Loka þarf karlaklefum í Sundhöll Reykjavíkur tímabundið vegna rakaskemmda en greint er frá þessu í tilkynningu frá borginni. Klefarnir verða lokaðir frá og með 5. desember og verða opnaðir aftur eftir úrbætur og úttekt.
Laugin verður opin öllum á meðan á framkvæmdum stendur að sögn borgarinnar. Gömlu kvennaklefarnir, sem hingað til hafa verið notaðir fyrir stúlkur í skólasundi, verða notaðir sem karlaklefar og fyrir skólasund drengja. Stúlkur í skólasundi munu nota nýja kvennaklefann.
Borgin biðst afsökunar á þessu í tilkynningunni.































Athugasemdir