Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ég vil byggja eitthvað sem Ísland getur verið stolt af“

Fata­hönn­uð­ur­inn Haraldur Davíð hefur metn­að­inn og hæfni til að ná langt

„Ég vil byggja eitthvað sem Ísland getur verið stolt af“
Fata­hönn­uð­ur­inn Haraldur Davíð Björns­son á vinnu­stof­unni Alltaf mikið að gera. Mynd: Víkingur

Fata­hönn­uð­ur­inn Haraldur Davíð Björns­son er heil­inn á bak­við fata­merkið Coppermine sem hefur vakið athygli á und­an­förnum mán­uðum hér á landi. Þrátt fyrir ungan aldur er ljóst að Haraldur er með skýra sín á það sem hann vill gera í tísku­heim­inum.

Mannlíf ræddi við hönn­uð­inn um upp­runann, nútím­ann og fram­tíð­ina.

„Áhuginn byrj­aði hægt í Haga­skóla, klass­ískt. Maður fer að pæla í útliti, passa föt saman og prófa eitt­hvað nýtt,“ segir Haraldur um upp­hafið en hann byrj­aði í Haga­skóla í 7. bekk. Fram að því hafði hann búið í Svíþjóð og segir Haraldur að Svíþjóð hafi mótað hann mikið. „Í lok 9. bekkjar var ég orð­inn mjög djúpt inni í þessu. Ég byrj­aði í snea­kers og safn­aði mér í nokkra Jordans. Stærstu kaupin á þeim tíma voru Jordan 1 Shadow sem kost­uðu fárán­lega mikið miðað við aldur,“ segir Haraldur.

„Svo færð­ist áherslan yfir í fatnað og heild­ar­lúkk. Það sem kveikti alvöru hug­mynd­ina var að félagi minn úr árgangi í Haga­skóla byrj­aði sitt eigið merki. Ég horfði á hann selja hund­ruð peysa um allt land, úr sínu eigin merki, sinni eigin hönnun, á meðan við vorum bara krakkar í 10. bekk. Þá hugs­aði ég í fyrsta skipti, bíddu, getur hver sem er gert fata­merki og látið það virka ef hann leggur vinnu í það? Ég byrj­aði þá að fikta í grafík. Ég hann­aði eina peysu fyrir þann sem ég sé enn um allt fyrir í dag, 444 hunda peysan. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fann að hönnun gat lifað sitt eigið líf á fólki úti á götu.“

Haraldur með Coppermine-peysu

Fór út fyrir þægindarammann

„Þegar ég byrj­aði í MH var stemn­ingin allt öðru­vísi en ég var vanur,“ heldur Haraldur áfram. „Það var minna af því að fólk væri að fylgj­ast með þér eða dæma. Það var létt­ara að fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann og prófa hluti, af því það var ekk­ert eitt trend sem allir voru að elta.“

Hann seg­ist hafa verið með mjög skýrar hug­myndir af flíkum sem hann vildi sjá.

„Functional, góðar snið­lausnir, ákveðin smá­at­riði. Vanda­málið var að þær flíkur voru ekki til, alla­vega ekki eins og ég sá þær fyrir mér. Ég átt­aði mig á því að ef ég vildi þetta í alvöru þá þyrfti ég bara að búa það til sjálfur,“ og seg­ist Haraldur hafa byrjað smátt og hafa lært mikið á því. Hann hafi þurft að klúðra hlutum og laga þá svo.

En hvað er Coppermine?

„Coppermine er heimur sem ég hef verið að byggja í hausnum á mér í 4 til 5 ár. Þetta er saga, stemn­ing og sjón­ar­horn sem ég reyni að setja í flík­urnar, myndefnið og mark­aðs­setn­ing­una. Þetta er líka mín sýn á það hvernig íslensk tísku­menn­ing getur litið út þegar hún er keyrð af konsepti og identity, ekki bara vöru,“ segir Vest­ur­bæ­ing­ur­inn.

Góður hópur sem hjálpar til

Haraldur seg­ist þó ekki hafa gert allt einn og er þakk­látur fyrir mik­inn stuðn­ing sem hann hefur í kringum sig.

Benedikt Andrason hjá CHILD, Arn­grímur Orri, Ólafur Kári, Flysouth-strák­arnir; Elvar, Robert Winther, Gunnar Dagur, Gulli Briem, Erlingur Freyr, Konráð Bjartur og Kári hafa allir staðið þétt við bak Haraldar í ferl­inu og deila þeir vinnu­stofu saman.

„Stúdíóið okkar á Hafn­ar­braut 21 varð líka mjög sér­stakur staður,“ segir Haraldur. „Þetta varð svona „culture hotspot“ þar sem tón­list­ar­menn, vid­eó­gæjar, hönn­uðir og creatives komu og fóru. Það var alltaf ein­hver að vinna í ein­hverju, alltaf ein­hver að kynn­ast ein­hverjum nýjum, og þetta space ýtti manni áfram. Í raun var reglan bara að mæta upp í stúdíó, sama hvað var í gangi. Það var þannig í langan tíma. Þetta consistency skiptir miklu þegar þú ert að reyna að byggja eitt­hvað upp frá grunni,“ en Coppmine-teymið í dag er lítið og þétt.

„Það er ég, Ólafur Kári, Gulli og Dabbi sem er nýlega búinn að joina. Ég elska þetta team. Við erum með góða efna­fræði, vinnum vel saman, og erum með ólíka styrk­leika og veik­leika sem complementa hvorn annan. Það mik­il­væg­asta er samt að við trúum allir á þennan draum. Við vitum að þetta getur orðið eitt­hvað stórt, og eitt­hvað sem mun hafa áhrif á okkur alla.“

Ólafur Kári, Haraldur og GulliLyk­il­menn hjá Coppermine

Hver er staðan á tísk­unni á Íslandi?

„Ég held að tískan á Íslandi sé að stækka mjög hratt. Fleiri eru að taka þetta alvar­lega, fleiri eru að hanna, fleiri eru að kaupa íslensk merki, og það er meira tempo í menn­ing­unni í kringum þetta en áður,“ en Haraldur telur að margt sé fast í „sur­vi­val mode“ eins og hann kallar það. Það sé heldur ekki endi­lega hönn­uð­unum að kenna.

„Ísland er svo lítið að flest merki eru nán­ast þvinguð til að vera með basic vörur sem selj­ast á breiðum hóp, af því ann­ars lifir þetta ein­fald­lega ekki af,“ segir Haraldur. „Það er ekki nóg af fólki til að halda uppi stöð­ugum sölu­tölum á mjög niche flíkum allt árið. Þannig að jafn­vel þó fólk vilji gera brjál­aða hluti, þá þarf það líka að selja klass­ísku hlut­ina til að fjár­magna hitt,“ og seg­ist hann hafa fundið fyrir þessu sjálfur.

Hraður vöxtur

„Coppermine hefur vaxið ótrú­lega mikið á þessu ári, við erum nán­ast að fimm­falda söl­una og pönt­un­ar­fjöld­ann. En stór hluti af því hefur verið meira byggður á restockum og að styrkja grunn­inn, frekar en að vera enda­laust að henda út nýjum flíkum. Stundum er það bara leik­ur­inn hér heima. Þú þarft að byggja upp stöðugan grunn til að geta tekið stærri krea­tíf skref.“

Haraldur við­ur­kennir þó að fylgj­ast ekki mikið með öðrum merkjum því að hann reyni að halda sér á sinni braut og finna sína eigin leið.

„Ég vil brjóta nýja strauma í því hvað íslenskt fata­merki getur gert, bæði í konsepti, fram­setn­ingu, gæðum og heimi í kringum merkið. Ég held að þetta sé að fara í rétta átt og að þessi menn­ing verði bara sterk­ari næstu ár.“

Coppermine-merkið á svörtum grunni

Opnuðu búð í Nóatúni

Coppermine hefur, eins og áður segir, verið að stækka og var tekin sú ákvörðun að hafa svo­kall­aða pop-up verslun í des­em­ber, sem er stað­sett í Nóatúni. Haraldur á sér þó stærri draum.

„Þetta er fyrsta alvöru skrefið mitt í að hafa Coppermine í physical formi þar sem fólk getur komið, séð vör­urnar, mátað og hitt okkur,“ segir Haraldur. „Þetta er líka praktískt fyrir pickups, skipti og þjón­ustu, sér­stak­lega í jóla­á­lagi. En þetta er líka stærri draumur. Ég myndi elska að þetta yrði meira en pop-up. Ég vil eiga búð sem getur staðið á eigin fótum, með sínum karakter, og verið staður sem byggir upp menn­ingu í kringum merkið. Hvort þetta pop-up verði byrj­unin á því veit maður ekki, en það er klár­lega draum­ur­inn.“

Vinni­stofa Coppermine er þakin hug­myndum og teikn­ingum

Hvernig verða næstu fimm árin?

„Ég hef í alvöru ekki neina full­kom­lega skýra mynd af næstu fimm árum,“ segir hönn­uð­ur­inn káti. „Ég reyni að halda fókus á því sem er að ger­ast núna, af því það er svo mikið í gangi og svo margt nýtt í einu,“ og seg­ist ennþá vera að læra inn á við­skipta­hlut­ann af brans­anum. Hann upp­lifi ennþá stundum að hann viti ekki hvað er hann að gera en hann tekur einn dag í einu og reynir að læra.

„En það sem ég veit er þetta: Ég trúi á Coppermine. Ég vil segja þetta eins hóg­vær­lega og ég get, en ég trúi því í alvöru að Coppermine geti orðið eitt af áhrifa­mestu íslensku merkj­unum. Ég vil byggja eitt­hvað sem Ísland getur verið stolt af. Að Coppermine verði nafn sem fólk tengir við alvöru sköpun, gæði og menn­ingu,“ og seg­ist Haraldur ekki sjá nein tak­mörk á því hvað Coppermine getur orðið í fram­tíð­inni.

„Coppermine er byggt á mjög skýrri og orig­inal fag­ur­fræði sem ég hef verið að móta í hausnum á mér í mörg ár. Ég reyni að byggja þetta út frá heimi og identity, ekki út frá trendum. Ég veit grunn­inn, ég veit stemn­ing­una, og ég finn að þetta er eitt­hvað sem er ekki alveg til ann­ars staðar á sama hátt. Það gerir mig bjart­sýnan. Ég reyni líka bara að taka þeim tæki­færum sem ég fæ. Ég gerði runway á þessu ári og það var galið. Það var rosa­leg upp­lifun og ég hugs­aði strax, þetta er eitt­hvað sem ég get séð mig gera aftur, og gera stærra. Að byggja Coppermine upp sem alvöru sea­sonal merki, með sýn­ingum, köflum og sterkri heild­ar­sýn,“ og seg­ist Haraldur horfa til merkja eins og Ralph Lauren, sér­stak­lega hvernig merk­inu tekst að byggja upp heilan heim og vera með margar fata­línur í einu. Svo megi heldur ekki gleyma sögu þess.

„Ég veit að ég kann ekki allt þetta system í dag en ég veit að ég mun læra það, og ég ætla að reyna að teygja mig eins langt og ég mögu­lega get,“ segir Haraldur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina