Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lárus Björn Svavarsson lést í dag

Þekktur sem Lalli Johns, sneri Lárus Björn Svav­ars­son baki við götu­lífi og leit­aði að frels­inu sem hann dreymdi um.

Lárus Björn Svavarsson lést í dag
Lárus Björn Svav­ars­son Hér á mynd frá árinu 2021.

Lárus Björn Svav­ars­son, sem varð lands­frægur vegna ýmissa til­tækja og til­svara í götu­lífi í Reykja­vík, féll frá í dag. Lárus, sem þekktur var undir við­ur­nefn­inu Lalli Johns, var 74 ára gam­all.

Nafnið Lalli Johns varð á hvers vit­orði þegar sam­nefnd heim­ild­ar­mynd um hann var gefin út árið 2001. Þar gaf hann beina inn­sýn inn í líf sitt og lýsti með ber­orðum og ein­lægum hætti mis­jafn­lega lög­legum upp­á­tækjum, neyslu og draumi um lausn frá slíkum lífs­stíl. Myndin fékk Eddu­verð­launin það árið. Lárus hafði þar áður verið þekktur í sam­fé­lag­inu. Síðar sneri hann við blað­inu. Þegar Lárus lést hafði hann verið edrú í tæpa tvo ára­tugi.

Bróðir Lárusar, Sig­ur­björn Svav­ars­son, greindi frá frá­falli hans á Facebook í kvöld. „Bró. Lalli lést í dag. Hvíl hann í friði.“

Margar frægar sögur hafa gengið af upp­á­tækjum Lalla, sem skil­uðu honum oftar en einu sinni á Litla-Hraun. Ein sagan af því var þegar hann var búinn að brjót­ast inn í hús, búinn að koma ráns­fengnum fyrir á gangi þar inni og beið eftir að félagi sinn myndi sækja sig en þá náði hann sér í ljóð­bók eftir Stein Steinarr og var að lesa uppi í sófa þegar lög­reglan kom.

Lárus lætur eftir sig fjögur börn.

Í við­tala­röð­inni Skugga­börn, sem birt var á Mannlífi 2023, lýsti hann því að hann hefði leiðst út í neyslu eftir vistun á barna- og ung­linga­heim­il­inu Breiðu­vík. Eftir umfjöllun um Breiða­vík­ur­málið í fjöl­miðlum ákvað Lárus að fara í með­ferð. Það hélt, með einu falli sem hann reis upp úr.

Í öðru við­tali við Mannlíf árið 2021 sagði Lárus frá reynslu sinni af því að vera við dauð­ans dyr eftir hjarta­á­fall.

„Já, svona, mér leið öðru­vísi. Mér var eig­in­lega smá­brugðið. Ég vissi bara ekki hvernig það færi.“

Hann lýsti þar draumi sínum í líf­inu. „Draum­ur­inn er að vera frjáls og hafa svona speis fyrir sig og sína. Það er það sem ég mest hugsa um.“

Þá sagði hann frá því í við­tal­inu hvað hann hefði dreymt kvöldið fyrir við­talið. „Það var nú lítið. Mig dreymdi nú bara að ég væri staddur ein­hvers staðar í ein­hverju húsi og það var mik­ill gleð­skapur. Það var verið að bjóða mér í glas og ég sagði „nei, takk“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá