Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilaskurðlæknir syngur inn á plötu sjúklings síns

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn Atli Þór Sig­urðs­son lætur draum­inn ræt­ast síð­sum­ars með plötu­út­gáfu

Heilaskurðlæknir syngur inn á plötu sjúklings síns
Atli Þór Sig­urðs­son Draumur Atla Þór ræt­ist síð­sum­ars. Mynd: Aðsend

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn Atli Þór Sig­urðs­son, sem greind­ist með heila­æxli í fyrra, stefnir nú á að gefa út aðra af tveimur plötum sem hann ætl­aði sér að klára til að vinna úr til­finn­ingum sínum vegna veik­ind­anna og láta gamlan draum ræt­ast í leið­inni.

Sjá einnig: Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Mannlíf sló á þráð­inn til Atla Þórs og ræddi við hann um veik­indin, nýju plöt­una og óvæntan leynig­est á nýju plöt­unni.

Hvernig er heilsan þessa dag­ana?

„Heila­æxlið er á sínum stað og flog­unum hefur fækkað aðeins. Ennþá er verið að vinna í lyfj­unum og er ég nýkom­inn á nýtt floga­lyf þannig að það er fullt af svig­rúmi til bæt­inga.“

Atli seg­ist þurfa að lifa með veik­ind­unum en að allir séu með sitt Everest að klífa.

„Allir eru með sitt Everest og þetta mitt. Ég losna ekki við þetta en læri að lifa með þessu, á end­anum. Það er fylgst náið með æxl­inu sjálfu með mynda­töku tvisvar á ári og flogin eru þannig að ég fæ fyr­ir­boða þannig að ég get komið mér fyrir. Þetta kall­ast focal flog sem þýðir að þau eru stað­bundin og það sem betra er að ég er með með­vit­und og hreyfi­getu í hægri hlið­inni meðan á þessu stendur. Stærsta vanda­málið í dag er orku­leysi og smá lægðir inn á milli en ég finn að þær verða sjald­gæfari þannig að þetta er allt upp á við.“

Atli Þór Sig­urðs­sonAtli Þór stefnir á að gefa út tvær plötur á næst­unni

Þá seg­ist Atli aftur vera kom­inn á vinnu­mark­að­inn sem sé krefj­andi en muni von­andi batna.

„Ég er byrj­aður aftur í 100% starfi og þetta er krefj­andi suma daga að ráða ekki við sama áreiti og áður en það kemur von­andi með tím­anum. En ég gæti ekki verið þakk­lát­ari fyrir þennan magn­aða vinnu­stað sem Bláa Lónið er.“

Tón­listin hjálpar Atla mikið þegar kemur að lægð­unum sem koma yfir hann annað slagið.

„Hæðir og lægðir en þetta kemur allt með tím­anum og tón­listin hjálpar mikið, bæði til þess að ber­skjalda mig, koma til­finn­ingum í orð og kúpla mig út.“

Talandi um tón­list, Atli Þór stefnir á að gefa út plötu 24. ágúst næst­kom­andi.

„Í gegnum Karolina fund safn­að­ist fyrir fyrri plöt­unni þar sem ég fór all in með þetta. Er að vinna í tón­list­ar­mynd­bandi við eitt lag en á sama tíma við öll lög. Er að hugsa um að gefa út nokkur ein­tök á vinyl til þess að hafa áþreif­an­leg sönn­un­ar­gögn ef það kemur í ljós að inter­netið sé bóla og springur bara.

Platan, sem mun heita Heila­kvel, er að mestu til­búin og ef allt gengur upp kemur hún út á helstu streym­isveitum þann 24. ágúst. Platan inni­heldur átta lög, á ensku og íslensku, sem flestir á mínum aldri geta tengt við. Ég er mjög stoltur af nokkrum lögum og ennþá stolt­ari af nokkrum textum. Platan segir sögu frá upp­hafi til enda og mæli ég með að hlusta í réttri röð.“

Aðspurður segir Atli að dag­setn­ingin, 24. ágúst hafi ekki verið valin af handa­hófi.

„Hún markar aðra lífs­breyt­andi dag­setn­ingu en það vill svo til að upp­á­halds tengdapabbi minn hann Árni Ísberg, fékk heila­blóð­fall þennan dag árið 2023. Ef sú dag­setn­ing klikkar þá á konan afmæli þann 25. ágúst.

Eins og ég nefndi við þig síð­ast þá hefði ég ekki getað gert þetta án stuðn­ings allra í kringum mig og þá á ég ekki bara við fjár­hags­legs stuðn­ings, hvort sem það var á Karolina Fund eða ekki.“

Eru lögin öll samin og flutt af þér?

„Öll lögin og text­arnir eru samdir af mér en með aðstoð margra aðila í texta, útsetn­ingu og öðru. Þar sem við erum á Íslandi þá ákvað ég að opna faðm­inn og láta á reyna,“ svarar Atli og bætir við:

„Vinkona mín hún Guðbjörg Elsa og systir hennar Þóra unnu mikið með mér í útsetn­ingu flestra lag­anna. Vignir Snær tók upp og guð minn góður hvað hann er fær. Hrafn­hildur Magnea flytur eitt lag og bak­raddar í öðru lagi. KK ljáði mér hljóð­færi í tveimur lögum. Svo fékk ég Snorra bassa­leik­ara lán­aðan í nokkur lög og Gunnar trommu­leik­ara líka. En rús­inan í pylsu­end­anum er að heila­skurð­læknir minn hann Elfar Úlf­ars­son syngur á móti mér í lag­inu sem fjallar um okkar sam­skipti og er spilað á Ukulele.“

En hvernig er seinni platan sem þú ætlar að gefa út?

„Seinni platan verður aðeins hrárri eins og staðan er núna nema ég nái að safna mér fyrir frek­ari útfærslum. Mín helsta fjár­mögn­un­ar­leið er að bjóða upp á 2 tíma drop-in og vera með nýja teg­undin af quizi á TikTok.

Mörg lög eru komin vel af stað og eftir sam­tal við Júlí Heiðar þá á ég ekki von á öðru en að við tökum eitt lag saman en sjáum til.“

Sem nýr tón­list­ar­maður, er þetta flókið ferli eða fyrir hvern sem er?

„Það er ótrú­lega mik­ill lær­dómur sem fylgir þessu en þetta er klár­lega fyrir alla sem hafa áhuga. Það er bara að byrja að semja og finna sér gott fólk til að vinna með sér þangað til verkið er komið út. Svo þarf auð­vitað að koma efn­inu út í cosmosið og það er ekki fyrir alla. Ég hef þurft að fara vel út fyrir þæg­ind­ara­mman hvað það varðar. Er með nokkur mynd­bönd sem ég hrein­lega hafði ekki í mér að pósta. En ætti kannski að taka Eygló í Metabolic til fyr­ir­myndar og segja bara „f…. it”. Sjáum til.“

Er ein­hvers staðar hægt að fylgj­ast með ferl­inu?

Ég er ekki mik­ill sam­fé­lags­miðla­maður og það kemur skýrt fram í sumum text­unum. En núna, þar sem ég er tíma­bund­inn tón­list­ar­maður þá varð ég eig­in­lega að fara þessa leið til þess að koma þessu á fram­færi og reyna að ná því mark­miði sem ég setti mér að ná lagi í spilun í útvarpi Fyrir þá sem vilja fylgj­ast með ferl­inu þá má finna þetta hérna:

https://instagram.com/atlithormusic
https://www.facebook.com/atlithormusic

https://www.tiktok.com/@atlithor

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu