Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni

„Mamma er alveg skýr í koll­inum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana“

Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni
Ragn­heiður Stein­dórs­dóttir Leik­konan góð­kunna er á bata­vegi Mynd: Facebook

Ragn­heiður Stein­dórs­dóttir, leik­kona og bar­áttu­kona, fékk heila­blóð­fall á Spáni milli jóla og nýárs eftir að hafa misst mátt­inn í göngu­ferð í sveit­inni þar sem hún dvaldi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem börn hennar, Steindór Grétar Jónsson og Margrét Dórothea Jóns­dóttir, hafa birt fyrir hennar hönd.

Ragn­heiður Stein­dórs­dóttirRagn­heiður hefur verið fast­ráðin hjá Þjóð­leik­hús­inu frá 1983

Í færsl­unni lýsa þau því hvernig móðir þeirra lenti í alvar­legu áfalli fjarri heima­högum en tókst engu að síður að bjarga sér við erf­iðar aðstæður. „Hún varð því miður fyrir því óláni að missa mátt­inn þegar hún var ein í göngu­ferð í sveit­inni á Spáni á milli jóla og nýárs. Á ótrú­legan hátt náði hún að bjarga sér, vekja athygli íbúa á svæð­inu og fá hjálp,“ skrifa þau.

Ragn­heiður var í kjöl­farið flutt á sjúkra­hús í Málaga, þar sem Steindór var henni innan handar. „Hún var flutt á spít­ala í Malaga í fylgd með Stein­dóri og þar kom í ljós að hún hafði fengið heila­blóð­fall,“ segir í færsl­unni.

Samkvæmt börnum hennar er ástand Ragn­heiðar stöðugt og hugur hennar skýr. „Mamma er alveg skýr í koll­inum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana en þarf tíma og þjálfun til að end­ur­heimta kraft í lík­am­anum,“ skrifa þau og bæta við að hún verði flutt heim til Íslands til frek­ari með­ferðar. „Hún verður flutt til Íslands á morgun í fylgd með lækni og Stein­dóri og hlakkar til að takast á við end­ur­hæf­ing­una framundan.“

Þau nefna einnig að dvölin á spænska sjúkra­hús­inu hafi verið krefj­andi en ekki án bjart­ari hliða. „Það verður líka gott að geta talað við heil­brigð­is­starfs­fólk á íslensku þó að mömmu hafi nán­ast tek­ist að læra spænsku frá grunni á þessum tveimur vikum á sjúkra­hús­inu,“ segir í færsl­unni.

Í lokin minna systk­inin á bar­áttu móður sinnar fyrir mann­úð­ar­málum, einkum í þágu Palest­ínu í gegnum félagið Vonarbrú. „Öll sem þekkja hana vita hvað hún hefur verið virk, öflug og lífs­glöð og að hún hafi látið sig mál­efni Palest­ínu varða með félag­inu Vonarbrú,“ skrifa þau og benda á að starf hennar hafi skipt sköpum fyrir fjöl­skyldur á Gaza.

Þau hvetja almenn­ing til að styðja félagið meðan Ragn­heiður er frá störfum: „Við vitum að það mundi gleðja hana ef Vonarbrú fengi góð fjár­fram­lög næstu vik­urnar til að bæta upp fyrir fjar­veru hennar. Við hvetjum því öll til að styrkja stríðs­hrjáðar barna­fjöl­skyldur á Gaza með því að leggja inn á reikn­ing almanna­heilla­fé­lags­ins Von­ar­brúar (kennitala: 420625-1700, reikn­ings­númer: 0565-26-006379).“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina