Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorbjörg vill ná stjórn á landamærunum

Í gær kynnti rík­is­stjórnin þing­mála­skrá sína fyrir kom­andi þing­vetur

Þorbjörg vill ná stjórn á landamærunum
Þorbjörg S Gunn­laugs­dóttir ráð­herra Vill herða tökin og ein­falda reglu­verkið varð­andi inn­flytj­endur Mynd: Stjórnarráðið

Í gær kynnti rík­is­stjórnin þing­mála­skrá sína fyrir kom­andi þing­vetur. Málin eru 157 tals­ins og dóms­mála­ráð­herra mælir fyrir 18 af þeim málum.

Mun Þorbjörg S Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra mæla fyrir fimm frum­vörpum til að ná stjórn í útlend­inga­málum.

Í þing­mála­skrá 2025-2026 verður áhersla lögð á til­tekt í útlend­inga­málum - sem felur meðal ann­ars í sér að afnema sér­ís­lenskar reglur og sam­ræma íslenska lög­gjöf við lög­gjöf Norð­ur­landa í útlend­inga­málum.

„Við ætlum að ná góðri stjórn á landa­mær­unum. Við megum ekki leyfa jöðr­unum að stýra umræð­unni, heldur þurfum við að ráð­ast í nauð­syn­legar aðgerðir. Og það er ég að gera núna. Á sama tíma ber okkur skylda til að taka vel á móti því fólki sem hér sest að þannig að fólk njóti raun­veru­legra tæki­færa. Þau mál sem ég mun mæla fyrir í haust eru öll mik­il­væg skref í átt að því að tryggja vel­ferð íbúa lands­ins til fram­tíðar,“ segir Þorbjörg S Gunn­laugs­dóttir, dóms­mála­ráð­herra.

Þau mál sem dóms­mála­ráð­herra mun leggja fram hafa verið unnin með hlið­sjón af þeim mark­miðum er nefnd eru í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um að gæta verði sam­ræmis við reglur nágranna­ríkja á sviði útlend­inga­mála sem og að styrkja stjórn­sýsl­una hvað þessi mál varðar.

Síð­ast­liðið vor skip­aði Þorbjörg starfs­hóp er ætlað var að yfir­fara reglur um dval­ar­leyfi hér á landi. Verða nið­ur­stöður hóps­ins kynntar fljót­lega, en fyrstu nið­ur­stöður hafa leitt í ljós að á árunum 2017 til 2024 fjölg­aði íbúum Íslands umtals­vert meira á við hin Norð­ur­löndin; og að á síð­ustu árum voru útgefin allt að 64% fleiri dval­ar­leyfi á Íslandi en á öðrum Norð­ur­löndum í hlut­falli við íbúa­fjölda hvers lands.

Á árunum 2017-2024 fjölg­aði íbúum Íslands fimmt­án­falt á við Evr­ópu­með­al­tal og næstum fjór­falt á við hin Norð­ur­löndin. Íbúum Íslands hefur fjölgað um rúm­lega 50.000 frá 2017.

Frumvarp til breyt­inga á lögum um útlend­inga og lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga verður lagt fram í októ­ber þar sem lagt er til að atvinnu- og dval­ar­leyfi verði felld í einn og sama far­veg­inn til ein­föld­unar og hags­bóta fyrir umsækj­endur.

Fram­kvæmd atvinnu­leyfa verður þá færð nær þeirri fram­kvæmd sem tíðkast á Norð­ur­lönd­unum og jafn­framt verður hægt að leggja grunn að heild­ar­end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi atvinnu- og dval­ar­leyfa hér á landi.

Greining starfs­hóps­ins leiddi í ljós að gjald­skrá fyrir dval­ar­leyfi á Íslandi er sú lægsta í sam­an­burði Norð­ur­landa í nær öllum flokkum og hyggst ráð­herra hækka gjald­skránna til sam­ræmis hvað þetta varðar.

„Íslensk stjórn­völd hafa veitt hlut­falls­lega fleiri dval­ar­leyfi en aðrar Norð­ur­landa­þjóðir án þess að spyrja gagn­rýnna spurn­inga. Við þurfum að horfast í augu við það að fólks­fjölg­unin hefur verið kraft­mikil, með til­heyr­andi álagi á inn­viði. Aðgerð­irnar okkar byggja á gögnum og grein­ingum. Grein­ingum sem lágu ekki fyrir og eru nauð­syn­legar til þess að hægt sé að ná böndum á vand­anum,“ segir ráð­herra.

Með frum­varp­inu verða einnig hert skil­yrði fyrir útgáfu dval­ar­leyfa náms­manna til að stemma stigu við óeðli­legri ásókn sem núgild­andi ákvæði lag­anna hafa skapað.

Breyt­ing­arnar lúta m.a. að atvinnu­þátt­töku náms­manna og fjöl­skyldu­sam­ein­ingum fyrir aðstand­endur náms­manna.

Á vor­þingi mun ráð­herra leggja fram frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á dval­ar­leyfisk­afla laga um útlend­inga til sam­ræmis við lög­gjöf Norð­ur­landa.

Ráðherra mun þá end­ur­flytja frum­varp sem gerir stjórn­völdum kleift að aft­ur­kalla alþjóð­lega vernd þeirra sem framið hafa alvar­leg eða ítrekuð brot, sem og þeirra sem ógna öryggi rík­is­ins. Með því verður jafn­framt afnumin hin sér­ís­lenska 18 mán­aða regla um að umsækj­andi um alþjóð­lega vernd fái sjálf­krafa dval­ar­leyfi vegna tafa á máls­með­ferð.

„Þetta eru nauð­syn­legar breyt­ingar sem við þurfum að ráð­ast í. Rík­is­stjórnin er sam­hent um þessar aðgerðir sem snú­ast fyrst og fremst um að fram­fylgja skyn­sam­legri og ábyrgri stefnu. Með þessu sendum við heil­brigð skila­boð um þær kröfur sem við gerum til fólks sem hingað flyst,“ segir ráð­herra.

Þá mun ráð­herra einnig leggja fram frum­varp um upp­bygg­ingu brott­far­ar­stöðvar. Markmið frum­varps­ins er að upp­fylla skyldur Íslands sam­kvæmt Schengen-sam­starf­inu með því að setja skýrar reglur um hvenær og að hvaða skil­yrðum upp­fylltum sé heim­ilt að vista ein­stak­linga á brott­far­ar­stöð. Með frum­varp­inu er verið að hverfa frá þeirri fram­kvæmd núgild­andi laga að heim­ilt sé að hand­taka útlend­inga í þess­ari stöðu og færa í gæslu­varð­hald.

Vistun ein­stak­linga á brott­far­ar­stöð, í þeim til­gangi að flytja við­kom­andi af landi brott, snertir grund­vall­ar­mann­rétt­indi þeirra og er því háð ströngum tak­mörk­unum. Í frum­varp­inu eru settar skýrar reglur um skil­yrði fyrir slíkri vistun, máls­með­ferð fyrir dóm­stólum, rétt­indi og skyldur ein­stak­linga og fleira. Þá er mælt fyrir um að vistun skuli aðeins koma til greina þegar væg­ari úrræði duga ekki til.

Til við­bótar þessu hyggst ráð­herra leggja fram frum­varp um breyt­ingu á útlend­inga­lögum þar sem lagðar eru til nauð­syn­legar breyt­ingar vegna inn­leið­ingar á Schengen-skuld­bind­ingum Íslands í tengslum við svo­kallað vernd­ar­sam­komu­lag Evr­ópu­sam­bands­ins sem tekur gildi á næsta ári.

Þar er kveðið á um inn­leið­ingu reglu­gerðar sem leysir Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina af hólmi ásamt upp­færslu á fingrafara­gagna­grunn Eurodac. Þar að auki felur frum­varpið í sér inn­leið­ingu á svo­kall­aðri krísu­reglu­gerð sem veitir heim­ild til að víkja tíma­bundið frá almennum reglum þegar upp kemur neyð­ar­á­stand í mál­efnum hæl­is­leit­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina