Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gagnrýnir málflutning Þorgerðar Katrínar og útvarpstjóra um Eurovision

„Er mik­il­vægt að ákvörðun RÚV í gær hafi ekki áhrif á sam­skipti Íslands við þjóð­ar­morð­ingj­ana?“

Gagnrýnir málflutning Þorgerðar Katrínar og útvarpstjóra um Eurovision
Magga Stína Magga Stína er óánægð með mál­flutn­ing ráð­herr­ans Mynd: Víkingur

Margrét Kristín Blöndal eða Magga Stína eins og hún er iðu­lega kölluð, gagn­rýnir mál­flutn­ing Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur og Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra varð­andi snið­göngu Íslands í Eurovision á næsta ári. Það gerði Magga Stína í nýlegri Facebook-færslu.

Tón­listar- og bar­áttu­konan Magga Stína byrjar færslu sína á til­vitnun í orð utan­rík­is­ráð­herra Íslands í frétt RÚV, þar sem hún seg­ist ekki trúa því að ákvörðun RÚV um að keppa ekki í Eurovision í Vín­ar­borg á næsta ári, muni hafa áhrif á sam­skipti Íslands og Ísrels.

„Þor­gerður Katrín telur að ákvörð­unin muni ekki hafa áhrif á sam­skipti Íslands og Ísraels.“

„Á hún ekki að hafa áhrif á sam­skipti Íslands og Ísraels???
Er mik­il­vægt að ákvörðun RÚV í gær hafi ekki áhrif á sam­skipti Íslands við þjóð­ar­morð­ingj­ana?
Í hvaða leik­riti erum við stödd?“ spyr Magga Stína og heldur áfram:

„Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Stefán Eiríks­son eru sem sagt sam­mála um að ákvörð­un­ina um að snið­ganga Eurovision á næsta ári eigi ekki að skilja sem ein­hverja gagn­rýni eða snið­göngu á Ísrael.“

Hjálmtýr Heiðdal, for­maður félags­ins Ísland-Palest­ína segir í athuga­semd við færsl­una að um sé að ræða „gal­inn mál­flutn­ing“ Þor­gerðar Katrínar.

„Galinn mál­flutn­ingur - það er þjóð­ar­morðið sem liggur að baki hvað sem ÞKG segir.“

Magga Stína svarar Hjálmtý með hár­fínni kald­hæðni:

„Nei, það var bara þessi leið­inda­þrýst­ingur frá íslenskum almenn­ingi sem gerði að verkum að útvarps­stjóri sá sig loks til­neyddan til að hætta við þát­tök­una og ber við þeim leið­inda­móral sem hefur mynd­ast í kringum keppn­ina núna, en hann segir enn­fremur „RÚV er ekki að beita sér í þessu máli, RÚV er að taka sjálf­stæða ákvörðun, dag­skrár­tengda ákvörðun og í því eru ekki að fel­ast ein­hver póli­tísk skila­boð að okkar hálfu“.“

Bætir hún við að lokum að við­horf Stefáns og Þor­gerðar Katrínar sýni hvað við­horf þeirra til þjóð­ar­morðs­ins í Palest­ínu, hafa.

„Þetta við­horf útvarps­stjóra og und­ir­tektir utan­rík­is­ráð­herra segja kýr­skýra sögu um við­horf þeirra eftir að hafa fylgst með þjóð­ar­morðs­hr­inu Ísraels í beinni útsend­ingu í rúm­lega tvö ár og tvo mán­uði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina