Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir stjórnvöld hafa viljandi sofið á verðinum gagnvart hægri öfgum

Jasmina Vojzovic hefur áhyggjur af upp­gangi hægri öfga á Íslandi

Segir stjórnvöld hafa viljandi sofið á verðinum gagnvart hægri öfgum
Jasmina Vojzovic Jasmina hefur áhyggjur af þró­un­inni Mynd: Facebook

Jasmina Vojzovic, ráð­gjafi og stjórn­mála­fræð­ingur gagn­rýnir harð­lega nýlegar fréttir af hópi fyrrum ofbeld­is­manna, sem kallar sig Skjöld Íslands.

Hópurinn gekk á föstu­dag um miðbæ Reykja­víkur og sögð­ust með­lim­irnir vera að vernda íslensk gildi og bregð­ast við of linri inn­flytj­enda­stefnu stjórn­valda.

Jasmina, sem er upp­runa­lega frá Bosníu hefur ára­langa reynslu af því að vinna í mál­efnum inn­flytj­enda, hæl­is­leit­enda og flótta­fólks, bæði hjá Reykja­vík­ur­borg og svo rekur hún nú eigið ráð­gjafa­fyr­ir­tæki.

Í færslu sinni lýsir Jasmina atburð­inum sem „hótun“ gegn lögum, rétt­ar­rík­inu og mann­rétt­indum.

„Þeir eru komnir með nóg,“ skrifar Vojzovic, en spyr áleit­inna spurn­inga um hvað það nákvæm­lega merkir:

„Hvað er það sem þeir hafa fengið nóg af? Lögum? Rétt­ar­rík­inu? Samkennd með minni­hluta­hópum?“

Vojzovic gagn­rýnir hvernig stjórn­völd hafi annað hvort verið sof­andi eða „sofnað vilj­andi“, sem hafi leitt af sér öfga­full við­brögð:

„Þeir full­yrða að stjórn­völd séu sof­andi en í raun má segja að þau hafi ein­fald­lega sofnað vilj­andi. Og hvíldin þeirra hefur gefið af sér eitt­hvað langt hættu­legra en þreytu. Hún hefur fætt öfgarnar.“

Hún bendir á auk­inn fjand­skap gagn­vart hæl­is­leit­endum og inn­flytj­endum, ásamt harðn­andi umræðu á sam­fé­lags­miðlum. Hún skorar á stjórn­völd að bregð­ast við slíkri umræðu og hat­urs­orð­ræðu:

„Hvað ger­ist þegar lög­gjaf­inn rýrir traust á mann­rétt­inda­sátt­málum? Þegar stjórn­völd tala með afneitun um kerf­is­bundið brot á rétt­indum fólks á flótta? Þegar ekki er brugð­ist við hat­urs­orð­ræðu og áróðri gegn inn­flytj­endum og hæl­is­leit­endum heldur er það látið við­gang­ast í nafni „þjóðar­ör­yggis“ eða „aðgerða gegn kerf­is­leysi“? Það ger­ist nákvæm­lega þetta. Þá mæta fyrrum glæpa­menn í svörtum jökkum niður á torg og segja: „Við tökum þetta yfir“.“

Vojzovic lýsir hópnum sem „hótun“ og fremur alvar­legar ásak­anir gegn rétt­ar­rík­inu sjálfu.

„Þetta er ekki gagn­rýni á stjórn­sýslu. Þetta er hótun. Þetta er nið­ur­brjót­andi afstaða gagn­vart rétt­ar­ríki, mann­rétt­indum og lýð­ræði.“

Hún varar við að fórn­ar­lömbin verði sér­stak­lega við­kvæmir hópar eins og hæl­is­leit­endur, inn­flytj­endur og aðrir í útjaðri sam­fé­lags­ins.

„Og þeir sem verða fórn­ar­lömbin eru einmitt þeir sem eru minnst varðir: hæl­is­leit­endur, inn­flytj­endur, fólk sem hefur enga rödd, enga tals­menn í kerf­inu og engin völd.“

„Annars erum við ekki að tala um öryggi, heldur upp­hafið að sundr­uðu, skelfi­legu sam­fé­lagi“
Jasmina Vojzovic

Hún gefur stjórn­völdum skýrt tæki­færi til að bregð­ast alvar­lega við. „Ekki þykj­ast hneyksl­ast núna. Þetta var fyrir löngu fyr­ir­séð. Ef stjórn­völd ætla sér að bregð­ast við þessu af fullri alvöru og end­ur­heimta traust og stjórn á réttar­ör­yggi borg­ar­anna þá þarf það að ger­ast núna. Ekki með orða­gjálfri heldur með skýrum aðgerðum: Fordæma þessar aðgerðir opin­ber­lega og afdrátt­ar­laust. Tryggja að lög­regla verji öll mann­rétt­indi, ekki bara hags­muni háværra hópa. End­ur­skoða ábyrgð sína í því að þessi staða varð til.“

Jasmina ótt­ast fram­haldið. „Annars erum við ekki að tala um öryggi, heldur upp­hafið að sundr­uðu, skelfi­legu sam­fé­lagi þar sem valdið liggur ekki lengur hjá lýðnum heldur þeim sem eru til­búnir að beita hót­unum, ofbeldi og þöggun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina