Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jasmín var mjög ósátt við ljósmóður í miðri fæðingu

Hvatn­ingin frá ljós­móð­ur­inni fór öfugt ofan í hana, en svo kom eng­ill­inn

Jasmín var mjög ósátt við ljósmóður í miðri fæðingu
Jasmín Guðrún Abu Libdeh og Bísó Heið­ars­dóttir Tamimi Eru frænkur og góðar vin­konur með hlað­varp Mynd: Víkingur

Í hlað­varps­þætt­inum Kaffi og kjaftæði koma þær Jasmín Guðrún Abu Libdeh og Bísó Heið­ars­dóttir saman og ræða um margt og mikið. Hlað­varpið er létt og ein­læg spjall­þátta­sería þar sem þær tökum fyrir allt frá dag­legu lífi, sam­böndum og for­eldra­hlut­verkum yfir í sjálfs­rækt, sam­fé­lags­mál og það sem brennur á þeim, ásamt við­tölum.

Í einum þætti ræðir Jasmín um fæð­ingu sonar síns og hvernig hennar upp­lifun var á henni en Þórdís, eig­in­kona hennar, var með henni í fæð­ing­unni.

„Við förum bara og ég er mætt niður á deild klukkan 5 og ég fer beint inn í skoð­un­ar­her­bergi, ég veit að sumir bíða en það var eng­inn þannig ég fékk bara að fara beint og ég er í riti og mér var sagt að ég var frekar erfið, og ég hérna á að sitja í þessu riti nema ég gat ekki setið,“ segir Jasmín í þætt­inum. Jasmín heldur áfram og segir að henni hafi verið virki­lega illt og hafi verið búin að taka ákvörðun um að fá verk­lyf meðan á fæð­ingu stóð.

„Ég var bara nennir hún að gefa mér verkja­lyf og þá get ég setið. Og ég bara ég get þetta ekki, ég get þetta ekki, ég var að deyja, og hún stendur ljós­móð­irin fyrir framan mig. Hún var frekar leið­in­leg og hún stendur svona hálfan meter frá mér og hún segir við mig nú hættir þú, hann er í fyrsta sæti, þú ert ekki í fyrsta sæti, það er eng­inn að fara að gera þetta fyrir þig, þú ert að fara að gera þetta, og eitt­hvað svona geð­veikt grimm og ég er ekki að grín­ast ég hugs­aði ég er að fara að negla hausnum mínum í nefið á henni, ég bara þetta er ekki í lagi, ég var brjáluð,“ segir Jasmín.

Jasmín Guðrún opn­aði sig um fyrstu fæð­ingu sína

Dæmdi ljósmóður

„Hún tékkar svo í annað skipti [inn­skot blaða­manns: á útvíkkun] segir svo það er allt í góðu en ég ætla að fá aðra ljós­móðir og fá álit frá annarri. Svo kemur hin og ég var bara nei, hún kemur vagg­andi eins og mör­gæs og ég dæmdi hana sko, svo var hún bara mesti eng­ill­inn, hún var bara best,“ segir hún um ljós­móð­ur­ina.

„Hún kemur og ætlar að finna og hún er alveg svona, ég veit að þetta er ógeðs­lega vont en get­urðu reynt, ég verð ógeðs­lega fljót. Konur þurfa sitt­hvort í fæð­ing­unni, sumar vija bara áfram, en sumar eins og ég vilja bara, músin mín þú getur þetta. Ég klár­lega þurfti hana bara. Hún finnur og þær eitt­hvað svona já komum bara í fæð­ing­ar­her­bergi og þá er ég komin tíu í útvíkkun, og þær finna bara koll­inn,“ en aðeins tveir tímar voru frá því að hún var komin á sjúkra­húsið þar til hún var komin með tíu í útvíkkun

Herbergið fylltist

„Ég fer inn í þetta fæð­ing­ar­her­bergi og ég þarf alltaf að fara á kló­settið, halló hún er með remb­ings­þörf, þá kemur leið­in­lega ljósan, sem snar­breytt­ist og varð ógeðs­lega næs. Af því að hún hélt örugg­lega að ég væri komin með svona tvo í útvíkkun var örugg­lega bara ég nenni þessu ekki. Hún kemur og er bara ertu með remb­ings­þörf og þá fór ég að gráta bara ég veit það ekki. Hún segir þú verður að koma í rúmið núna af því að hjart­slátt­ur­inn, mon­itor­inn dettur út. Ég leggst og þá er hjart­slátt­ur­inn á honum, stráknum mínum orð­inn svo lágur og hún ýtir á takka og her­bergið verður app­el­sínugult og bara fyllist, mér fannst eins og það hafi komið svona fjórir inn en Þórdís sagði að það hafi verið svona 15 manns þarna. Ég man ég hugs­aði ég er að fara í bjöllu­keis­ara nema það var ekki málið svo gerð­ist það ekki. Ég rembd­ist svona tvisvar og svo er sett sog­klukka, það var bara svona hann þarf að koma út núna,“ heldur Jasmín áfram. 

Rosalega snögg fæðing

„Svo kemur hann bara út, hann fæð­ist 5:57, tveimur og hálfum tíma eftir að ég vakna. Hann kemur út og svo dett ég út og hann er bara settur á mig og ég heyri í þeim bara hann er kom­inn, og ég vissi ekki að hann væri kom­inn, hann var bara á mér. Ég sagði kannski ekki að þetta var fyrsta fæð­ingin mín, konan mín gekk með dóttir okkar. Þannig að það bjóst eng­inn við svona hraðri fæð­ingu,“ segir Jasmín en eftir fæð­ing­una sagði hún móður sinni frá þessu en hún hafði sjálf upp­lifað svipað í sínum fæð­ingum

„Hún var bara já, þetta er nákvæm­lega eins og fæð­ingin mín, svo sagði ég þér að þetta hafi gerst svona hratt og þú bara já einmitt, bara eins og þetta væri ekk­ert merki­legt, ég var bara hvað er að ykkur. Kemur ekki í ljós bara að þú og þrjár systur þínar þar á meðal mamma mín hafið átt svona hraðar fæð­ingar og eng­inn sagði mér það halló sko. Bara ef ég hefði vitað sko, það er bara gott að vita,“ segir Jasmín að lokum.

Jasmín og Bísó með kaffi­bollaElska kaffi og kjaftæði
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una