Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fangar ánægðir með Jóa Fel

Erfitt er fyrir fanga að kaupa nóg af nær­ing­ar­ríkum mat að sögn for­manns Afstöðu

Fangar ánægðir með Jóa Fel
Litla-Hraun er þekktasta fang­elsi Íslands Jói Fel vann í sumar sem kokkur þar á bæ Mynd: Víkingur

Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, vann nú í sumar við það að elda fyrir starfs­fólk og fanga á Litla-Hrauni en lýsti hann starf­inu í við­tali á Vísi í síð­ustu viku. Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, segir í sam­tali við Mannlíf að almenn ánægja hafi verið með störf Jóa en yfir­völd þurfi að gera betur til að tryggja föngum nær­ing­ar­ríkan mat.

„Föngum í íslenskum fang­elsum finnst almennt mat­ar­mál skipta miklu máli og eru sam­mála um að kostn­aður og aðgengi hamli því að hægt sé að stuðla að mann­sæm­andi matar­æði,“ sagði Guð­mundur við Mannlíf um mat­ar­mál í íslenskum fang­elsum.

„Á Litla Hrauni fá fangar mat­ar­pen­inga og sjá sjálfir um inn­kaup og matseld en verð­lagn­ing versl­unar fang­els­is­ins er hærri en í almennum versl­unum og því erfitt að kaupa nægan og nær­ing­ar­ríkan mat. Flestir mynda mat­ar­hópa til að spara en fæð­is­féð, sem er 1.700 krónur á dag, dugir oft skammt.“

Kaupmáttur hefur rýrnað

Guð­mundur segir að það sé tals­verður munur á mat­ar­málum í íslenskum fang­elsum. „Á Kvía­bryggju og Sogni starfa fangar í eld­húsi og elda fyrir bæði aðra fanga og starfs­fólk. Oft er það með mik­illi fag­mennsku ef kunn­átta er til staðar en það getur auð­vitað breyst reglu­lega. Á Litla Hrauni elda fangar sjálfir fyrir sig, nema þeir sem eru í ein­angrun eða geta ekki eldað mat.“

En hver er mun­ur­inn á þessum málum í dag og fyrir tíu árum?

„Helsta breyt­ingin er sú að kaup­máttur fanga hefur rýrnað mjög á síð­ustu tíu árum þar sem fæð­isfé hefur lítið sem ekk­ert hækkað miðað við verð­lag og neyslu­við­mið,“ segir for­mað­ur­inn. „Þrátt fyrir að fangar reyni að skipu­leggja inn­kaup í mat­ar­hópum er erf­ið­ara en áður að fá nóg af nær­ing­ar­ríkum mat í afplánun.“

Hélt námskeið fyrir fanga

Guð­mundur segir að Afstaða vilji sjá hækkun á fæð­isfé og dag­pen­ingum í sam­ræmi við raun­kostnað og neyslu­við­mið, svo fangar geti notið fjöl­breytts mat­ar­ræðis, og aðgengi að ferskum og nær­ing­ar­ríkum mat þurfi að vera tryggt, ásamt því að lækka álagn­ingu á mat­vöru í fang­els­is­versl­un­inni. 

„Varðandi Jóa Fel þá sá hann almennt um að elda fyrir starfs­fólk, ein­angrun og fanga sem ekki geta eldað sjálfir,“ sagði Guð­mund­ur­inn um stjörnu­kokk­inn á Litla-Hrauni.  „Jói hélt samt ýmis nám­skeið og aðstoð­aði fanga á örygg­is­gangi með að læra að bjarga sér. Almenn ánægja var með allt sem Jói kom að og von­andi mun hann koma meira að matseld í fang­elsum í fram­tíð­inni en hann var tíma­bundið ráð­inn síð­asta sumar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina