Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bið eftir geislameðferðum við „krabbameinum er komin langt úr hófi fram“

Fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­fé­lags­ins segir að „einn af hverjum þremur Íslend­ingum getur vænst þess að fá krabba­mein ein­hvern tíma á ævinni og öll erum við aðstand­endur“

Bið eftir geislameðferðum við „krabbameinum er komin langt úr hófi fram“
Halla Þor­valds­dóttir Fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands Mynd: Aðsend

Halla Þor­valds­dóttir fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­fé­lags­ins segir í grein að „einn af hverjum þremur Íslend­ingum getur vænst þess að fá krabba­mein ein­hvern tíma á ævinni og öll erum við aðstand­endur.“

Hún færir í tal að það sé mis­viðra­samt á land­inu þessar vik­urnar, skýja­bakkar á ferð­inni en bjart með köflum, og segir Halla að þetta sé „staða sem við Íslend­ingar þekkjum og erum þjálfuð í að takast á við. Við höfum regnjakk­ann við hönd­ina þrátt fyrir að sólin skíni, því við þurfum að vera til­búin fyrir hvað sem er.“

Halla nefnir að einn af hverjum þremur Íslend­ingum „getur vænst þess að fá krabba­mein ein­hvern tíma á ævinni og öll erum við aðstand­endur, en sem betur fer eru stöðugar fram­farir í grein­ingu og með­ferð krabba­meina, afrakstur vís­inda­starfs um allan heim, sem leiðir bæði til þess að almennt lifir fólk lengur, eftir að hafa fengið krabba­mein og dán­ar­tíðni af völdum þess lækkar.“

Hún segir að það sé heldur að „létta til en á sama tíma eru blikur á lofti. Krabba­meins­fé­lagið hefur lengi vakið athygli á nauð­syn þess að koma upp skýrri, tíma­settri og fjár­magn­aðri krabba­meins­á­ætlun um hvernig takast eigi á við þær stóru áskor­anir sem fylgja hraðri fjölgun krabba­mein­stil­vika og sívax­andi hópi fólks sem þarf margs konar heil­brigð­is­þjón­ustu eftir krabba­mein.“

Að með­al­tali greindust 2.055 krabba­mein­stil­vik á árunum 2019 til 2024, en Krabba­meins­fé­lagið spáir því að til­vikin verði eitt­hvað um 3.000 tals­ins árið 2040. Í lok árs 2024 voru 19.154 á lífi sem höfðu fengið krabba­mein og spár benda til þess að hóp­ur­inn telji að minnsta kosti 27.000 árið 2040.

Segir Halla að „þessi aukn­ing er ekki nýtil­komin. Til sam­an­burðar voru krabba­mein­stil­vikin að með­al­tali 1.190 á árunum 1999–2003. Fjölg­unin nemur þannig 67% á 20 ára tíma­bili, langt umfram íbúa­fjölgun, og fram til árs­ins 2040 er spáð um 50% aukn­ingu til við­bótar.“

Halla segir ein­fald­lega að heil­brigð­is­þjón­ustan hér á landi ráði illa við fjöld­ann „í dag og er ekki í stakk búin til að taka við aukn­ing­unni að óbreyttu“ og bætir því við að „á bak­við allar þessar tölur er svo auð­vitað mik­ill fjöldi fólks. Það er krefj­andi verk­efni fyrir ein­stak­linga og fjöl­skyldur að takast á við krabba­mein og því fylgir mikil óvissa.“

Halla er á því að spurn­ingin sem blasir við íslensku sam­fé­lagi sé sú hvernig við ætlum standa með öllu þessu fólki og bregð­ast við einni stærstu heil­brigð­is­á­skorun sam­tím­ans og hún spyr hvort að við „for­gangs­röðum fjár­munum til að tryggja bestu mögu­lega með­ferð og stuðn­ing þannig að hægt sé að njóta lífs­ins með og eftir krabba­mein?“

Halla spyr hvort við sem þjóð höfum kjark til að taka ákvarð­anir er leiða til þess að færri fái krabba­mein í fram­tíð­inni og einnig hvort við séum til­búin til að gera breyt­ingar í skatta­málum, auka hreyf­ingu á öllum skóla­stigum eða halda í tak­mark­anir á áfeng­is­sölu, svo eitt­hvað sé nefnt.

Hún segir að „afstaða Krabba­meins­fé­lags­ins er skýr en við þurfum afger­andi svör og skýra stefnu frá stjórn­völdum.

Í máli Höllu kemur fram að bið eftir geisla­með­ferðum við sumum „krabba­meinum er komin langt úr hófi fram, vís­bend­ingar eru um að bið eftir skurð­að­gerðum, við sumum meinum, sé líka að lengj­ast og við höfum dreg­ist aftur úr varð­andi inn­leið­ingu krabba­meinslyfja.“

Halla ljær máls á því að Krabba­meins­fé­lagið hafi í nokkur ár „talað fyrir brýnni þörf fyrir nýja dag- og göngu­deild blóð- og krabba­meins­lækn­inga á Land­spít­ala, sem löngu hefur sprengt utan af sér hús­næðið. Eins og áður sagði fær hluti fólks með krabba­mein ekki geisla­með­ferð á réttum tíma, vegna þess að nauð­syn­legt hús­næði, tækja­bún­aður og starfs­fólk er ekki til staðar.“

Að mati hennar eru í raun og veru „dökkir skýja­bakkar framundan, sem ógna árangri hér á landi og geta gert það að verkum að við drög­umst aftur úr nágranna­þjóð­unum.“

Krabba­meins­fé­lagið er með stærstu hags­muna­sam­tök­unum á Íslandi og lætur sig allt varða er snýr að krabba­meinum og félagið fund­aði nýverið með for­stjóra og for­svars­fólki krabba­meins­þjón­ust­unnar á Land­spít­ala og lýsti þar yfir áhyggjum sínum bæði varð­andi stöð­una í dag og til fram­tíðar.

„Sem betur fer tal­aði félagið ekki fyrir daufum eyrum á fund­inum“ segir Halla og bætir við að „engum dylst að gríð­ar­legur metn­aður er hjá starfs­fólki spít­al­ans um að krabba­meins­þjón­usta hér á landi sé fyrsta flokks.“ Hún segir það sama gilda um „starfs­fólk á öðrum heil­brigð­is­stofn­unum sem sinna fólki með krabba­mein.“

Halla bendir á að „innan spít­al­ans“ sé einnig verið að „leita leiða til að leysa hús­næð­is­vanda dag- og göngu­deildar til bráða­birgða og í sam­starfi við heil­brigð­is­ráðu­neyti og Sjúkra­trygg­ingar er unnið að því að leysa bið eftir geisla­með­ferð, bæði með auk­inni mönnun, meðal ann­ars með ráðn­ingu starfs­fólks erlendis frá og samn­inga­um­leit­unum við sjúkra­hús erlendis.“

Halla bendir á að „starfs­fólkið gerir þetta ekki eitt síns liðs“ því traustur stuðn­ingur og skiln­ingur „stjórn­valda er nauð­syn­legur.“

Þann 2. júní síð­ast­lið­inn steig Alþingi „mik­il­vægt skref“ með sam­þykkt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um „aðgerða­á­ætlun í krabba­meins­málum“ til árs­ins 2030 og er óhætt að segja að „ein­hugur hafi verið á Alþingi í mál­inu, allir þing­menn­irnir 57 sem voru við­staddir atkvæða­greiðsl­una studdu hana, þvert á flokka,“ segir Halla.

Að hennar mati er aðgerða­á­ætl­unin „mjög gott fyrsta skref í átt að virkri krabba­meins­á­ætlun og blæs okkur byr í brjóst en björn­inn er ekki unn­inn“ því „áætl­unin er ein­ungis að mjög litlu leyti fjár­mögnuð og nær ekki til allra þátta, til dæmis ekki hús­næðis, tækja, lyfja­mála eða mönn­unar.“

Hún segir að hins vegar séu í henni aðgerðir er munu skipta máli til að tryggja áfram­hald­andi lækkun dán­ar­tíðni, aukna lifun og bætt lífs­gæði þess stóra hóps sem fær krabba­mein og aðstand­enda þeirra.

„Þetta redd­ast ekki af sjálfu sér“ segir Halla og leggur áherslu á að við „þurfum að vera til­búin, því með skýrum, mark­vissum og víð­tækum aðgerðum og réttri for­gangs­röðun fjár­muna getur skýja­bakk­inn gefið eftir og sólin náð að skína.“

Hún segir að lokum að „almenn­ingur leggur traust sitt á Krabba­meins­fé­lagið í bar­átt­unni gegn krabba­meinum sem félagið rekur fyrir öfl­ugan stuðn­ing fólks­ins í land­inu“ og félagið tekur hlut­verk sitt sem öfl­ugan málsvara almenn­ings „alvar­lega og mun fylgj­ast þétt með fram­gangi mála, því lífið liggur við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina