Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

„Þau eru búin að klæða sig uppá í völdin og for­rétt­indin. Án þeirra eru þau ber­rössuð.“

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig
Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir Upp­lýs­inga­full­trú­inn er afar ósátt við stjórn­ar­and­stöð­una.

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­kona, lætur stjórn­ar­and­stöð­una fá það óþvegið í nýrri Facebook-færslu.

Í færsl­unni segir Þóra Kristín að í her­búðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ríkt stöðugt upp­nám frá því að flokk­ur­inn neydd­ist til að yfir­gefa stjórn­ar­ráðið.

„Það er stöðugt upp­nám í her­búðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir að flokk­ur­inn þurfti að yfir­gefa stjórn­ar­ráðið. Þingmenn valda­flokks­ins eru ekki í karakter í núver­andi hlut­verki, þeir garga og gagn­rýna allt laust og fast, alltaf jafn reiðir og sár­hneyksl­aðir sama hvert til­efnið er.“

Nefnir hún sér­stak­lega Víði Reyn­is­son og lætin sem urðu þegar í ljós kom að hann hafði hringt í Útlend­inga­stofnun og rík­is­lög­reglu­stjóra vegna máls hins 17 ára Oscars And­ers Boca­negra Flor­ez, sem til stóð, þar til því var frestað, að vísa brott af land­inu en hann á fóst­ur­fjöl­skyldu hér á landi.

„Nú er það fram­ganga Víðis sem kvelur þau, hann vildi ekki horfa þegj­andi upp á að 17 ára ung­lingur, sem býr hér í skjóli fóst­ur­for­eldra sem taka ábyrgð á honum, yrði dreg­inn fram úr rúmi sínu og fluttur nauð­ung­ar­flutn­ingi á göt­una í Kólumbíu, meðan ein­ungis eru nokkrir dagar þar til Alþingi tekur afstöðu til þess hvort hann fær rík­is­borg­ara­rétt á Íslandi.
Eina sem Víðir gerði var að vekja athygli á því að það gæti borgað sig að bíða eftir nið­ur­stöðu áður en lög­reglan hæf­ist handa við brott­flutn­ing.“

Segir Þóra þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins „liggja á hunda­flaut­unni“ vegna máls­ins og krefj­ist þess að fram­tíð­ar­mögu­leikar Oscars verði eyði­lagðar.

„Þingmenn flokks­ins liggja á hunda­flaut­unni og krefj­ast þess að fá höfuð Víðis á fati og að fram­tíð þessa ung­lings verði lögð í rúst, þeir eru skjálf­andi af heift og bræði.
En upp­námið er í grunn­inn vegna þess, að þau telja að valda­rán hafi verið framið í land­inu. Það sé hérna vin­sæl rík­is­stjórn, án þess að þau og sér­hags­munir skjól­stæð­inga þeirra eigi nokkra aðkomu að henni.“

Að end­ingu segir Þóra Kristín að án valds og for­rétt­inda sé stjórn­ar­and­staðan als­ber, „grát­hlægi­leg“ og „stundum óbæri­lega leið­in­leg“.

„Þau eru ekki í karakter í minni­hluta, kunna ekki að reka mál­efna­lega og ein­arða stjórn­ar­and­stöðu og vera ósam­mála án þess að saka við­mæl­and­ann í sífellu um lög­brot og heimta refs­ingar. Þau eru búin að klæða sig uppá í völdin og for­rétt­indin. Án þeirra eru þau ber­rössuð. Þau eru varla hættu­leg, frekar grát­hlægi­leg og stundum alveg óbæri­lega leið­in­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum