Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Tíminn læknar ekki öll sár en maður lærir að lifa“

Magnús Óli Ólafsson hefur setið á for­stjóra­stóli Innness í 13 ár og hlaut í ár verð­laun Stjórn­vísis í flokki yfir­stjórn­enda. Magnús Óli áréttar að reynslan skipti miklu máli í rekstri og að það skipti máli að sýna stað­festu og ákveðin grunn­gildi. Hann leggur áherslu á mann­eskju­legt fyr­ir­tæki þar sem tekið er utan um starfs­fólk á erf­iðum tímum í lífi þess, eftir að hafa gengið í gegnum að missa nokk­urra mán­aða gamla dóttur á sínum tíma. Hluti af við­tala­röð Mannlífs við stjórn­endur.

„Tíminn læknar ekki öll sár en maður lærir að lifa“
Magnús Óli Ólafsson Vildi verða smiður, en end­aði sem verð­laun­aður for­stjóri heild­versl­unar. Mynd: Víkingur

Magnús Óli Ólafsson, for­stjóri Innness, er húsa­smiður að mennt. Eftir útskrift vildi hann verða sjálf­stæður smiður og sinn eigin herra og vann við það í nokkur ár að taka að sér ýmiss konar smíða­verk­efni. Verslun og þjón­ustu­störf tog­uðu þó í hann. Hann fann fyrir þörf til að vera frekar innan um fólk heldur að vera einn að smíða og 24 ára gam­all hóf hann störf hjá heild­verslun við að selja hand­verk­færi fyrir iðn­að­ar­menn.

Æsku­vinur hans, Ólafur Björns­son, spurði svo hvort hann hefði áhuga á að stofna með sér og einum til við­bótar, Guðmundi Rafni Bjarna­syni, heild­verslun með mat­vörur og sjá um sölu­mennsk­una þar sem hann hafði þekk­ingu á henni og mark­aðnum.

Magnús Óli sló til og hefur Innnes verið starf­rækt frá árinu 1987.

„Ólafur stýrði félagi í bygg­ing­ar­brans­anum fyrir föður sinn og við sáum að þessi fast­eigna- og bygg­inga­mark­aður er svo­lítið óstöð­ugur. Hann er annað hvort í efstu hæðum eða í lægðum. En mat­varan er eitt­hvað sem er stöðugt. Þannig að við ákváðum að byrja að fara vestur um haf og flytja inn vörur frá Banda­ríkj­unum. Ástæðan fyrir því að við fórum þangað er að við sáum að það var ekki mikið fram­boð af vörum þaðan.“

Í fyrstu mat­vöru­send­ing­unum voru til dæmis Hunts-vörur, Peter Pan-hnetu­smjör, LaChoy-sojasósur og Wesson-olíur. Árið 1989 bætt­ust til dæmis við Filippo Berio-ólífu­ol­íur.

„Okkur hefur tek­ist að halda vel á þessum við­skipta­sam­böndum við þessi fyr­ir­tæki og er gaman að segja frá því að Innnes er á meðal elstu við­skipta­vina fyr­ir­tækj­anna Conagra, sem fram­leiðir til dæmis Hunts-tómatsós­urnar, og Salov sem á Filippo Berio þótt fyr­ir­tækin séu rúm­lega 100 ára gömul og Salov rúm­lega 150 ára. Innnes hefur verið svo­lítið íhalds­samt varð­andi það að halda áfram að versla við þessi fyr­ir­tæki og passa upp á við­skiptin.“

Í dag flytur Innnes inn vörur frá tæp­lega tvö hund­ruð og fimm­tíu fram­leið­endum og eru vöru­núm­erin rúm­lega fjögur þús­und. „Vöru­valið í dag er fjöl­breytt; græn­meti og ávextir, sjáv­ar­fang, kjöt, þurr­vara, frysti­vara, vín, bjór og fleira. Við höfum alltaf lagt áherslu á það við okkar birgja að ef þeir vilja að við vinnum fyrir þá hér á landi þá þurfa þeir líka að skaffa okkur sam­keppn­is­hæf verð þannig að við getum boðið íslenskum neyt­endum okkar vörur á sam­bæri­legum verðum og varan kostar úti í búð í nágranna­lönd­unum. Við sjáum verðin á vefnum og á ferða­lögum og erum að skoða og gerum verðkann­anir í versl­unum og ef við sjáum ein­hvers staðar skekkju um að það muni ein­hverju þá tölum við við þessa birgja. Það er miklu betra að við séum að flagga þessu heldur en að við­skipta­vinir okkar séu að fara að kaupa af ein­hverjum öðrum úti í heimi. Við höfum alltaf lagt áherslu á að vinna vel fyrir íslenska neyt­endur en að sama skapi erum við líka að tryggja það að það sé ekki verið að versla vör­urnar ann­ars staðar. Þetta er stöðug vinna. Þetta er bara starfið okkar.

Þótt við séum ekki stærsti mark­að­ur­inn þá erum við mik­il­vægur mark­aður fyrir okkar birgja og sér­stak­lega fyrir þá sem eru með Norður-Evrópu eða Skand­in­avíu. Íslend­ingar eru stór­n­eyt­endur. Það er svo­lítið í þjóða­sál­inni. Ef Íslend­ingum líkar varan á annað borð þá eigum við yfir­leitt heims­met í neyslu á höfða­tölu,“ segir Magnús Óli og hlær.

„Við erum að þjóna eins mörgum íslenskum fram­leið­endum og við mögu­lega getum með sölu og dreif­ingu fyrir þá. Við höfum alltaf sagt að við seljum það sem neyt­and­inn vill kaupa en ekki það sem við viljum selja. Íslenskt græn­meti sem dæmi er frá­bær vara og neyt­endur vilja þessa vöru. Og við viljum þá líka gera það sem í okkar valdi stendur til að greiða götu þess­ara litlu ein­yrkja sem eru oft og tíðum að berj­ast í bökkum og stuðla að því að þeir eigi góða sam­starfs­að­ila. Við getum stutt þá - lít­ill fram­leið­andi og stór kaup­andi.“

Hátækni­vöru­hús InnnesÍ 16 þús­und fer­metra bygg­ingu hefur Innnes byggt upp sjálf­virkni­væð­ingu.

Reka hátæknivöruhús

Aðsetur fyr­ir­tæk­is­ins voru fyrstu árin við Hjalla­hraun í Hafn­ar­firði og síðar við Dals­hraun. Fyr­ir­tækið flutti árið 1998 í hús­næði Íslensk-Ameríska við Tungu­háls sem hafði keypt hlut í fyr­ir­tæk­inu en upp úr þeim sam­runa slitn­aði árið 2001. Þá flutti fyr­ir­tækið í hús­næði við Fossa­leyni. „Þá hafði Guð­mundur og ég selt hluti okkar í fyr­ir­tæk­inu og var þá Ólafur einn eig­andi félags­ins. Sú ákvörðun mín teng­ist því að hafa frelsi og að vera ekki of tengdur efn­is­legum hlutum. Það er allaf hætta á að efn­is­legir hlutir geti tekið mann og átt mann. Við hjónin eigum stóra fjöl­skyldu, við eigum fjögur börn og ell­efu barna­börn, og þar eru auð­æfin. Okkur skortir ekk­ert þannig að mér fannst þetta vera góð ákvörðun sem hún var; það er erfitt að þjóna tveimur herrum.“

Magnús Óli hélt áfram að starfa hjá fyr­ir­tæk­inu og vann um ára­bil í sölu- og mark­aðs­málum en við stækkun þess ein­beitti hann sér svo að sölu­mál­unum. Hann segir að góð sam­skipti skipti aðal­máli.

„Ólafur bað mig svo í lok árs 2012 um að taka við for­stjóra­stöð­unni og hef ég gegnt henni síðan.“

Velta fyr­ir­tæks­ins var þá fjórir og hálfur millj­arður en í fyrra var hún um tutt­ugu millj­arðar.

„Stækk­unin hefur verið jafnt kaup og sam­runi ásamt innri vexti og sér­stak­lega á síð­ast­liðnum fjórum árum hefur fyr­ir­tækið vaxið mjög hratt eða úr tíu millj­örðum í tutt­ugu. Helm­ing­ur­inn kemur úr innri vexti og helm­ing­ur­inn eru kaup og sam­ein­ingar.“

Innnes er til húsa í glæsi­legri og nútíma­legri bygg­ingu við Korn­garða í Reykja­vík. Fyr­ir­tækið var á tíma­bili á nokkrum stöðum en árið 2016 keypti móð­ur­fé­lagið Dalsnes lóð­ina við Korn­garða svo að Innnes gæti sam­einað starf­sem­ina á einn stað og náð hag­kvæmni. Bygg­ingin í heild sinni er um 16.000 fer­metrar og þar af er skrif­stofu­hús­næðið um 2.000 fer­metrar.

„Það var mikil áskorun að byggja í heims­far­aldr­inum og að hluta voru það erlendir verka­menn og fag­menn sem komu til lands­ins til að vinna við bygg­ing­una. Það var enda­laust verið að útbúa umsóknir varð­andi B-leið út af far­aldr­inum til að láta þetta allt ganga heim og saman og á sama tíma að vera að reka fyr­ir­tæki í öllum þessum búta­saumi með rekst­ur­inn á nokkrum stöðum. Hins vegar var það góða í far­aldr­inum að það komu skýr­lega í ljós verð­mætin sem fel­ast í að hafa verið í ára­tuga við­skipta­sam­bandi við erlenda birgja. Það varð aldrei vöru­skortur hjá okkur þótt hann hafi verið að finna víða í nágranna­lönd­unum.“

Viðtalið er tekið í glæsi­legu fund­ar­her­bergi á fjórðu hæð húss­ins þar sem sést út á opið svæði sem samt er lokað af á fjórar hliðar. Steypan fær þar að njóta sín, meira að segja í steyptum bekkjum. Það er aug­ljóst að hugað hefur verið að nútíma­legri hönnun. Arki­tektar á teikni­stof­unni Dap sáu um hönn­un­ina.

„Arki­tekta­stofan kom með þá hug­mynd að þetta væri ekki að minna á skrif­stofu­rými heldur að þetta væri hótel/lounge/vinnu­að­staða. Við fengum starfs­menn til að koma með ábend­ingar og til­mæli.“

Hátækni­vöru­hús er áfast skrif­stofu­bygg­ing­unni sem býður upp á meiri hraða, meiri nákvæmni og hærra þjón­ustu­stig. Hug­myndin á bak við húsið og tækn­ina var að það yrði vel gert og rétt útfært og myndi hjálpa til við að auka við­skiptin. „Og það hefur svo sann­ar­lega gert það. Við höfum haldið stórar sýn­ingar í hús­inu og vorum með í fyrra um fimm­tíu birgja sem komu á sýn­ing­una „Matur og Vín“ og mættu um þús­und gestir.“

Rekka­kerfið í vöru­hús­inu er um 29 metra hátt og segir Magnús Óli að um sé að ræða hæsta rekka­kerfi í land­inu og að tæknin myndi leyfa því að vera í 40-50 metra hæð.

Starfs­menn Innnes eru um 250 og þar af vinna um 60 á skrif­stof­unni. Fjörutiú sölu- og þjón­ustu­full­trúar eru úti á mark­aðnum ásamt hátt í 20 bíl­stjórum. Lítil starfs­manna­velta er almennt í fyr­ir­tæk­inu en ein­hver í vöru­húsi fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum árin og ára­tug­ina. „Það er erf­ið­ast að ráða í störfin í vöru­hús­inu og þar er mesti veltu­hrað­inn á fólk­inu. Þannig að með ákveð­inni tækni og vél­bún­aði þurfum við ekki á eins mörgum höndum að halda. Við fórum ekki þá leið að segja neinum upp heldur látum veltu­hrað­ann á starfs­mönn­unum í vöru­hús­inu gera það að verkum að við ráðum ekki í stað­inn fyrir þá sem hætta.“

Styður við starfsfólk

Magnús Óli sagði að í starfi sínu sem sölu­maður hafi hann lagt áherslu á góð sam­skipti og það gerir hann enn.

„Eftir því sem maður til­einkar sér gott, þægi­legt og jákvætt hug­ar­far sem og góða fram­komu því betur gengur okkur. Ég er næmur á að lesa fólk og neyðin kennir naktri konu að spinna. Ég hef alltaf lagt upp úr því að fólki líði vel og ef maður styður fólkið sitt og stendur með því þá eykst helgun þess og það veitir betri þjón­ustu.

Við erum með gott hús­næði, það er góður matur í hádeg­inu, við erum með mjög marga við­burði og við erum að gera vel og við tökum líka vel utan um starfs­fólkið þegar eitt­hvað kemur upp á hjá því. Við sýnum því skiln­ing. Starfs­fólk hefur til dæmis misst maka. Þetta færir mann nær fólk­inu og Innnes er eins og fjöl­skylda; ég sé þetta alltaf sem fjöl­skyldu. Það var nú bara þannig að fyrstu árin voru flestir starfs­menn ætt­ingjar mínir svo sem tveir syst­ur­synir mínir, frændur og frænka.

Það lætur mér líka líða betur ef ég horfi á starfs­fólkið sem sam­starfs­fólk en ekki að þetta sé bara vinna. Það er mis­jafnt hvernig fólk er en ég er bara svo­lítið þannig gerður. Ég tala við alla eins og jafn­ingja og sest hjá ein­hverjum í hádeg­inu og spjalla og spyr kannski hvernig gangi. Þetta er líka áskorun en 38% af starfs­fólk­inu eru af erlendu bergi brotin, það er af 27 þjóð­ernum og kemur frá mis­mun­andi menn­ing­ar­heimum. Það er sjokk fyrir þau að átta sig á þessu, hvaða virð­ingu fær for­stjór­inn ef hann sest bara hjá því í hádeg­inu? Íslend­ingum finnst þetta vera flott. Við getum verið til staðar fyrir fólkið sem veit kannski ekki hvernig sam­fé­lagið virkar eða hvaða rétt­indi það hefur. Þetta er ekki bara vinnu­staður. Þetta er pínu „heima“. Það er það sem mér finnst skipta miklu máli.“

Kallaður „pabbi“

Magnús Óli segir að á einni árs­há­tíð­inni hafi einn af erlendu starfs­mönn­unum spurt hvort hann mætti kalla sig „pabba“ þar sem hann ætti engan pabba á land­inu. Og hann hélt það nú.

Magnús Óli leggur mikla áherslu á gott upp­lýs­inga­flæði og eru haldnir starfs­manna­fundir einu sinni í mán­uði og eru allar glærur bæði á íslensku og ensku.

„Svo ég komi inn á ensk­una: Það er spurn­ing hvernig það verður eftir nokkur ár að stýra íslensku fyr­ir­tæki og hvernig íslenskt sam­fé­lag verður en það verður mikil sam­keppni um á hvaða tungu­máli maður tjáir sig.“

Lífs­reyndurEftir erf­iða lífs­reynslu leggur Magnús Óli alla áherslu á að styðja starf­sólk í raunum.

Stjórnunarstíllinn: Staðfesta og grunngildi

Magnús Óli er spurður út í stjórn­un­ar­stíl­inn og hvernig hann hefur þró­ast með árunum.

„Með árunum hefur komið þroski og reynsla og það skiptir máli að sýna stað­festu og ákveðin grunn­gildi. Og ef það kemur ein­hver tísku­bóla sem allir eru með í huga þá er gott að vera búinn að setja ramma og ef eitt­hvað nýtt kemur þá er hægt að máta það við rammann.

Reynslan skiptir gríð­ar­legu máli í rekstri og að hafa séð tím­ana tvenna. Ef ég á að koma með heil­ræði til stjórn­enda í fyr­ir­tækjum þá er að hafa í bland fólk með reynslu og ung­viðið og nýgræð­ings­hátt­inn. Þetta þarf að vera í bland. Það er frá­bært að fá þetta unga fólk sem er alveg til­búið að klífa upp Mount Everest ein­samlt með enga súr­efn­is­grímu en þá er ágætt að hafa ein­hvern sem ráð­leggur því að fara fyrst í þjálf­un­ar­búð­irnar og læra síðan á græjurnar og fá ein­hvern með sér; ekki fara einn.

Maður þarf líka að vera opinn fyrir hug­myndum. Það þarf að vera með svo­lítið skýra sýn á það sem verið er að gera og að muna af hverju við erum með þetta svona. Það þarf að hlusta vel og átta sig á því hvar maður ætlar að stað­setja sig.“

Innnes er með tvö gildi innan fyr­ir­tæk­is­ins: Gleði og fag­mennska.

Svo seg­ist for­stjór­inn leggja ofurá­herslu á við­horf starfs­fólks til vinn­unnar.

Dómsmál gegn ríkinu

Það hefur stundum gefið á bát­inn. Magnús Óli er spurður hvað hafi verið erf­ið­ast á ferl­inum.

„Það er klár­lega þetta verk­efni hér: Það er húsið. Að vera áður með fyr­ir­tækið á öllum þessum stöðum. Þegar fólk er á sama stað og hitt­ist þá er auð­veld­ara að búa til sömu menn­ingu. Það er alls kyns menn­ing á hinum og þessum stöðum og maður er að reyna að stýra og stjórna og það er mun erf­ið­ara að halda utan um menn­ing­una þegar um er að ræða búta­saum hér og þar. Það var erfitt að vera að byggja þetta hús og taka upp þessa tækni í vöru­hús­inu sem hefur í raun aldrei verið áður hér á landi og vera á sama tíma að stýra félag­inu í Covid-heims­far­aldr­inum.

Svo hefur verið áskorun að vera í dóm­sölum og við erum búin að reka mörg mál. Það versta er að það er ekki gegn ein­hverjum ein­stak­lingum í sam­fé­lag­inu heldur gegn rík­inu. Ríkið hefur margoft brotið stjórn­ar­skrána og gerst brot­legt við lög og verið skaða­bóta­skylt.

Það að vera í dóm­sölum er því miður oft eina leiðin til þess að ná rétt­læt­inu fram. Innnes er heild­sala með mat og drykkj­ar­vörur og er ein­falt fyr­ir­tæki og þess vegna sá ég ekki fyrir mér að öll þessi mála­ferli við ríkið yrðu svona viða­mikil. Og það er svo­lítið ógn­vekj­andi að fara gegn rík­inu. Við erum í raun­inni litli aðil­inn á móti gímald­inu. Og eðli­lega hugsar maður með sér hvort maður sé að styggja ein­hvern og hvort maður fái ein­hvern á móti sér. Maður hugsar með sér hvernig hægt var að koma þessum búvöru­lögum í gegn. Það var bara sér­hags­muna­gæsla póli­tíku­s­anna. Mér finnst vera ámæl­is­vert í íslenskri stjórn­sýslu ef þeir koma grímu­laust fram varð­andi sér­hags­muna­gæslu. Við þurftum að fara í mál gegn Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og það var líka ákveðin áskorun,“ segir Magnús Óli og að máls­höfðun fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hafi ekki beinst að ein­stökum fyr­ir­tækjum eða athöfnum þeirra heldur hafi hún fyrst og fremst verið til þess hugsuð að leit­ast við að tryggja jafn­ræði fyr­ir­tækja í sam­keppni.

Í máli Innnes reyndi á lög­mæti breyt­inga sem gerðar voru á búvöru­lögum vorið 2023 en þá var kjöt­af­urða­stöðvum veitt víð­tæk und­an­þága frá sam­keppn­is­lögum. Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að laga­breyt­ing Alþingis hefði ekki laga­gildi þar sem hún hafi brotið gegn 44. grein stjórn­ar­skrár­innar en þar er kveðið á um að ekki megi sam­þykkja neitt laga­frum­varp nema það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi.

„Sam­keppn­is­eft­ir­litið vinnur mjög fag­lega og beitti sér fyrir því að þessi lög yrðu ekki að veru­leika. Við unnum þetta í hér­aði og Lands­rétti en svo var þetta mál tekið áfram. Því var áfrýjað til Hæsta­réttar sem sneri því við. Við auð­vitað lútum því. Þetta var nið­ur­staða dóms­ins.“

Það var erfitt að lúta því.

„Það var búið að benda á hið aug­ljósa - málið fékk ekki þessa umfjöllun í þingi og hefði átt að fara þrisvar í gegn. Mein­ingin var að þáver­andi rík­is­stjórn hafi brotið stjórn­ar­skrána.“

Líkamsræktin hjálpar

Karlinn í brúnni þarf að halda and­lit­inu gagn­vart starfs­fólki þótt það gefi á bát­inn og það hefur Magnús Óli oft gert. Það hefur oft tekið á.

„Það hjálpar mikið að stunda lík­ams­rækt. Ég fer í rækt­ina á hverjum morgni áður en ég mæti í vinn­una, vakna um klukkan sex og er mættur í vinnu klukkan átta. Ég er sofn­aður klukkan tíu á kvöldin til að ná átta tíma svefni. Mín aðal­fæða er matur án inni­halds­lýs­ingar. Ég elska góðan mat og er klár­lega á réttum vinnu­stað hvað það varðar. Ég svaf hins vegar stundum ekki á næt­urna og vissi ekki hvernig þetta færi,“ segir Magnús Óli og nefnir bygg­ingu húss­ins í heims­far­aldri þar sem voru tafir og jafn­vel mála­ferli og alls kyns upp­á­komur. „Svo mætti ég í vinn­una, brosti og bauð góðan dag­inn.“

„Ég svaf hins vegar stundum ekki á næt­urna og vissi ekki hvernig þetta færi“

Það má kannski líkja þessu við fjall­göngu?

„Það er búið að fara alveg upp og stundum í bál­viðri.“

Hefur stundum verið hætta á snjó­flóði?

„Já. Það hefur hjálpað manni í þess­ari veg­ferð að fyr­ir­tækið er að stækka og það er ýmis­legt sem kemur upp á og það á enn eftir að koma upp á. En þá getur maður alltaf hugsað að maður sé búinn að sjá tím­ana tvenna og minna sig á gildin, draga and­ann djúpt, láta á engu bera, styðja starfs­fólkið og vera til staðar.

Maður þarf svo­lítið að vera eins og klapp­stýra og kunna að gera þetta. Ræktin hjálpar manni að tæma hug­ann; lyfta og taka á. Svo er golfið alveg frá­bært sport til að gleyma og verða aftur lít­ill.“

Ýmsir viðburðir

Ýmislegt er gert fyrir starfs­fólk Innnes til að við­halda menn­ing­unni og gleðja. Þar má nefna hvata­daga sem haldnir eru einu sinni á ári sem eru hugs­aðir til að byggja upp starfs­fólk og fengnir eru góðir fyr­ir­les­arar. „Þessi hvata­dagur er kall­aður Happ­inn­nes,“ segir Magnús Óli og kímir. „Starfs­fólk þarf til dæmis að leysa þrautir og þetta er til að hjálpa því að fara aðeins út fyrir normið. Það veit að svo kemur ein­hver uppi­stand­ari og það verður eitt­hvað glens og góður matur í lokin.

Starfs­manna­fé­lagið er mjög virkt og með fjöl­breytta við­burði eins og páska­gjöf handa starfs­fólk­inu og fjöl­skyldu­dag í byrjun sum­ars með hoppukast­ala úti á plani og voru alls konar upp­á­komur og pylsur grill­aðar. Það var mjög vel sótt og heppn­að­ist vel.

Okt­o­ber­fest er raun­veru­lega bara skemmtun. Svo er halloween-pró­gramm.

Við erum með jóla­viku þar sem við höfum haldið pip­ar­köku­hús­skeppni og það er keppni hver mætir í ljót­ustu jóla­peys­unni.“

Sæmdur stjórnunarverðlaunum

Magnús Óli hlaut í febr­úar stjórn­un­ar­verð­laun Stjórn­vísis í flokki yfir­stjórn­enda. Í umsögn segir meðal annnars á heima­síðu Stjórn­vísis:

„Hann leggur áherslu á skýra stefnu og gott upp­lýs­inga­flæði. Hann er ein­stak­lega hæfur í sam­skiptum og góður hlust­andi með mikla per­sónu­töfra og á auð­velt með að hvetja og hrífa starfs­fólkið með sér.“

Einnig kemur fram í rök­stuðn­ingi að yfir­stjórn­anda hafi tek­ist afburða vel að stýra fyr­ir­tæk­inu í gegnum mik­inn vaxt­arfasa með skýra áherslu á fram­úr­skar­andi þjón­ustu við við­skipta­vini og mik­il­vægi þess að hlúa að vinnu­staða­menn­ing­unni með gildi fyr­ir­tæk­is­ins, gleði og fag­mensku að leið­ar­ljósi. Eft­ir­tekt­ar­verður árangur hefur til að mynda náðst á síð­ast­liðnum fjórum árum þar sem tekjur félags­ins hafa tvö­fald­ast án veru­legrar skuld­setn­ingar eða auk­ins fasta­kostn­aðar og eru nú um 20 millj­arðar. Á miklum umrót­ar­tímum þar sem efna­hags­að­stæður, heims­far­aldur og stríð hafa meðal ann­ars sett strik í reikn­ing­inn hefur veltan ekki bara stór­auk­ist heldur sam­hliða tek­ist að byggja upp og inn­leiða hátækni­vöru­hús á heims­mæli­kvarða.

„Yfir­stjórn­and­inn er lausn­a­mið­aður leið­togi sem gefur sér alltaf tíma til þess að hlusta á það sem starfs­fólk hans hefur að segja.“
Rök­stuðn­ingur stjórn­un­ar­verð­launa Stjórn­vísis

Í rök­stuðn­ingi segir enn­fremur: „Yfir­stjórn­and­inn er ávallt opin fyrir nýstár­legum hug­myndum og segir oft: ,,Hvaða köku eigum við að setja næst í ofn­inn?“ Þraut­seigja og þol­in­mæði eru lýsandi fyrir þennan yfir­stjórn­anda og fyr­ir­tækið verið á lista Creditinfo yfir Fyr­ir­mynd­ar­fyr­ir­tæki árs­ins síð­ustu 13 ár. Árleg og óháð vinnu­staða­grein­ing sýnir bæði mikla ánægju starfs­manna og stolt af vinnu­staðnum. Eins og einn af starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins orðar það: „Yfir­stjórn­and­inn er lausn­a­mið­aður leið­togi sem gefur sér alltaf tíma til þess að hlusta á það sem starfs­fólk hans hefur að segja.“

Magnús Óli segir af hóg­vær að það hafi komið sér svo­lítið á óvart að eftir þessu yrði tekið en að ann­ars séu verð­launin mikil við­ur­kenn­ing.

Magnús Óli hefur í mörg ár verið virkur í Félagi atvinnu­rek­enda og var um tíma for­maður í fjögur ár.

Barnsmissir

For­stjóri Innnes er mik­ill fjöl­skyldu­maður. Hann er búinn að vera með eig­in­konu sinni, Erlu Dís Ólafs­dóttur, síðan hann var sautján ára og hún sextán. Þau hafa eign­ast fimm börn og er eitt þeirra, Elísabet Rós, látið. Barna­börnin eru ell­efu eins og þegar hefur komið fram. Hjónin áttu tvö elstu börnin þegar Elísabet Rós kom í heim­inn þann 16. des­em­ber árið 1988. Hún lést 11. apríl 1989 af slys­förum.

Þarna voru Magnús Óli og Ólafur búnir að reka Innnes í eitt ár og voru þeir einu starfs­menn­irnir á þessum erf­iða tíma. Magnús Óli var í að selja, keyra út vörur, kynna í búðum og rukka.

„Maður missti barnið sitt en ég er með þá von í hjarta að ég fái það aftur ein­hvern tím­ann í fram­tíð­inni.“

Magnús Óli er trú­aður maður og segir hann að það að vera í sam­fé­lagi og mæta á sam­komur hjá Vottum Jehóva áður en þetta slys var hafi gefið sér mik­inn styrk. „Það góða fólk sem var þar hjálp­aði mér gríð­ar­lega og hélt vel utan um okkur. Ég hef þá trú í hjarta að þetta sé ekki eitt­hvað end­an­legt. Maður missti barnið sitt en ég er með þá von í hjarta að ég fái það aftur ein­hvern tím­ann í fram­tíð­inni. Það gaf mér styrk sem þurfti til að halda utan um fjöl­skyld­una, mömmu og tengda­mömmu.“

Hann lýsir öðru­vísi tíð­ar­anda þegar hann gekk í gegnum raun­irnar.

„Á þessum tíma var engin aðstoð frá sér­fræð­ingum. Kerfið var ekki að hugsa um mann. Fjöl­skyldan hélt utan um mann en þau eru ekki læknar. Og tíð­ar­and­inn var „áfram gakk“. Það var ýmis­legt sagt eins og síðar að það hafi verið gott að við skyldum hafa getað eign­ast fleiri börn. Fólk vissi ekki betur.“

Þótt hjónin hafi eftir frá­fall Elísa­betar Rósar eign­ast tvö börn þá kemur eng­inn í stað­inn fyrir hana. Hún var hún.

„Hún var með mikið dökkt hár,“ segir pabbi hennar. „Svo var hún með spékoppa og höku­skarðið mitt. Ég kom dag­lega til hennar á vöku­deild­ina og þegar ég kom æst­ist hún öll upp af kæti og brosti til mín, hún sá að pabbi var kom­inn. Þetta var ekki læknir eða hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Þetta var pabbi.“

Magnús Óli brosir.

„Tíminn læknar ekki öll sár en maður lærir að lifa með þessu. Þetta er eins og sár sem maður er með, maður finnur alltaf fyrir því. Það þarf líka að geta talað um þetta. Það til dæmis hjálpar núna þegar ég er að opna mig með þetta. Þetta markerar mann auð­vitað, ég horfi á lífið á annan hátt en áður,“ lýsir hann.

„Það að missa barnið sitt er ömur­leg reynsla. Er þetta eitt­hvað sem ég get nýtt mér? Það sem þetta hefur gefið mér er að ég hef meiri skiln­ing á því ef fólk stendur frammi fyrir því að missa ást­vin eða stendur frammi fyrir dauð­anum, eins og einn vinur minn nýverið. Það skiptir máli að vera til staðar. Þessi lífs­reynsla hefur hjálpað mér að hugsa að það sé eitt­hvað meira.“

Starfs­maður Innnes, sem hafði starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í 19 ár, lést á þessu ári eftir erfið veik­indi og var Magnús Óli til staðar fyrir hann. „Við vorum ágætis vinir, ég réði hann á sínum tíma“. Eftir að ljóst var í hvað stefndi þá bað hann Magnús Óla að vera kistu­bera sem Magnús Óli varð við jarð­ar­för hans. „Mér þótti mjög vænt um að hann bað mig um þetta. Þetta var rétti stað­ur­inn til að vera á.“

Þá hélt Magnús Óli minn­ing­ar­stund fyrir starfs­fólk Innnes. Það var kveikt á kerti, blóm voru í vasa og mynd af mann­inum og Magnús hélt tölu. Þá var mining­ar­stundin í streymi fyrir þá sem voru ekki á staðnum.

„Þetta var erfitt en við erum að reka mann­eskju­legt fyr­ir­tæki. Við reynum að taka utan um starfs­fólkið ef það er erfitt og reynum að hjálpa því eins og við mögu­lega getum við erf­iðar aðstæður.

Það er engin ein rétt leið að stýra fyr­ir­tæki, mín saga er bara til að segja hvernig ég hef farið að og gert það vegna þess að hjarta og hugur sögðu það og mig langar það. Hver og einn verður að finna sinn stíl.“

Mannlíf ræðir við íslenska stjórn­endur í við­tala­röð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina