Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þóra Kristín svarar Snorra fullum fetum

„Það er alveg pláss fyrir hvassa gagn­rýni án þess að hafa rangt við“

Þóra Kristín svarar Snorra fullum fetum
Snorri og Þóra Kristín Óvænt rit­deila stendur yfir á Facebook

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, fyrr­ver­andi fjöl­miðla­kona, svarar Snorra Mássyni vara­for­manni Mið­flokks­ins harð­lega eftir að hann gagn­rýndi hana opin­ber­lega fyrir ummæli í Silfrinu á RÚV um læsi og fylg­is­aukn­ingu Mið­flokks­ins.

Snorri gagn­rýndi Þóru opin­ber­lega á Facebook þar sem hann sak­aði hana um óvirð­ingu gagn­vart kjós­endum Mið­flokks­ins. Hann túlk­aði ummæli hennar í Silfrinu, þar sem hún velti fyrir sér hvort aukið fylgi flokks­ins gæti tengst „bágu læsi“ í sam­fé­lag­inu, sem merki um að hún liti á stuðn­ings­menn flokks­ins sem illa upp­lýsta. Tíundar Snorri síðan hvað hann telji vera ástæð­una fyrir auknu fylgi flokks­ins, meðal ann­ars bág staða ungs fólks.

Í svari sínu segir Þóra að ummælin hafi ekki verið sér­tæk gagn­rýni á Mið­flokk­inn eða kjós­endur hans, heldur á breið­ari þróun í lýð­ræð­isum­ræðu og áhrif hnign­unar fjöl­miðla.

„Ég var nú reyndar ekki bara að tala um mið­flokk­inn heldur alla mið­flokka heims­ins og afhverju ungt fólk er að hneigj­ast til ein­angr­un­ar­hyggju í alþjóða­málum, for­dóma gegn hinsegin fólki og afneit­unar á lofts­lags­vís­indi,“ skrifar hún.

Þóra segir Snorra hafa rang­túlkað orð sín og sakar hann og aðra stjórn­mála­menn um að nýta umræð­una til að vekja ótta og ýta undir sundr­ungu:

„Nú geta stjórn­mála­menn makað krók­inn með alls­konar full­yrð­ingum og sann­leik­ur­inn hittir þá aldrei fyrir. Það er bara lítið brot eftir af hefð­bund­inni fjöl­miðlun. Við hlut­verki þeirra eru teknir karl­arnir í kass­anum, sem básúna skoð­anir sínar, einir og ótrufl­aðir undir drynj­andi lófataki í,“ segir hún og bætir við: Við fáum sjaldn­ast heild­ar­mynd­ina, bara glamur, gíf­ur­yrði og breiðar fyr­ir­sagnir. Þetta litar öll stjórn­málin og alla umræð­una en gerir popúlistum sér­lega auð­velt fyrir og þeim sem vilja gera út á for­dóma og hræðslu.“

Þóra tekur þó undir að ungt fólk standi frammi fyrir raun­veru­legum efna­hags­legum áskor­unum, en hafnar því að flótta­fólk, hinsegin sam­fé­lagið eða lofts­lags­vís­indi séu söku­dólgar:

„En ég er sam­mála Snorra um það að það má ekki gleyma efna­hags­legum áskor­unum sem ungt fólk strendur frammi fyrir. En ungt fólk hefur fyrr staðið frammi fyrir áskor­unum án þess að ráð­ast á fólk á flótta og kenna því um allt sem miður fer, grafa undan til­veru og sjálfs­mynd hinsegin fólks og hat­ast út í lofts­lags­vís­indi og hætt­una sem við stöndum frammi fyrir.“

„Það er alveg pláss fyrir hvassa gagn­rýni án þess að hafa rangt við,“ segir Þóra að lokum en bætir síðan við: „Og þá stendur eftir sam­kenndin eða skortur á henni sem Písa kann­anir hafa leitt í ljós og hún er kannski alvar­leg­ust.

Harðasta vókið var svo sann­ar­lega orðið óþol­andi enda var sam­kenndin þar líka lítil og aðal­lega ref­sigleði. Unga fólkið á samt skilið betri fyr­ir­myndir ef við kefl­inu taka dæmi­gerð hvít, het­erón­orma­tív karl­kyns fórn­ar­lömb eins og Snorri sem ráð­ast á þá sem standa höllum fæti en kalla svo í sér­sveit­ina til að bía sér í svefn þegar þeim er svarað í sömu mynt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum