15 manns leituðu á bráðamóttöku Landspítalans eftir tónleika sem haldnir voru í Laugardalshöll í gær og hlutu nokkrir af þeim beinbrot en RÚV greinir frá þessu.
Samkvæmt gestum sem mættu á tónleikanna var gífurlega mikill troðningur á tónleikunum og þá sérstaklega í anddyri Laugardalshallar þar sem salerni hússins eru staðsett. Á samfélagsmiðlum segir fólk frá því að gestir hafi hreinlega gefist upp að bíða eftir að því að komast á salernið og gert þarfir sínar á gólfið.
Nordic Live Events, sem er skipuleggjandi tónleikanna, hefur beðist afsökunar á málinu í tilkynningu til fjölmiðla.































Athugasemdir