Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýtt líf Jóa Fel: Ást, einbýli og upprisa

Rís upp úr gjald­þroti með nýtt ein­býli, trú­lofun og nýjan rekstur.

Nýtt líf Jóa Fel: Ást, einbýli og upprisa
Nýtt líf Jóa Fel Hann er kom­inn aftur og nú með lif­andi upp­skrifta­bók þar sem prótein­duftið á sér einnig sama­stað. Mynd: Jói Fel / eldabaka.is

Athafna­mað­ur­inn og bak­ar­inn Jói Fel er ris­inn aftur eftir gjald­þrot og fleiri raunir. Hann er nýtrú­lof­aður og fluttur til Hvera­gerðis í „mjög töff ein­býl­is­hús“, eins og sjón­varps­konan Vala Matt lýsir því, en hún birtir í kvöld við­tal við hann á Stöð 2.

Jói Fel varð gjald­þrota árið 2023. Árið 2020 hafði bak­arískeðja hans farið í gjald­þrot, eftir beiðni Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna. Síðar sagð­ist hann hafa orðið fyrir létti við gjald­þrotið. „Því miður voru skuldir orðnar of háar, launin of há, kostn­að­ur­inn of hár,“ sagði hann.

Heimili hans, ein­býli við Mark­ar­flöt í Garðabæ, var sett á upp­boð skömmu síðar, en hann hafði flutt þangað árið áður og sýnt í Smartland­inu.

Eftir gjald­þrot bak­arís­rekst­urs­ins reyndi Jói að kaupa aftur eign­irnar, en það var keppi­naut­ur­inn, Bak­ara­meist­ar­inn, sem keypti eign­irnar úr þrota­bú­inu. Sam­tals feng­ust 117 millj­ón­ir upp í tæp­lega 201 millj­ónar kröfur sem lýst var í búið

Árið 2022 fór kærasta Jóa með hann í skyndi á bráða­mótt­töku þar sem hann gekkst undir hjarta­þræð­ingu. Hann vann þá að opnun veit­inga­stað­ar­ins Felino og sagð­ist vera kom­inn á nýjan stað í líf­inu. Á end­anum lok­aði Felino árið 2024, að sögn Jóa vegna hækk­andi hrá­efn­is­verðs þótt það væri „troðið út úr dyrum“, eins og hann lýsti því. Eftir það stefndi Jói að opnun „lif­andi upp­skrifta­bókar“.

Jói Fel skildi árið 2017 eftir 20 ára hjóna­band. Fyrr­ver­andi eig­in­kona hans lýsti því síðar í við­tali hvernig hún not­aði hug­víkk­andi efni til að kom­ast yfir skiln­að­inn. „Það að stíga sam­tímis út úr hjóna­bandi sínu og einnig út úr fyr­ir­tæk­inu sínu, sem hafði verið ástríða manns og lifi­brauð í þetta langan tíma, var bara mjög stórt,“ sagði hún.

Nú eru nýj­ustu áform Jóa Fel orðin að veru­leika. Lifandi upp­skrifta­bók á net­inu hefur litið dags­ins ljós, elda­baka.is. Þar birtir hann upp­skriftir og mynd­bönd af sér við mat­reiðslu og sparar ekki að flagga ein­kenn­is­merki sínu, upp­hand­leggsvöðv­unum, sam­hliða ráð­legg­ingum um heilsu­sam­legt fæði.

Hann bað kær­ustu sinnar, Krist­ínar Evu Sveins­dóttur, á Miami-strönd­inni í Flórída í Banda­ríkj­unum í ágúst síð­ast­liðnum. Það er einmitt Kristín Eva sem er skráður eig­andi einka­hluta­fé­lags­ins sem heldur utan um nýjan rekstur Jóa Fel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu