Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“

Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Atli Þór Sig­urðs­son Mynd: Aðsend

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni.

Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi síðan 2014. Hann er giftur Silju Ísberg en saman eiga þau börnin Elísu Ísberg (fædd 2013), Ölbu Ísberg (fædd 2020) og Orra Ísberg (fæddur 2023).

Æxlið

Það var í mars á síð­asta ári sem heim­ur­inn snérist á hlið­ina hjá Atla Þór og fjöl­skyldu hans en þá greind­ist hann með heila­æxli.

„Það æxl­að­ist þannig að ég grein­ist með heila­æxli 5.mars 2024 og fer í aðgerð 9.apríl til að taka sýni,“ segir Atli Þór í skrif­legu svari til Mannlífs og heldur síðan áfram: „Gengur vel og það er góð­kynja. Veikist hins vegar mikið og byrja að fá flog. Enda á því að útskrif­ast 24.maí eftir að hafa verið sex vikur á Land­spít­al­anum og fer á Reykja­lund í end­ur­hæf­ingu. Það er ekki fyrr en ég er búinn að ná fyrri styrk að ég raun­veru­lega með­tek að ég er með æxlið. Þá hefst úrvinnsla á því.“

Atli Þór hefur spilað á gítar síðan hann var ung­lingur en segir að það hafi tekið sig svo­lít­inn tíma að „þora að grípa í gít­ar­inn“ eftir að hann kom heim eftir end­ur­hæf­ing­una en inn­blást­ur­inn sótti hann í veik­indin:

„Ég kem heim 9.júlí og það tók mig smá tíma að þora að grípa í gít­ar­inn eftir allt þetta vesen en það var síðan ekk­ert mál og allt í einu hafði frá miklu að segja við sjálfan mig og æxlið og allt stússið og fór að skrifa texta og í fram­haldi af því lög. Áður en ég vissi var ég kom­inn með það mörg lög að ég þarf tvær plötur til að koma efn­inu út.“

Tónlistin þerapía

Þá segir Atli Þór að tón­listin hafi lengi virkað sem ein­hvers konar þerapía fyrir sig:

„Það gerð­ist mikið til sjálf­krafa að ég var með þessa tján­ing­ar­þörf og í raun­veru­legri hræðslu við mögu­legar afleið­ingar æxl­is­ins þá urðu til þessi lög og ákveðið concept. Ég vissi líka að tón­list gæti hjálpað mér að vinna úr til­finn­inga­flækj­unni og hef reynslu af því síðan ég var ungur.“

Atli Þór seg­ist mæla ein­dregið með því að fólk semji tón­list, þó svo að hæfi­leik­ana vanti:

„Ég setti mér því það mark­mið að gefa út allt þetta efni, á tveimur plötum árið 2025 sem ein­hvers­konar legacy og sem mik­il­væg til­finn­inga­úr­vinnsla. Ég mæli rosa­lega mikið með þess­ari vinnu þrátt fyrir skort á hæfi­leikum. Það eina sem þarf er gítar (eða annað hljóð­færi).“

Alltaf með gítarinn

En dreymir Atla Þór ekk­ert um frægð og frama?

„Ég byrj­aði að spila á gítar á ung­lings­árum og kunni ekki að syngja og hafði enga reynslu af tón­list. Það æxl­að­ist síðan þannig að ég var spilandi í öllum partýum sem ég fór í og í ein­hverjum við­burðum hjá fólki sem ég þekkti (afmælum, ferm­ing, brúð­kaup).

Ég sá aldrei fyrir mér að meika það og sé það ekki ennþá fyrir mér. Hætti raun­veru­lega að spila sam­hliða barn­eignum og annarri for­gangs­röðun í líf­inu en núna er varla hægt að eiga sam­tal við mig án þess að ég sé með gít­ar­inn við hönd. Ég er (eða var alla­vega) ágætis partýredd­ari en því miður ekki nógu góður til að græða á þessu.“

Atli Þór seg­ist þó hafa metnað og vilji gera þetta almenni­lega.

„Að sjálf­sögðu hefur maður metnað og vill gera þetta almenni­lega og það kostar þegar maður þekkir lítið af fólki í brans­anum. Ég er einnig með það mark­mið að halda ein­hvers­konar tón­leika á árinu og það verður álíka rekstur og Reykja­vík­ur­borg, mjög nei­kvæður fjár­hags­lega.

Þannig að ég reyni að hafa lögin áhlust­an­leg, alla­veg­anna þannig að fólk skipti ekki um stöð en á sama tíma að þetta sé raun­veru­lega frá mér. Þannig að þótt text­inn sé oft á tíðum svo­lítið sár þá reyni ég að hafa ein­hvern húmor í lag­inu eins og ég hef fyrir líf­inu, þótt það sé stundum erfitt. Ég er mjög opinn með þetta æxl­is­drasl og flogin og ég held að það hjálpi líka með úrvinnsl­una.“

Býður fram aðstoð sína

Að lokum mælir Atli Þór með því fyrir fólk að nota sköp­un­ina sem tól gegn and­legri van­líðan.

„Mæli með fyrir alla, yngri sem aldna, að nota sköpun sem tól til betr­unar á and­legum vanda þrátt fyrir skort á hæfi­leikum. Það getur sett hlut­ina í sam­hengi og passað að þú vor­kennir þér ekki of mikið. Maður reynir að til­einka sér æðru­leysi og er með­vit­aður um að maður stýri ekki vindum, maður getur aðlagað seglin.

Á sama tíma er það þannig að allir eiga rétt á því að líða illa, hvort sem það er „bara hitt“ eða „bara þetta“. Hver hefur sinn djöful að draga.

Ef ég get aðstoðað ein­hvern með tón­sköpun eða hvernig maður getur byrjað þá má hver sem er hafa sam­band við mig t.d á facebook (Atli Thor Sig­urðs­son) þrátt fyrir hæfi­leika­skort hjá mér eða við­kom­andi ein­stak­lingi.“

Hér má styrkja söfnun Atla Þórs og hlusta á nokkur lög af plöt­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu