Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Læknirinn hótar Hödd málsókn

„Ég hef aldrei brotið á nokkrum ein­stak­lingi,“ segir lækn­ir­inn, sem Hödd Vil­hjálms­dóttir ásakar um ofbeldi, í yfir­lýs­ingu til Mannlífs.

Læknirinn hótar Hödd málsókn
Til í dóm­stól­ana Almanna­teng­ill­inn og lög­fræð­ing­ur­inn seg­ist fagna meið­yrða­máli. Mynd: X-fyrrum Twitter

Læknir sem Hödd Vil­hjálms­dóttir, lög­fræð­ingur og almanna­teng­ill, hefur sakað opin­ber­lega um alvar­legt kyn­ferð­is­of­beldi í nánu sam­bandi, hefur sent Mannlífi yfir­lýs­ingu þar sem hann ber af sér sakir og boðar meið­yrða­mál gegn Hödd. Hann segir hana hafa fært fram „við­ur­styggi­legar og glóru­lausar“ ásak­anir á Facebook og nafn­greint hann í því sam­hengi.

„Ég hef aldrei brotið á nokkrum ein­stak­lingi – þvert á móti hef ég helgað mig því að aðstoða aðra,“ segir lækn­ir­inn, Hörður Ólafsson. Mannlíf sagði frá frá­sögnum Haddar í síð­ustu viku, en án þess að nafn­greina lækn­inn.

„Ég heyrði af ásök­unum hennar á meðan ég var í fríi erlendis en brást við strax með því að senda henni bréf þar sem henni var til­kynnt um að mál yrði höfðað til að ómerkja ummælin,“ segir hann í yfir­lýs­ingu til Mannlífs.

Hödd sagði á Facebook-síðu sinni í gær að hún sé ekki aðeins til­búin í meið­yrða­mál heldur fagni því. „Meið­yrða­mál flott … Tek fagn­andi á móti því.“

„Ég veit ekki á hvaða veg­ferð Hödd er, en ásök­unum hennar hafna ég með öllu,“ segir mað­ur­inn enn­fremur. „Ég hef aldrei brotið á nokkrum ein­stak­lingi – þvert á móti hef ég helgað mig því að aðstoða aðra. Við Hödd áttum í nokkra mán­aða sam­bandi sem hófst fyrir rúmum 15 árum síðan sem ég sleit um ára­mótin 2010/2011. Við hitt­umst einu sinni nokkrum mán­uðum eftir að sam­bandi okkar lauk og skildum þá í góðu og síðan þá hef ég ekki haft nein sam­skipti við hana.“

Maðurinn boðar að hann muni stefna Hödd fyrir meið­yrði, dragi hún ekki stað­hæf­ingar sínar um hann til baka. „Dragi Hödd ásak­anir sínar til baka, og biðj­ist hún fyr­ir­gefn­ingar, mun ég fyr­ir­gefa henni. Öðrum kosti sé ég mér ekki annað fært en að leita atbeina dóm­stóla eins og ég hef til­kynnt henni.“

Hödd greinir frá því á Facebook-síðu sinni í kvöld að hún hafi ekki fengið bréfið enn. Hún seg­ist standa „gall­hörð“ við færslu sína um mann­inn. „Hug­ar­á­stand sjúkra ein­stak­linga leiðir þá oft út í horn. Eina sem þeir geta er að afneita en sann­leik­ur­inn mun að end­ingu sigra. Staðan er samt sú að ekk­ert bréf hefur mér borist. Líklega er gáfu­legt að senda ekki hót­anir um mála­ferli með bréf­dúfum.“

Þá hefur DV greint frá því að eig­in­kona Harðar, Jórunn Frí­manns­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur blandað sér í málið með færslu á Facebook. Þar seg­ist hún full­viss um Hödd muni tapa dóms­máli.

„Ég þekki Hörð vel og trúi því ekki að hann hafi nokkurn tíma beitt því ofbeldi sem hann er ásak­aður um eða hafi þær kenndir sem látið er í veðri vaka. Með inni­halds­lausum ásök­unum og án dóms og laga ákveður Hödd Vil­hjálms­dóttir að setja á Facebook síðu sína ásak­anir á hendur Herði sem hann þarf nú að verj­ast, eigi hann að halda sínu óflekk­aða mann­orði. Þetta gerir hún án þess að nokkur ákæra hafi verið lögð fram eða minnstu sann­anir bornar á borð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina