Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það eru fordómar í heilbrigðiskerfinu gagnvart heilkenninu“

Vara­for­maður sam­taka um POTS á Íslandi segir að það að grein­ast með ólækn­andi heil­kenni sé mikið „áfall sem geti haft áhrif á þá sem grein­ast og fólkið í kringum þau hvort sem er fjöl­skyldu, vini, sam­starfs­fólk eða aðra.“

„Það eru fordómar í heilbrigðiskerfinu gagnvart heilkenninu“
Hugrún Vign­is­dóttir Vara­for­maður sam­taka um POTS á Íslandi Mynd: Aðsend

Hugrún Vign­is­dóttir er vara­for­maður sam­taka um POTS á Íslandi og sál­fræð­ingur.

Hún segir að það að grein­ast með ólækn­andi heil­kenni sé mikið áfall sem geti haft áhrif á þá sem grein­ast og fólkið í kringum þau hvort sem er fjöl­skyldu, vini, sam­starfs­fólk eða aðra.

POTS er ólækn­andi heil­kenni; og með heil­kenni er átt við sam­an­safn af ein­kennum og líf­eðl­is­fræði­legum breyt­ingum sem koma saman en orsakir heil­kenn­is­ins geta verið mis­mun­andi:

„POTS er fyrst og fremst röskun í ósjálf­ráða tauga­kerf­inu og sú stað­reynd liggur skýr fyrir að POTS herjar mun frekar á konur en önnur kyn“ segir Hugrún og segir enn­fremur að ástæða þess sé að mörgu leyti enn rann­sókn­ar­efni:

„Það sem við vitum hins vegar er að horm­ónin estrógen og pró­gesterón hafa áhrif á ósjálf­ráða tauga­kerfið eins og til dæmis hjarta- og æða­kerfi. Heild­ar­blóð­magn er almennt minna hjá þeim sem eru með leg og ónæm­is­kerfið er oft veik­ara hjá þeim hópi líka.“

Segir Hugrún að fyrir því séu margar ástæður. Fæðingar hafa gríð­ar­lega mikil áhrif á barns­haf­andi lík­ama og getur verið kveikja fyrir POTS:

„Áföll geta einnig verið kveikja sem og aðgerðir, slys og vírusar. Þekkt er að konur leiti sér fremur lækn­is­að­stoðar en önnur kyn og þar af leið­andi er meira af konum sem tala við lækna um veik­indi sín.“

Heil­kennið ekki mikið rann­sakað

Hún nefnir að „rann­sókn­ar­skekkja er á heil­kenn­inu sem birt­ist meðal ann­ars í því að heil­kennið er ekki jafn vin­sælt rann­sókn­ar­efni og sjúk­dómar sem birt­ast með jafn­ara kynja­hlut­fall en einnig gæti verið van­grein­ing hjá körlum og kvár þar sem þau leita síður í heil­brigð­is­kerfið.“

En þar sem heil­kennið er ekki eins vel rann­sakað og „margt annað þá er þekk­ingin innan sam­fé­lags­ins einnig ábóta­vant, til dæmis innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, en eins og áður var nefnt leita konur fremur til læknis en önnur kyn og eru konur að grein­ast með POTS í meira mæli en önnur kyn.“

Samkvæmt Hugrúnu er „upp­lifun þeirra kvenna sem greinst hafa með POTS hér á landi og hafa leitað sér hjálpar í heil­brigð­is­kerf­inu því miður oft á tíðum afar sorg­leg og lýsir tölu­verðri van­þekk­ingu á heil­kenn­inu, og ekki bætti úr skák ákvörðun sjúkra­trygg­inga Íslands um að stöðva nið­ur­greiðslu vökva­gjafa“ og þá nefnir hún ummæli heil­brigð­is­ráð­herra þess efnis að erfitt væri fyrir fólk að „hætta með­ferð sem það trúir á“.

Ítrekuð yfir­lið og skert hreyfi­geta

Hugrún nefnir að ástæða þess að fólk með POTS leiti til heil­brigð­is­kerf­is­ins geti verið margar, en þær helstu séu ítrekuð yfir­lið, skert hreyfi­geta, óreglu­legur og hraður hjart­sláttur, svimi, höf­uð­verkur, mæði, blóð­pollar á lík­ama, melt­ing­ar­vanda­mál og svefn­trufl­anir:

„Listinn er ekki tæm­andi og þegar fólk les yfir þetta gæti það mögu­lega gert sér í hug­ar­lund að ein­kennin eigi við ýmis­legt annað heldur en POTS.“

Hún bendir á að mörg fá því grein­ingu á ýmsu öðru áður en þau fá POTS grein­ingu og að það geti verið skilj­an­legt því heil­brigð­is­starfs­fólki ber að mis­muna­greina og finna það sem passar best við þau ein­kenni sem sjúk­lingur lýsir fyrir þeim:

„Þegar van­þekk­ing er á heil­kenn­inu verður það hins vegar til þess að fólk með POTS flakkar gjarnan á milli lækna ár eftir ár til þess að reyna að fá bót meina sinna. Það er ofsa­lega lýj­andi að vera stöðugt að glíma við ástand sem búið er að reyna að útskýra með ýmsum grein­ing­ar­kóðum í kerf­inu en ekk­ert passar nógu vel og alltaf situr eitt­hvað eftir. Ef þekk­ingin á POTS innan sam­fé­lags­ins, og þá sér­stak­lega heil­brigð­is­kerf­is­ins, væri meiri þá væri ekki ein­ungis hægt að stytta grein­ing­ar­tíma fólks með POTS heldur einnig bæta líðan þeirra og lífs­gæði á meðan á ferl­inu stendur og mögu­lega bæta úrræðin sem væru í boði“ en Hugrún segir að úrræðin séu af afar skornum skammti eins og er og fer eftir ein­kennum hvers og eins:

„Það sem algeng­ast er að fólk geri er að drekka meiri vökva, borða meira salt - eða drekka það - hreyfa sig og borða „rétt“. Það hins vegar dugar skammt þegar heil­kennið er upp á sitt versta og fólk kemst varla fram úr rúm­inu, á erfitt með að sinna sjálfu sér og öðrum, missir úr vinnu og námi og ein­angr­ast. Athafnir dag­legs lífs verða þeim erf­iðar og lífs­gæði skert.“

Hætta nið­ur­greiðslu

Hún segir að innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sé algengt að fólk nýti sér er lyfja­gjöf vegna hjart­slátta­trufl­ana, vökva­gjöf í æð vegna lágs blóð­magns eða blóð­flæðis, sjúkra­þjálf­unar, nær­inga­ráð­gjafar og sál­fræði­að­stoðar.

Líkt og áður sagði og fram hefur komið í fréttum, tóku sjúkra­trygg­ingar Íslands þá ákvörðun að hætta nið­ur­greiðslu vökva­gjafa fyrir fólk sem glímir við POTS heil­kenni frá 1.októ­ber næst­kom­andi þar sem rann­sóknir skortir á gagn­semi slíkrar með­ferðar:

„Samtök um POTS á Íslandi mót­mæltu þeirri ákvörðun. Þess má geta að þessi ákvörðun sjúkra­trygg­inga hefur þegar haft gríð­ar­leg áhrif á bata­ferli og lífs­gæði tugi fólks með POTS og sums staðar hefur vökva­gjöfum þegar verið hætt þó svo að 1. októ­ber sé enn ókom­inn. Ekkert úrræði er veitt í stað­inn fyrir það sem tekið er af.“

Vökva­gjöfin er hald­reipi

Í gær, 17. sept­em­ber, var alþjóða­dagur sjúk­linga­ör­yggis en til­gangur þessa dags er meðal ann­ars að auka vit­und um öryggi sjúk­linga:

„Öryggi snýst um það að sjúk­lingur hljóti ekki skaða af þeirri þjón­ustu sem ætluð er til að bæta heilsu þeirra og lífs­gæði. Vökva­gjöfin hefur reynst mörgum með POTS hald­reipi og vitað er að öll lækn­is­fræði­leg inn­grip hafa sína áhættu, hvort sem er verkja­með­ferð, vökva­gjöf, lyfja­gjöf eða annað. Þegar þjón­usta sem þessi er tekin af ein­stak­lingi sem þarf á henni að halda og önnur þjón­usta ekki veitt í stað­inn eða á meðan annað úrræði er fundið kall­ast það þjón­ust­urof,“ segir Hugrún og bætir því við að ef sé horft á aðra sjúk­linga­hópa til sam­an­burðar í heil­brigð­is­kerf­inu þá væri ómann­úð­legt að koma fram við þá á slíkan hátt:

„Aðgerðir sem þessar tala ekki í takt við öryggi sjúk­linga. POTS er vissu­lega heil­kenni en ekki sjúk­dómur. POTS er ólækn­andi. POTS herjar á konur. Það eru for­dómar í heil­brigð­is­kerf­inu okkar gagn­vart heil­kenn­inu og konum sem bera það. Það er verið að stöðva nauð­syn­legt tíma­bundið úrræði. Það er gat í kerf­inu okkar. Það er þjón­ust­urof. Það verður aukin streita á fólki með POTS. Það verður meira álag á öðrum sviðum heil­brigð­is­kerf­is­ins vegna þessa hóps sem fær ekki þjón­ustu.“

Þjón­ust­urof

Hún segir að það verði dýr­ara fyrir heil­brigð­is­kerfið hér á landi að sinna afleið­ingum þessa þjón­ust­urofs:

„Hvar á fólk með POTS heima innan heil­brigð­is­kerf­is­ins? Samtökin um POTS á Íslandi skora á for­stjóra sjúkra­trygg­inga Íslands að draga ákvörðun um stöðvun nið­ur­greiðslu vökva­gjafa til baka hið fyrsta, í það minnsta að fresta þeirri ákvörðun þar til annað sam­bæri­legt úrræði hefur verið fundið eða þar til vinnu­hópur, sem land­læknir setti á fót, skili af sér nið­ur­stöðum. Þjón­ust­urof á ekki að líð­ast fyrir einn né neinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina