið­ill sér­hags­muna. Mynd: Alþingi

Þingkona Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­maður Mið­flokks­ins atyrtu Sigurjón Þórð­ar­son, þing­mann Flokks fólks­ins harka­lega, fyrir að benda á tengsl Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur við Morg­un­blaðið í umræðu um frum­varp um rekstr­ar­stuðn­ing við fjöl­miðla á Alþingi í dag.

Umræðan snýr að frum­varpi Loga Ein­ars­sonar, ráð­herra menn­ing­ar­mála, um að fram­lengja núver­andi fyr­ir­komu­lagi styrkja­kerfis fjöl­miðla, sem er að nor­rænni fyr­ir­mynd, um eitt ár. Eina breyt­ingin er að þak styrkja er lækkað úr 25% í 22%, sem getur þýtt að stærstu fjöl­miðl­arnir fái minni styrki.

Sigurjón Þórð­ar­son hefur verið gagn­rýndur fyrir orð sín um að kom­inn sé „tími til þess að end­ur­skoða ein­fald­lega fjár­fram­lög til Morg­un­blaðs­ins,“ eins og hann lýsti í við­tali við Útvarp sögu, með útskýr­ing­unni: „Við erum að láta þarna gríð­ar­legar upp­hæðir inn í blað sem er í raun­inni að reka erindi gegn almanna­hags­munum og fyrir hags­munum örfárra auð­manna.“

Benti á tengsl Áslaugar

Á Alþingi í dag átti Sigurjón í vök að verj­ast eftir að hafa bent á tengsl Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við Morg­un­blaðið, en stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­lags þess er faðir hennar, Sig­ur­björn Magn­ús­son.

„Mér heyrð­ist hér í dag, nema mér hafi mis­heyrst, að það hafi verið dóttir stjórn­ar­for­manns Árvakurs sem hafi verið hér í umræð­unni að tala þá einmitt máli þess fjöl­mið­ils í þessu máli. Þannig að ég held að menn ættu að líta sér nær þegar út í þessa umræðu er farið.“

Áslaug Arna hafði stigið í pontu fyrr í umræðum. Hún gagn­rýndi þar fjár­veit­ingar til Rík­is­út­varps­ins og erf­iða sam­keppn­is­stöðu einka­rek­inna miðla gagn­vart því. Þá benti hún á að Norð­ur­löndin hefðu tekið rík­is­miðla sína af aug­lýs­inga­mark­aði. Hún gagn­rýndi breyt­ingar í frum­varpi Loga sem fela í sér að einka­reknir fjöl­miðlar, „sem þó veita rík­is­rekna fjöl­miðl­inum eitt­hvað aðhald“, fengju að hámarki 22% af heild­ar­styrk­veit­ingu frekar en 25%, eins og verið hefur. Þar er um að ræða Sýn, sem heldur úti Vísi, Bylgj­unni og Stöð 2, og Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, sem hugs­an­lega ná upp í þakið. Hún yfir­gaf síðar þing­sal.

Í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta brást Bryndís Har­alds­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, harka­lega við orðum Sig­ur­jóns.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttirFaðir þing­kon­unnar er stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, sem er annað tveggja fjöl­miðla­fé­laga sem gætu komið verr út úr breyt­ingu á lögum um fjöl­miðla. Hún gagn­rýndi breyt­ing­una á þingi í dag.
„Mér finnst þetta bara ekki hátt­virtum þing­manni sæm­andi“
Bryndís Har­alds­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins

„Mér finnst ekki við hæfi hér hjá hátt­virtum þing­manni, Sig­ur­jóni Þórð­ar­syni, að koma með hnýtur í þing­mann sem er ekki staddur í salnum. Vísa rang­lega til orða sem hún átti hér í orða­stað við ráð­herra um þetta frum­varp, með ein­hverjum teng­ingum í fjöl­skyldu­tengsl hennar. Virðu­legi for­seti mér finnst þetta bara ekki hátt­virtum þing­manni sæm­andi,“ sagði hún.

Þá gagn­rýndi hún að Sigurjón væri ekki sam­mála rík­is­stjórn­ar­inni um frum­varpið og rík­is­stjórnin því ekki eins sam­hent og lýst væri yfir.

Atyrtur af þingmanni Miðflokksins

„Ég vil þakka fyrir leið­bein­ingar frá hátt­virtum þing­manni Bryndísi Har­alds­dóttur,“ svar­aði Sigurjón. „Og það er greini­legt að það er greini­legt að það er við­kvæmt að benda á þessa hluti. En mér finnst eðli­legt að gera það. Auðvitað er þetta bara stað­reynd sem liggur á borð­inu og allir vita af. Ég hélt að þetta væri ekki eitt­hvað sem mætti ekki nefna hér í ræðu. En ef það er svo læt ég vera að gera það á ný.“

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, tók í sama streng og atyrti Sigurjón. „Við eigum ekki því að venj­ast hér í þessum sal að menn tali til þing­manna með ein­hverjum hætti, þing­manna sem eru ekki við­staddir og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Og við ætlum ekki að venj­ast því. Ég beini því til þing­manna og sér­stak­lega þeirra sem eru nýkomnir hingað inn að þeir virði þær leik­reglur sem hafa verið í þessum sal ævalengi, all­lengi, af því að við tök­umst á hér en við sneiðum ekki hvort að öðru ef annar aðil­inn er ekki við­staddur. Ég bið góð­fús­lega um það að frú for­seti hafi góða reglu á þing­fundi og að við látum af þessu,“ sagði Þor­steinn.

Sigurjón varði sig og kvaðst sjálfur hafa orðið fyrir ósann­gjarnri umræðu.

„Það er rétt að taka það fram að það var ekki ætl­unin hér að sneiða hér að einum né neinum, heldur ein­fald­lega að skýra mál mitt. Og það er ekki heldur hægt að horfa fram hjá því að umræddur þing­maður sem var rætt hér um tók hér þátt í umræð­unni og margoft hefur einmitt þessi umræða verið hér um fjöl­miðla, um ein­hverjar ásak­anir á þing­menn Flokks fólks­ins, að þeir séu að halda uppi ein­hverjum hót­unum. Bull­um­ræða sem hefur verið hér í gangi þrátt fyrir að eng­inn þing­maður Flokks fólks­ins, eða sá sem hafi verið átt við, hafi ekki verið til staðar í salnum.“

Segir Morgunblaðið í herferð

Sigurjón hefur haldið því fram að Morg­un­blaðið gæti sér­hags­muna og að í umfjöll­unum um Flokk fólks­ins hafi það „ekki verið að flytja fréttir“. „Það er eitt­hvað annað sem bjó þar að baki,“ sagði hann á þingi í dag. „Þeir sem hafa greitt her­kostnað Morg­un­blaðs­ins eru auð­vitað sér­hags­mun­irnir,“ bætti hann við og vís­aði til umfjall­ana um auð­linda­gjöld.

Mikill meiri­hluti útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins er í eigu útgerð­ar­fólks og -félaga sem hafa reglu­lega greitt inn nýtt hlutafé til að fjár­magna við­var­andi tap­rekstur þess.

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa hins vegar gagn­rýnt að sett sé þak á greiðslu rekstr­ar­stuðn­ings til ein­stakra fjöl­miðla­fé­laga. Breyt­ingin sem þing­menn­irnir hafa gagn­rýnt er að hvert fjöl­miðla­fé­lag getur að hámarki fengið 22% af heild­ar­styrk­fjár­hæð, en áður var þakið 25%.

Umrætt frum­varp snýr að tíma­bund­inni fram­leng­ingu fyrra fyr­ir­komu­lags en í kjöl­farið hyggst Logi Ein­ars­son menn­ing­ar­mála­ráð­herra leiða gagn­gera end­ur­skoðun fyr­ir­komu­lags­ins og end­ur­skoða stöðu Rík­is­út­varps­ins, ekki síst með til­liti til aug­lýs­inga­sölu þess, og færa fjár­mögnun yfir til einka­rek­inna fjöl­miðla. Frum­varpið liggur nú hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum