Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét Löf neitaði að svara spurningum

Mæðgurnar lásu sitt­hvora yfir­lýs­ing­una við rétt í dag.

Margrét Löf neitaði að svara spurningum
Súlunes 13 Fjöl­skyldan bjó á Arn­ar­nes­inu Mynd: Víkingur

Margrét Halla Hans­dóttir Löf, sem ákærð er fyrir að hafa orðið föður sínum að bana og reynt að myrða móður sína, kaus að svara engum spurn­ingum þegar hún kom fyrir dóm í Hér­aðs­dómi Reykja­ness við aðal­með­ferð máls­ins. Í stað þess flutti hún stutta yfir­lýs­ingu. Móðir hennar fylgdi sama for­dæmi og las einnig upp eigið ávarp í stað þess að svara spurn­ingum, sam­kvæmt heim­ildum Vísis.

Þinghald í mál­inu fer fram fyrir luktum dyrum, þrátt fyrir að lög um með­ferð saka­mála mæli almennt fyrir um opið þing­hald. Bæði sak­born­ingur og móðir hennar ósk­uðu eftir að málið yrði tekið fyrir í lok­uðu þing­haldi og ákæru­valdið gerði ekki athuga­semdir við það.

Aðal­með­ferð hófst í gær og átti upp­haf­lega að ljúka með mál­flutn­ingi í dag. Skýrslu­tökum lauk þó ekki á til­settum tíma og er því stefnt að mál­flutn­ingi á mánu­dag­inn. Verði þeirri áætlun haldin má búast við dómi eigi síðar en 22. des­em­ber, miðað við fjög­urra vikna dóms­frest.

Samkvæmt lögum um með­ferð saka­mála er sak­born­ingi heim­ilt að neita alfarið að svara spurn­ingum frá sækj­anda, verj­anda, rétt­ar­gæslu­manni brota­þola eða dóm­ara, eins og fram kemur í frétt Vísis. Sama rétt hafa vitni sem tengj­ast sak­born­ingi nánum fjöl­skyldu­böndum, og á það við í þessu máli um móður Mar­grétar Höllu. Af þeim sökum gátu mæðgurnar báðar hafnað því að svara spurn­ingum.

Auk þess hefur dóm­stóll skipað lög­mann til að gæta rétt­inda móður Mar­grétar Höllu, þar sem hún hafði áður hafnað skip­uðum rétt­ar­gæslu­manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina