Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

ASÍ vill að sett verði viðskiptabann á Ísrael

Sam­bandið for­dæmir einnig samn­ing Rík­is­kaupa við Rapyd

ASÍ vill að sett verði viðskiptabann á Ísrael
Finn­björn A. Her­manns­son er for­seti ASÍ ASÍ tekur undir með LO í Noregi og vill við­skipta­bann Mynd: ASÍ

Alþýðu­sam­band Íslands vill að sett verði á við­skipta­bann á Ísrael en sam­tökin grein frá því í til­kynn­ingu um málið.

„Almenn­ingur í Palest­ínu hefur mátt þola ólýs­an­legar þján­ingar í tengslum við ólög­mætt árásar- og land­vinn­inga­stríð Ísraela á Gaza, s.l. tæp tvö ár. Nú er svo komið að Ísra­els­her hefur lokað fyrir alla neyð­ar­að­stoð og mat­ar­flutn­inga inn á Gazasvæðið og heim­ur­inn horfir upp á um tvær millj­ónir manna, þar af stórum hluta börn, sveltar hægt og bít­andi til dauða. Í mars árið 2024 komst Alþjóða­dóm­stóll­inn að þeirri nið­ur­stöðu að Ísra­els­ríki sé lík­lega (e. plausi­ble) að fremja þjóð­ar­morð og í júlí á sama ári, úrskurð­aði sami dóm­stóll að her­seta Ísraela á palest­ínsku landi væri ólög­leg,“ segir í yfir­lýs­ingu ASÍ

Þá er tekið fram að mið­stjórn ASÍ hafi þegar sent frá sér þrjár álykt­anir í tengslum við átökin á sama tíma­bili þar sem óhæfu­verk Ísraela hafa verið for­dæmd og kallað hefur verið eftir raun­veru­legum aðgerðum af hálfu íslenskra stjórn­valda.

ASÍ bendir á að þann 9. maí hafi norska alþýðu­sam­bandið (LO) sam­þykkt ályktun um Palest­ínu á þingi sínu. Yfir­lýs­ing­unni svipar mjög til þeirra sem mið­stjórn ASÍ hefur sent frá sér um sömu mál und­an­farið en þar er meðal ann­ars kraf­ist snið­göngu á Ísrael vegna hern­að­ar­að­gerða lands­ins í Palest­ínu og krafa um laga­setn­ingu sem banni við­skipti og fjár­fest­ingar í Ísrael.

Mið­stjórn ASÍ telur fulla ástæðu til þess að taka undir gagn­rýni og kröfur LO í Noregi og gerir það með ályktun sinni.

Þá telur ASÍ að það sé full ástæða til þess að for­dæma ákvörðun Rík­is­kaupa um að end­ur­nýja samn­inga við ísra­elska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Rapyd til tveggja ára, þrátt fyrir áber­andi ákall frá stórum hluta almenn­ings um hið gagn­stæða.

„Lýsa má yfir ánægju með frum­kvæði for­sæt­is­ráð­herra, Kristrúnar Frosta­dóttur, að leiða saman ríki sem taka vilja afstöðu gegn yfir­stand­andi her­för Ísraela gegn mann­úð­inni, en gera þarf marg­falt meira, og taf­ar­laust. Tíminn vinnur ekki með svelt­andi börnum. 

Alþýðu­sam­band Íslands kallar eftir því að allar mögu­legar leiðir verði reyndar til þess að binda enda á það martrað­ar­á­stand sem ríkir fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og til þess að Palest­ínu­menn megi njóta fullra mann­rétt­inda og virð­ingar til jafns við aðra í heima­landi sínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina