Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helga Vala gagnrýnir málþóf um kílómetragjald

„Augljóst er að þetta er hóll­inn sem stjórn­ar­and­staðan virð­ist ætla að deyja á fyrir næsta þing­hlé um jólin“

Helga Vala gagnrýnir málþóf um kílómetragjald
Helga Vala Helga­dóttir Helga Vala gefur stjórn­ar­and­stöð­unni ráð Mynd: Heimildin/Heiða Helgadóttir

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir harð­lega langar umræður á Alþingi um kíló­metra­gjaldið í færslu sem hún birti á Facebook í morgun. Hún segir stjórn­ar­and­stöð­una hafa valið sér hól til að deyja á rétt fyrir jóla­hlé og varar þing­menn við því að almenn­ingur fylgist lítið sem ekk­ert með umræð­unum.

Helga Vala tekur fram að hún vilji ekki gera lítið úr störfum þing­manna, en eftir sam­tal við fyrr­ver­andi kollega hafi hún „ekki getað stað­ist mátið.“ Hún vísar til þess að þingið hafi eytt „9 klukku­stundum“ í umræður um kíló­metra­gjaldið í gær og að það hafi verið „17 á mæl­enda­skrá þegar þing­fundi lauk.“ Bætti hún við: „Augljóst er að þetta er hóll­inn sem stjórn­ar­and­staðan virð­ist ætla að deyja á fyrir næsta þing­hlé um jólin.“

„Til ykkar sem eruð á mæl­enda­skrá vil ég segja: ég er voða hrædd um að almenn­ingur sé hættur að hlusta,“ skrifar hún og bendir á að tíma­bilið fyrir jól sé óheppi­legur vett­vangur fyrir löng þingá­tök. „Núna eru það tón­leikar, smáköku­gerð, kyrrð­ar­stund með fjöl­skyldu og jóla­hlað­borð sem eiga hug almenn­ings en ekki stælar í þing­hús­inu.“

Hún rifjar upp að þegar hún sjálf starf­aði á Alþingi hafi henni oft fund­ist að almenn­ingur fylgd­ist grannt með, en svo reynd­ist sjaldn­ast vera: „Svo mættum við í smákökur eða á jóla­skemmtun og ég spurð hvort ég væri ekki komin í jóla­frí ... Það var á þeirri stundu sem maður átt­aði sig á því að þingið er stundum eins og í vacumpakkningu. Það vantar súr­efni.“

Helga Vala gagn­rýnir einnig að sumir þing­menn taki þátt í mál­þófi um kíló­metra­gjaldið þrátt fyrir að hafa stutt það í síð­ustu rík­is­stjórn. Að lokum tekur hún undir orð eig­in­manns síns, Gríms Atla­sonar, og spyr hvers vegna ekki sé rætt jafn af krafti um brýnni mál­efni.

„Þegar þing­menn hrúg­ast í mál­þóf um kíló­metra­gjaldið, sem hluti þeirra studdi í síð­ustu rík­is­stjórn, þá get ég ekki annað en tekið undir með Grími sem spyr hvar er mál­þófið um börnin sem fá ekki nauð­syn­lega heil­brigðis/vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum