Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bogi hneykslast á sögufölsunum leiðsögumanna

„Þetta er ekki í fyrsta sinn og verður ekki í það síð­asta þar sem maður heyrir af leið­sögu­mönnum fara með hreint fleipur“

Bogi hneykslast á sögufölsunum leiðsögumanna
Bogi Ágústs­son Frásögn Unu Mar­grétar af sögu­fölsun leið­sögu­manna hefur vakið athygli og Bogi deildi frá­sögn hennar hneyksl­aður. Mynd: Bogi Ágústsson

Bogi Ágústs­son frétta­maður sagð­ist ekki trúa starfs­háttum leið­sögu­manna þegar hann deildi frá­sögn Unu Mar­grétar Jóns­dóttur á Facebook. Um helg­ina deildi Una Margrét, dag­skrár­gerð­ar­kona hjá RÚV, sögu um hvernig hún hefði staðið leið­sögu­mann á Aust­ur­velli af því að segja ferða­mönnum ósann­indi um hvernig Íslend­ingur hlutu sjálf­stæði. Þá hafi leið­sögu­mað­ur­inn haldið því fram að Íslend­ingar hafi nýtt tæki­færið á meðan Danmörk var her­numin af Þjóð­verjum og lýst yfir sjálf­stæði án þess að kóng­ur­inn gæti gripið inn í. Una Margrét seg­ist hafa leið­rétt leið­sögu­mann­inn en á móti hafi hann orðið bál­reiður og kallað á eftir henni „Má aldrei hafa neitt gaman?“.

Frásögn Unu Mar­grétar hefur vakið mikla athygli. Meðal ann­ars deildi Bogi Ágústs­son færsl­unni hennar í Facebook hóp­inn Bakland ferða­þjón­ust­unnar. „Maður trúir ekki að svona bull sé kennt í Leið­sögu­skól­anum en þetta er ekki í fyrsta sinn og verður ekki í það síð­asta þar sem maður heyrir af leið­sögu­mönnum fara með hreint fleipur,“ skrif­aði Bogi við færsl­una.

Fólk virð­ist ósam­mála í athuga­semdum um hvort frá­sögn leið­sögu­manns­ins eigi rétt á sér. Mörg vilja meina að leið­sögu­menn eiga að vera skemmti­kraftar og megi fríska upp á sög­una, svo lengi sem er ekki farið í algjörar sögu­fals­anir.

Þessi sér­staka útgáfa af sög­unni virð­ist hafa orðið algeng­ari frá­sögn und­an­farið þar sem hún er ein­föld og skemmti­leg. Raunin er hins vegar allt önnur en ekki síður skemmti­legri. Ísland fékk full­veldi árið 1918 með sam­bands­lög­unum. Full­valda þjóð með kon­ung Dan­merkur sem þjóð­ar­leið­toga. Í sam­bands­lögum var ákvæði um að hægt væri að segja upp sam­band­inu eftir 25 ár en skil­yrðin virt­ust nán­ast óraun­hæf fyrir Ísland að geta sagt upp ein­hliða. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla var nauð­syn­leg með 75% kjör­sókn og 75% atkvæða þurftu að sam­þykkja rift­ing­una. Svona há kjör­sókn hafði aldrei náðst á Íslandi á þeim tíma og mörgum þótti ólík­legt að hægt væri að ná þessum skil­yrðum. Það var hins vegar met­kjör­sókn þegar loks kom að því að kjósa um sjálf­stæði Íslands og nýja stjórn­ar­skrá árið 1944. Kjör­sóknin 98% og 95% sam­þykktu að Ísland lýsti yfir sjálf­stæði. Með þessu sýndu Íslend­ingar seiglu sína í sjálf­stæð­is­bar­átt­unni.

Í nýrri færslu bregst Una Margrét Jóns­dóttir við gagn­rýni sem hún hefur fengið í kjöl­far athygl­innar sem fyrri færsla hennar fékk. Þar á meðal hafði leið­sögu­maður sagt að Una Margrét hafi oft kallað hann og aðra leið­sögu­menn vit­leys­inga og að hún hafi áreitt ferða­menn. „Þetta eru ein­fald­lega ósann­indi,“ sagði Una Margrét í færsl­unni.

Hún segir frá því hvernig árið 2023 varð hún fyrst vitni að leið­sögu­manni á Aust­ur­velli segja ferða­mönnum að Jón Sig­urðs­son hafi fyrstur sent Dana­kon­ungi bréf í seinni heims­styrj­öld að biðja um sjálf­stæði Íslend­inga. „Mig rak í rogastans að heyra því haldið fram að maður sem dó árið 1879 hefði skrifað bréf á 20. öld. Leið­sögu­mað­ur­inn var ung stúlka og ég vildi vera til­lits­söm, hugs­aði að hér væri lík­lega um sér­stakt til­vik að ræða. Ég tók hana því til hliðar og sagði henni eins­lega að Jón Sig­urðs­son hefði verið uppi á 19. öld. Þá kom í ljós að stúlkan hélt að styttan væri af Jónasi Hall­gríms­syni,“ skrifar Una Margrét. Eftir þetta atvik hefur hún lagt oftar við hlustir þegar leið­sögu­menn leiddu erlenda ferða­menn um Aust­ur­völl og segir sögu­fals­anir algengar. Þá finnst henni einnig ljóst frá athuga­semdum við færsl­una í Bakland ferða­þjón­ust­unnar að mennt­aðir leið­sögu­menn telji að þeir megi fara frjálst með sög­una fyrir afþrey­ing­ar­gildi. „Sem sagt: all­stór hluti íslenskra leið­sögu­manna sér ekk­ert athuga­vert við það að ljúga að útlend­ingum og fá borgað fyrir það. Það finnst mér sann­ar­lega dap­ur­legt,“ segir Una Margrét í færsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina