Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll segir Reykjavik Excursions vera „einokunarskítafyrirtæki“

„Mér finnst þetta alger­lega óboð­leg fram­koma við far­þega“

Páll segir Reykjavik Excursions vera „einokunarskítafyrirtæki“
Rúta frá Reykja­vík Exursions Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Reykjavik Excursions

Páll Ásgeir Ásgeirs­son, rit­höf­undur og fyrrum blaða­maður, vandar Reykja­vik Excursions ekki kveðj­urnar í pistli sem hann ritar á sam­fé­lags­miðla en rit­höf­und­ur­inn nýtti sér þjón­ustu fyr­ir­tæks­ins þegar kom heim til Íslands eftir ferða­lag.

„Eftir að hafa ferð­ast með flug­vélum, leigu­bílum, þriggja hjóla túktúk bílum og lestum hingað og þangað um heim­inn síð­ustu sex vik­urnar þá var visst áfall að fara síð­asta legg­inn með Reykja­vik Excursions eða Icelandia eða hvað þetta ein­ok­un­ar­skíta­fyr­ir­tæki heitir,“ skrifar Páll um fyr­ir­tækið. Segir hann þjón­ustu­lund Reykja­vik Excursions ekki neina þar sem fyr­ir­tækið þurfi hafi ekki neina alvöru sam­keppni að flytja fólk frá Kefla­vík­ur­flug­velli.

„Ég sá engin skilti þar sem ég staulað­ist í slabbi, kulda og myrkri út að illa upp­lýstum skýlum þar sem fólki er smalað saman. Rútan fer svo þegar hvert sæti er skipað án þess að nokkur maður ávarpi far­þega eða bjóði þá vel­komna,“ skrifar rit­höf­und­ur­inn.

„Hitt er samt verra að fyrir fólk af minni stærð er svo sví­virði­lega stutt á milli sæt­anna að maður situr sam­an­krepptur og þving­aður með gigt­veika hnjáliði í járna­virki næsta sætis fyrir framan meðan rútan skröltir yfir klaka­hryggi og skorn­inga illa mok­aðra gatna.“

Páll segir að þetta minni meira á gripa­flutn­inga í þriðja heim­inum en það sem kemur fram í aug­lýs­ingum Reykja­vik Excursions.

„Mér finnst þetta alger­lega óboð­leg fram­koma við far­þega. Þetta sagði ég við bíl­stjór­ann þegar ég sótti tösk­una í lest­ina og hann yppti öxlum og sagð­ist oft hafa heyrt þetta en bætti svo við: Það er ekk­ert sem við getum gert,“ skrifar Páll að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina