Matvælastofnun varar við neyslu á Jelly strip XL, sem Lagsmaður flytur inn en þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST
Varan inniheldur óleyfilegu aukefnin E407, E410 og E415 og getur verið hættuleg m.t.t. köfnunar og þá sérstaklega fyrir börn. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum Evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF.

Mynd: MAST































Athugasemdir