Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jóhann Valgeir Reynisson er fallinn frá

Jóhann Valgeir Reynisson er fallinn frá

Jóhannes Valgeir Reyn­is­son, frum­kvöð­ull, versl­un­ar­maður og stofn­andi Bláa naglans, lést á hjarta­deild Land­spít­al­ans við Hring­braut 12. sept­em­ber, 72 ára að aldri. Mbl.is greindi frá and­lát­inu.

Jóhannes Valgeir, sem flestir þekktu sem Valla, fædd­ist í Reykja­vík 2. sept­em­ber 1953, sonur hjón­anna Reynis Eyj­ólfs­sonar og Ragn­heiðar Frið­riks­dóttur. Hann hóf ungur störf í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Reyn­is­búð við Bræðra­borg­ar­stíg. Síðar lauk hann námi í mat­reiðslu við Hótel- og veit­inga­skól­ann árið 1986, sam­hliða störfum hjá Brauðbæ-Óðins­véum.

Á starfs­ferli sínum kom Valli víða við sögu; hann var með­stofn­andi Vega majóness, tók þátt í þróun graf­laxsósu sem naut mik­illa vin­sælda, byggði upp hót­el­rekstur og stund­aði útgerð bæði til sjóstanga­veiða og lunda­skoð­unar. Hann hafði einnig umsjón með rekstri Vík­ur­vagna, fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis, og var ötull í að koma hug­myndum í fram­kvæmd.

Í kjöl­far banka­hruns­ins stóð hann fyrir smíði Þjóð­ar­skút­unnar, risa­vax­ins spari­bauks sem safn­aði fé til styrktar mæðra­styrks­nefndar.

Árið 2011 greind­ist Valli með blöðru­háls­kirtil­skrabba­mein. Hann skráði frá fyrstu stundu reynslu sína í kvik­mynd­aða dag­bók sem síðar varð að heim­ild­ar­mynd, frum­sýnd í Hörpu og síðar sýnd í sjón­varpi. Í fram­haldi stofn­aði hann Bláa naglann sem varð vett­vangur vit­und­ar­vakn­ingar karl­manna með krabba­mein og safn­aði fé til tækja­kaupa Land­spít­al­ans og ann­arra góð­gerð­ar­mála.

Valli var þekktur fyrir glað­værð og kímni­gáfu og var traustur klettur síns fólks. Hann hélt jákvæðri lífs­sýn allt til hinstu stundar, eftir langa bar­áttu við hjarta­sjúk­dóm.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans er Gyða Þórdís Þór­ar­ins­dóttir og synir þeirra Þórarinn Reynir, Ragnar Þór og Benedikt Rúnar. Barna­börnin eru þrjú.

Útför Jóhann­esar Valgeirs fer fram frá Graf­ar­vogs­kirkju fimmtu­dag­inn 25. sept­em­ber kl. 15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá