Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Blaðamennskan nálgast dauðahrygluna“

Björn Þor­láks­son gagn­rýnir RÚV harð­lega

„Blaðamennskan nálgast dauðahrygluna“
Björn Þor­láks­son Björn hjólar í Rík­is­út­varpið

Björn Þor­láks­son, fjöl­miðla­maður á Sam­stöð­inni og fyrr­ver­andi starfs­maður bæði RÚV og Stöðvar 2, gagn­rýnir harð­lega ráðn­ing­ar­ferli Rík­is­út­varps­ins og stöðu reyndra blaða­manna á Íslandi í langri færslu sem hann birti á Facebook.

Í færsl­unni segir Björn að verið sé að „kreista lífið úr síð­ustu reyndu blaða­mönn­unum“ og að þeir sem hafi sýnt sjálf­stæði og sinnt blaða­mennsku út frá „varð­hunds­hlut­verk­inu“ séu margir hraknir út á jað­ar­inn. Hann seg­ist vilja segja sína sögu í ljósi þess að fleiri reyndir blaða­menn, þar á meðal „Kolla vin­kona mín“, hafi nýverið misst vinn­una en þar vísar hann í upp­sagnir á Morg­un­blað­inu en Kolbrún Berg­þórs­dóttir var ein af þeim sem þurfti að taka poka sinn og yfir­gefa Hádeg­is­móa.

Sótti um tvö störf á RÚV – fékk ekki einu sinni viðtal

Björn greinir frá því að skömmu eftir fall Frétta­blaðs­ins hafi hann sótt um bæði stöðu dag­skrár­gerð­ar­manns á Rás 1 og stöðu frétta­manns hjá RÚV. Hann segir með­mæli sín hafa verið „110 pró­sent“ og ítrekar að hann hafi ára­tuga reynslu af dag­skrár­gerð, frétta­mennsku, rit­stjórn og frétta­stjórn.

Þrátt fyrir það fékk hann ekki boð í við­tal vegna dag­skrár­gerð­ar­starfs­ins. Hann seg­ist hafa óskað eftir rök­stuðn­ingi og birtir í færsl­unni til­vísun í tölvu­póst frá Fanneyju Birnu þar sem hún segir RÚV ekki þurfa að rök­styðja ráðn­ingar:

„Rúv sé ohf og því ekki ólíkt fyr­ir­tæki á einka­mark­aði!“

Björn bætir við:

„Hmmmm. Fyrir utan 8 millj­arða króna með­gjöf, lang­mest úr vasa skatt­greið­enda, hugs­aði ég. En komst svo að því að Rúv vildi senni­lega yngja upp á Rás 1, kennitalan mín þætti kannske fremur ósexí, Rúv þyrfti ekki meiri reynslu.“

„Krakka sem ég hafði sjálfur kennt blaðamennsku“

Nið­ur­læg­ingin jókst enn að hans sögn þegar hann sótti um stöðu frétta­manns hjá RÚV. Hann seg­ist hafa talið sig aug­ljós­lega hæfan umsækj­anda, en nið­ur­staðan varð sú að ráðið var í starfið tvo nær reynslu­lausa ein­stak­linga:

„Krakka sem ég hafði sjálfur leið­beint og kennt blaða­mennsku á Frétta­blað­inu.“

Björn segir frá vand­ræða­legu sím­tali þar sem honum var tjáð að hann hefði ekki hlotið starfið, og að frétta­stjór­inn hafi gefið í skyn að það myndi „litlu skila“ fyrir hann að sækja um aftur.

„Ég fékk vand­ræða­legt sím­tal um að í þetta skiptið yrði ég ekki ráð­inn. Ókei svar­aði ég og létti vegna vinnu­tím­ans, ég kannski sæki um síðar, sagði ég. En þá gaf frétta­stjór­inn í skyn að það myndi litlu skila. Kvaddi svo flótta­legur.“

Hann seg­ist bless­un­ar­lega hafa fundið „fjöl­ina“ sína á Sam­stöð­inni, en notar eigin reynslu til að setja sam­hengi við breið­ari þróun í íslenskum fjöl­miðlum.

Björn full­yrðir að blaða­mennska á Íslandi sé á hröðu und­an­haldi:

„Senn verður búið að ýta okkur reynslu­bolt­unum, sem kunnum íslensku og kunnum manna­mál, lang­flestum til hliðar.“

Hann gagn­rýnir einnig for­mann Blaða­manna­fé­lags­ins, sem hann segir „klappa saman lóf­unum vegna fjöl­miðla­styrkj­anna sem fara nú til mógúl­anna svo þeir geti rekið reyndasta fólkið.“

Þá lýsir hann miklum áhyggjum af fram­tíð fjöl­miðl­unar:

„Blaða­mennskan í þeirri mynd sem við höfum þekkt hana nálg­ast dauða­hrygl­una. Skaði sam­fé­lags­ins verður ólýs­an­legur.“

Hann segir ólíg­arka kaupa upp einka­mark­að­inn og að RÚV muni ekki halda velli „að óbreyttu“. Hann gagn­rýnir að RÚV hegði sér eins og einka­fyr­ir­tæki í ráðn­ingum, „líkt og einka­klúbbur“.

Styður almannaútvarp – en gagnrýnir stjórnunarhætti

Björn und­ir­strikar að lokum að hann sé áfram mik­ill stuðn­ings­maður öfl­ugs almanna­út­varps:

„Til að taka af öll tví­mæli er ég mik­ill stuðn­ings­maður almanna­út­varps­ins og öfl­ugrar rík­is­frétta­stofu. Mér þykir hins vegar miður hvernig frétta­stofan og hluti dag­skrár­deild­ar­innar hefur drabb­ast niður og það skrifa ég að miklu leyti á reynslu­leysi, hug­leysi og ref­il­stigu.

Að því sögðu er enn margt stór­kost­legt að finna á Rúv. Það sem fólkið á bak við hið frá­bæra á sam­eig­in­legt er að vera mjög reynt í sínu fagi....“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina