Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Varar þjóðina við: Trump ræður yfir gögnum Íslendinga

Bendir á að Trump hafi hótað inn­limun nágranna­ríkis Íslands og ráði yfir gögnum Íslend­inga.

Varar þjóðina við: Trump ræður yfir gögnum Íslendinga
Donald Trump For­set­inn vill inn­lima Grænland. Íslensk yfir­völd hafa sett allt staf­rænt stjórn­kerfi lands­ins undir hans for­ræði. Mynd: Shutterstock

„Það er alger­lega ábyrgð­ar­laust og felur í sér hættu fyrir Íslend­inga,“ segir Mörður Áslaug­ar­son í aðvörun til íslensku þjóð­ar­innar, þar sem hann bendir á hvernig nær öll gögn íslenskra rík­is­stofn­ana eru nú hýst í gagna­verum banda­rískra stór­fyr­ir­tækja sem lúta beint valdi Banda­ríkja­stjórnar, sem hafi meðal ann­ars hótað að yfir­taka Grænland.

Mörður er fram­kvæmda­stjóri vef­hýs­ing­ar­fé­lags­ins 1984 og fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í RÚV ohf. Í pistli sem birt­ist á Vísi í morgun varpar Mörður ljósi á hvernig fyr­ir­tæki eins og Microsoft, Amazon, Apple og Google geta verið neydd til að afhenda öll gögn íslenskra rík­is­stofn­ana til banda­rískra yfir­valda, án þess að nokkur sé upp­lýstur um það. „Það þarf ekki einu sinni dóm­ara­úr­skurð. Það þarf ekki einu sinni að láta vita,“ skrifar hann.

Hann rifjar upp hvernig vinur hans Nicolas Merrill, sem neit­aði að afhenda gögn eftir að hafa fengið svo­kallað „þjóðar­ör­ygg­is­bréf“ í Banda­ríkj­unum, missti fyr­ir­tæki sitt fyrir vikið. Í flestum til­fellum, segir hann, verði fólk að lúta fyr­ir­mælum stjórn­valda – og það megi aldrei segja frá.

Bandarísk yfirvöld með lykilinn að íslenska stjórnkerfinu

Mörður telur að íslensk stjórn­völd hafi sofið á verð­inum. „Nær öll stjórn­sýsla á Íslandi er staf­ræn ... allt er þetta falið banda­rískum fyr­ir­tækjum,“ skrifar hann og nefnir meðal ann­ars að Land­spít­al­inn, Trygg­inga­stofnun, dóm­stólar, sýslu­menn og island.is noti öll þjón­ustu sem er háð banda­rískum lögum – þar á meðal CLOUD-lög­unum sem Donald Trump stað­festi árið 2018.

Þau lög skylda banda­rísk fyr­ir­tæki til að afhenda banda­rískum yfir­völdum gögn, jafn­vel þótt þau séu geymd í öðrum löndum. Mörður bendir sér­stak­lega á nýlegt dæmi þar sem Microsoft lok­aði tölvu­póst­þjón­ustu fyrir dóm­ara við Alþjóða glæpa­dóm­stólnum – ein­fald­lega vegna þess að Trump lík­aði ekki störf dóms­ins, en hann greip til refsi­að­gerða gegn dóm­stólnum og sak­sókn­ara hans eftir alþjóð­lega hand­töku­skipun gegn Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, og fleirum vegna stríðs­glæpa gegn Palest­ínu­mönnum.

„Þetta er pólitískt. Þetta er siðferðilegt.“

„Að fela banda­rískum fyr­ir­tækjum varð­veislu rík­is­gagna er ekki bara tækni­leg ákvörðun. Hún er póli­tísk, varðar lýð­ræðið og sjálfs­for­ræði þjóð­ar­innar,“ segir Mörður. Hann bendir á að núver­andi for­seti Banda­ríkj­anna hafi „fyrir skemmstu hótað að inn­lima Grænland og Kanada“ og að hug­takið „þjóðar­ör­yggi“ geti í munni Banda­ríkja­stjórnar þýtt „næstum hvað sem er“.

„Íslensk yfir­völd ættu, með þetta í huga, að end­ur­skoða þá stefnu að fela banda­rískum fyr­ir­tækjum vörslu og miðlun við­kvæmra gagna borg­ar­anna,“ segir Mörður.

Kallar eftir svörum frá ríkisstjórninni

Mörður segir að frum­varp um skipan upp­lýs­inga­tækni rík­is­ins, sem nú liggi fyrir, setji ábyrgð­ina í hendur fjár­mála­ráð­herra. Það sé „ein­kenni­leg ráð­stöfun“, þar sem málið ætti að vera á borði for­sæt­is­ráð­herra eða dóms­mála­ráð­herra vegna þjóðar­ör­yggis.

„Ég kalla eftir afstöðu for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra,“ skrifar hann og krefst rök­stuðn­ings fyrir því hvers vegna Ísland hafi ákveðið að fela erlendu stór­veldi yfir­ráð yfir gögnum um heil­brigð­is­mál, dóms­mál og auð­kenn­ingu borg­ar­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum