Karen Kjartansdóttir, almannatengill og fyrrverandi fjölmiðlakona, birtir tvær myndir á samfélagsmiðli sínum í gær þar sem hún ber saman mætingu á fundinn Þjóð gegn þjóðarmorði sem haldinn var í gær við mætinguna á mótmæli Ísland - Þvert á flokki en samtökin hafa gert kröfu á hertari aðgerðir í hælisleitendamálum Íslands.
„Talnaglöggir meðlimir rasistanna halda því fram að fleiri hafi mætt á þeirra fund. Það eitt segir ýmislegt um greiningarhæfni og talnalæsi þess hóps,“ skrifar Karen um málið.
Ljóst er á myndunum að talsverður fjöldamunur er milli myndanna en ekki var aðeins fundað á Alþingi í gær heldur á mörgum stöðum á landinu og þótti mæting á þeim stöðum einnig góð.

































Athugasemdir