Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mogginn fær innspýtingu eftir tap upp á milljón á dag

Eigendur koma til hjálpar eftir að móð­ur­fé­lag Morg­un­blaðs­ins tap­aði aftur hund­ruð millj­óna króna.

Mogginn fær innspýtingu eftir tap upp á milljón á dag
Davíð Oddssson Var ráð­inn rit­stjóri af nýjum eig­endum Morg­un­blaðs­ins eftir að hafa verið seðla­banka­stjóri í efna­hags­hrun­inu. Mynd: Pressphotos

Á sama tíma og Morg­un­blaðið greinir frá því að móð­ur­fé­lag útgáf­unnar tap­aði 348 millj­ónum króna í fyrra, hefur félagið, sem heitir Þórsmörk ehf, aukið hlutafé um 266.600.000 króna.

Að auki hefur félagið heim­ilað hluta­fjár­aukn­ingu upp á 133.400.000 króna til við­bótar.

Þetta þýðir að útgáfa Morg­un­blaðs­ins getur á end­anum fengið í heild 400 millj­óna króna inn­spýt­ingu frá eig­endum sínum.

Eigendur Morg­un­blaðs­ins eru fyrst og fremst öfl­ug­ustu útgerð­ar­fé­lög lands­ins. Þar á meðal eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Ísfélag Vest­manna­eyja og tengdir aðilar, auk Lýsis hf. og tengdra aðila. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, sem fer með yfir­gnæf­andi hlut í félögum sem eiga 37,9% hluta­fjár.

Guðbjörg Matth­í­as­dóttirEr stærsti ein­staki eig­andi Morg­un­blaðs­ins í gegnum félögin Hlyn A og Ísfélag Vest­manna­eyja.

Meðal ann­arra eig­enda eru síðan Sig­ur­björn Magn­ús­son, einnig þekktir fyrir að vera faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, þing­manns og fyrr­ver­andi ráð­herra, sem fer með um 7% hlut og er stjórn­ar­for­maður.

Hluta­fjár­aukn­ingin hefur ekki verið til­kynnt til Fjöl­miðla­nefndar og er því ekki vitað hver fjár­magn­aði kaupin og sömu­leiðis er óvíst hvernig fer með þær 133 millj­ónir króna sem heim­ilt er að auka hlutafé um. Ef marka má rekstur félags­ins í fyrra myndi aðeins taka 127 daga að klára slíka hluta­fjár­aukn­ingu til við­bótar með við­var­andi tap­rekstri sam­stæð­unnar.

Útgáfa Morg­un­blaðs­ins hefur skilað tapi öll ár nema eitt síð­ustu 16 ár, frá því félagið fór í þrot 2009 og fékk afskrif­aðan á fjórða millj­arð króna þegar útgerð­ar­fé­lög tóku hana yfir. Eina árið sem rekstur Morg­un­blaðs­ins hefur ekki skilað tapi reynd­ist vera árið 2013 þegar 6 millj­óna króna hagn­aður náð­ist. Síðan þá hafa tap­ast sam­tals tæpir tveir millj­arðar króna á verð­lagi hvers árs.

Haraldur Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóri og annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins á móti Davíð Oddssyni, sagði í við­tali við blaðið í dag að erfið sam­keppni við ríkið og tölvu­árás hefðu verið helstu ástæður taps­ins. Þá sagði hann Morg­un­blaðið hafa fært fram nýj­ungar með nýju appi og dag­skrár­gerð, meðal ann­ars þætti Stefáns Einars Stef­áns­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara