Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson er allt annað en sáttur við Kvennaverkfallið 2025 sem haldið verður á föstudaginn og hefur hann meðal annars kallað verkfallið „trúðasýningu,“ og hvatti þá sem standa á bakvið verkfallið til að hætta við það og bætti í á samfélagsmiðlum.
Kröfur Kvennaárs, sem standa fyrir verkfallinu, eru kröfur og aðgerðir sem stjórnvöld geta komið í framkvæmd að mati Kvennaárs og myndu þær aðgerðir taka stór skref í átt að jafnrétti. Þær eru í þremur flokkum; launamisrétti kynjanna, ólaunuð vinna kvenna og kynbundið ofbeldi.
Eins og frægt er var Stefán Einar kjörinn formaður VR árið 2011. Hann hlaut 20,6 prósent atkvæða í kosningu þar sem sjö voru í framboði sem dugði til sigurs. Í næstu kosningum, sem fóru fram árið 2013, tapaði hann með miklum mun fyrir Olafíu B. Rafnsdóttur.
Í framboðsbæklingi sem VR gaf út sagði fjölmiðlamaðurinn eftirfarandi:
„Taka þarf harðar á því siðferðislega vandamáli sem launamunur kynjanna er. Það er ólíðandi að 10% munur mælist milli kynjanna. Ég kynni nýjar leiðir til þess að sporna gegn þessu vandamáli.“
Ekki er víst hvort Stefán Einar telji að þessi launamunur sé ekki lengur til staðar eða hvort hann einfaldlega skipt um skoðun í þessum efnum.































Athugasemdir