Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilbrigðisráðherra telur að hægt sé að „einfalda núverandi þjónustukerfi“

Unnið er hörðum höndum að verk­efnum til að stytta bið barna eftir grein­ingum og þjón­ustu

Heilbrigðisráðherra telur að hægt sé að „einfalda núverandi þjónustukerfi“
Alma Möller Stýrir ráðu­neyti heil­brigð­is­mála Mynd: Stjórnarráðið

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur á und­an­förnum mán­uðum unnið að umfangs­mik­illi grein­ingu á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu við börn á öllum þjón­ustu­stigum heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Er mark­miðið það að skipu­leggja umbreyt­ingar með áherslu á að stytta bið­tíma, ein­falda boð­leiðir, auka skil­virkni og bæta þjón­ustu og er gert ráð fyrir því að hægt verði að kynna fyrsta áfanga fyr­ir­hug­aðra breyt­inga næst­kom­andi haust.

Eins og kemur fram í stjórn­ar­sátt­mál­anum leggur rík­is­stjórnin mikla áherslu á að stytta biðlista barna, auka einnig aðgengi að geð­heil­brigð­is­þjón­ustu og fjár­magna með­ferð­ar­úr­ræði vegna fíkni­vanda.

Alma D. Möller heil­brigð­is­ráð­herra hefur sett geð­heil­brigð­is­þjón­ustu við börn í for­gang. Hún ákvað að setja af stað vinnu í þeim til­gangi að greina þjón­ustu­ferla og núver­andi skipu­lag þjón­ust­unnar, og einnig hvort og hvaða breyt­ingar megi gera til úrbóta í þessum mála­flokki.

Kemur fram að í þess­ari vinnu hefur verið lögð afar rík áhersla á not­enda­sam­ráð, það er að segja, börn og aðstand­endur þeirra, meðal ann­ars til að skilja fjöl­breyttar og ólíkar þarfir not­enda og sýn þeirra á hvað helst þarf að bæta:

„Það er alveg ljóst að hægt er að ein­falda núver­andi þjón­ustu­kerfi, stytta boð­leiðir og auka sam­starf milli þjón­ustu­veit­enda“ segir Alma og nefnir að það séu „vís­bend­ingar um að í grein­ing­ar­ferlum, til dæmis vegna ADHD megi auka skil­virkni með meiri og mark­viss­ari sam­vinnu þeirra sem að grein­ingum koma, skýr­ari verk­ferlum, nýt­ingu raf­rænna lausna og betra upp­lýs­inga­flæði.“

Þá segir Alma að „síð­ast en ekki síst þurfa not­endur vand­aða upp­lýs­inga­gjöf og veg­vísun um þjón­ustu­kerfið í sam­ræmi við þarfir hvers og eins.“

Segir Alma það jafn­framt vera afar mik­il­vægt að lag­færa og „skýra ferla, áður en, eða sam­hliða því sem þjón­ustan er styrkt með auknu fjár­magni.“

Hún nefnir einnig að „Geð­heilsu­m­ið­stöð barna er sú stofnun sem oft­ast fram­kvæmir mat vegna gruns um ADHD eða röskun á ein­hverfu­rófi“ og þar hefur und­an­farið „verið unnið að ýmsum útbótum til að stytta bið eins og kostur er með breyt­ingum á verk­lagi.“

Alma kynnti sér störf mið­stöðv­ar­innar í mars á þessu ári og til­kynnti þá jafn­framt um aukið fjár­magn til að fjölga stöðu­gildum þar og stuðla þannig að styttri bið eftir grein­ingum.

Hún segir að „þjón­usta við börn með fjöl­þættan vanda hefur lengi verið umfjöll­un­ar­efni og ásteyt­ing­ar­steinn í sam­skiptum ríkis og sveit­ar­fé­laga, bæði hvað varðar fyr­ir­komu­lag þjón­ust­unnar og inni­hald“ en í mars síð­ast­liðnum var „und­ir­ritað sam­komu­lag sem felur í sér að ríkið tekur að sér fram­kvæmd og ber ábyrgð á fjár­mögnun sér­hæfðrar þjón­ustu við þennan hóp“en þarna er um að ræða „börn með miklar stuðn­ings­þarfir sem þarfn­ast m.a. tíma­bund­innar vist­unar utan heim­ilis.“

Kemur fram að í mars síð­ast­liðnum hafi heil­brigð­is­ráð­herra útdeilt styrkjum úr Lýð­heilsu­sjóði og voru þá meðal ann­ars veittar 27 millj­ónir króna í styrki til For­eldra­húss og SÁÁ vegna sál­fræði­þjón­ustu við börn, auk styrkja til fleiri verk­efna á sviði for­varna og þjón­ustu sem snýr að börnum.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið og mennta- og barna­mála­ráðu­neytið vinna „sam­eig­in­lega að ýmsum verk­efnum til að bæta þjón­ustu við börn“ og má þar nefna aðgengi að „heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir börn sem vist­ast á Stuðlum og aðgerðir til að sporna við ofbeldi gegn börnum og meðal barna,“ sagði Alma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina