Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bandaríska sendiráðið gagnrýnt fyrir áróður

Sendi­ráðið varar við hryðju­verka­hættu ef landa­mæri eru ekki varin

Bandaríska sendiráðið gagnrýnt fyrir áróður
Banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi Ný her­ferð sendi­ráðs­ins á Facebook varar við hryðju­verka­hættu vegna inn­flytj­enda. Mynd: Víkingur

Banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi hefur verið gagn­rýnt fyrir að deila röð af myndum á Facebook sem varar við hryðju­verkum ef landa­mæri eru ekki vel varin. Mynd­irnar vara sér­stak­lega við hæl­is­leit­endum og flótta­fólki í Evrópu.

Nýjasta myndin sýnir byssu­skot á rúðu veit­inga­staðar og „Enginn ætti að deyja því að við brugð­umst ekki við“ skrifað yfir mynd­ina. „Hryðju­verka­menn þurfa ekki vega­bréfs­á­rit­anir þegar landa­mæri eru galopin. Ef við viljum vernda fólkið okkar byrjum við á því að setja strengri lög, fram­fylgja þeim á skil­virkan hátt og taka þátt í alþjóð­legri sam­vinnu. Enginn er öruggur án öruggra landamæra, og eng­inn ætti að deyja því að við brugð­umst ekki við,“ stendur í text­anum sem fylgir þeirri mynd.

Önnur mynd sýnir kerta­vöku í Þýska­landi og „Stjórn­völd verða að verja fólkið sitt,“ er skrifað í stórum stöfum yfir mynd­ina. Með mynd­inni fylgir texti um hætt­una sem steðjar frá hæl­is­leit­endum. „Fjar­lægjum strax synj­aða hæl­is­leit­endur – áður en eitt­hvað ger­ist – afganskur maður, sem var synjað um hæli, réðst á tveggja ára barn og full­orð­inn ein­stak­ling í þýskum almenn­ings­garði. Vísa átti honum aftur til Afganistan eftir að umsókn hans um alþjóð­lega vernd var hafnað. Þetta var ekki skortur á samúð. Þetta var skortur á fram­fylgd laga. Evrópsk stjórn­völd verða að vernda fólkið sitt,“ skrifar banda­ríska sendi­ráðið.

Við­brögðin við færsl­urnar sýna að skila­boðin séu ekki að sann­færa íslenskan almenn­ing. Margar athuga­semd­irnar við mynd­irnar gagn­rýna skila­boð sendi­ráðs­ins harð­lega. Þá sér­stak­lega hafa margir not­endur bent á að harð­ari landamæra­gæsla virð­ist ekki verja íbúa Banda­ríkj­anna frá byssu­árásum í sínu heima­landi af hendi heima­manna.

„Og eng­inn ætti að vera myrtur í skotárásum vegna heimsku­legra laga um eign­ar­hald skot­vopna, samt ger­ist það á hverju ári, margoft, í Banda­ríkj­unum og þið bregð­ist ekki við. „Samtals 1.159 fórn­ar­lömb fengu bana­sár í skotárásum í Banda­ríkj­unum á milli 1982 og 4. sept­em­ber 2024“,“ skrifar Björgvin Pét­urs­son undir einni færsl­unni.

„Önnur Facebook færlsa sem mun ekki stand­ast tím­ans tönn…minni áróður, fleiri myndir af diplómötum að njóta Bláa lóns­ins og hákarls,“ skrifar Burke Brownfeld.

„Í alvöru? Hvaða starfs­maður sendi­ráðs hefur þörf til að deila áróðri gegn inn­flytj­endum í einu frið­sælasta landi heims? Þessi skila­boð eru sorg­leg og nið­ur­lægj­andi fyrir Banda­ríkja­menn út um allan heim,“ skrifar Matthew Haynsen.

Mannlíf hafði sam­band við banda­ríska sendi­ráðið en fékk engin svör varð­andi þessa sam­fé­lags­miðla­her­ferð. Þá á Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, eftir að skipa nýjan sendi­herra í sendi­ráðið á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina