Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Skömm sveitarfélaga og stjórnvalda er mikil“

Birkir Fjalar Við­ars­son telur yfir­völd geta gert betur þegar kemur að íslenskri menn­ingu

„Skömm sveitarfélaga og stjórnvalda er mikil“
Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar Við­ars­son Stökkva báðir í eld­inn. Mynd: Aðsend

Hlað­varpið Stokkið í eld­inn er eitt af áhuga­verð­ustu hlað­vörpum und­an­far­inna ára en það hóf göngu sína snemma árs 2023 og er algengi­legt á flestum streym­isveitum.

Þátt­ur­inn fjallar um þung­arokk og er bæði snert á íslensku og erlendu þung­arokki. Sem dæmi má nefna nýlegan þátt þar sem Andri Freyr Við­ars­son, oft þekktur sem Andri á flandri, mætti til að ræða um hljóm­sveit­ina Cannibal Corpse og Deftones-þáttur þar sem Björn Stef­áns­son, sem var í Mínus, og Bóas Hall­gríms­son, söngv­ari Reykja­vík!, ræddu sveit­ina.

Það eru þó þeir Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar Við­ars­son sem stýra þætt­inum og heyrði Mannlíf í Birki til að ræða þátt­inn og tón­list­ar­menn­ingu á Íslandi.

AC/DC kom þeim á bragðið

„Ég hef verið að hlusta á hlað­vörp síðan 2009,“ sagði Birkir um upp­haf þátt­ar­ins. „Fljót­lega fór ég að hugsa um að gaman væri að gera svona lagað líka en vildi þó ekki gera bara „eitt­hvað.“ Þessar pæl­ingar mar­íner­uðu í höfð­inu á mér árum saman þar til einn dag er ald­ar­vinur minn, Smári Tarfur, mesti AC/DC aðdá­andi og fræð­ingur lands­ins, sagði mér að hann væri kom­inn með nóg af AC/DC og ætl­aði aldrei að hlusta á það framar,“ heldur Birkir áfram.

„Þá laust því í höf­uðið á mér að snið­ugt væri að búa til heim­ild um Smára Tarf að gera upp feril sveit­ar­innar og fara djúpt í öll þeirra lög frá upp­hafi til dags­ins í dag. Það var í mars 2021. Ég vissi auð­vitað að Tarf­ur­inn væri vanur tökkum og glúr­inn hvað allt þannig snertir en alls ekki ég. Því fór sem fór að ég bauð honum að vera með mér í AC/DC þátta allra AC/DC þátta. Hann var til­bú­inn í verk­efnið og úr varð hlað­varps­þátta­röð sem ég er ákaf­lega stoltur af. Fullt af flottum gestum og talað um AC/DC af alúð, inn­lifun sem og á aðhalds­legum nótum.  Svo þegar við vorum búnir að fjalla um öll þau hljóð­vers­lög og plötur sem AC/DC hafði gefið út þá var ég fljótur að tjá vini mínum að þetta gæti ekki endað svona. En Smári vildi ekki meira hlað­varp,“ segir Birkir en það var svo jólin 2022 sem hann náði að plata Smára í að gera nýtt hlað­varp sem myndi fjalla um þung­arokk, bæði á Íslandi og erlendis.

Nýr maður kemur inn

„Ég fór ansi létt með að gabba minn mann í þetta verk­efni enda leist honum strax vel á hug­mynd­ina og útgangs­punkta mína. Smári er þannig maður að hann á erfitt með að þykj­ast ekki vera pepp­aður. Þannig að ég vissi að ég hafði náð honum. Rúmlega mán­uði síðar var fyrsti Stokkið í eld­inn hlað­varps­þátt­ur­inn kom­inn á netið. Per­sónu­lega finnst mér fátt skemmti­legra og meira gef­andi en að masa um tón­list og tala við fólk um hana,“ en Smári sagði þó nýlega skilið við þátt­inn og tók Hörður Ólafsson við honum.

„Ekkert eðli­lega safa­ríkur náungi. Við erum búnir að gera nokkra þætti saman og hlust­endur okkar eru sáttir við hans fram­lag svo vægt sé til orða tekið.“

Hörður og Birkir á góðri stundu

Voru með þátt á X-inu

Um nokk­urt skeið héldu Smári og Birkir úti útvarps­þætti með sama nafni en þátt­ur­inn var á X-inu en seint á síð­asta ári við þátt­ur­inn tek­inn af dag­skrá eins og margir aðrir þættir. „Það var frá­bært að vera þessi ár á X977,“ segir Birkir. „Þar gafst okkur kostur á að spila alls­konar gott þung­arokk fyrir land­ann. Pælingin þar var allt önnur en hlað­varpið þótt útvarps­þátt­ur­inn héti sama nafni. Á X977 vorum við með sér­þátt til að spila tón­list en í hlað­varp­inu er lítið spilað af tón­list en enda­laust kafað ofan í hana með „munn­legum rit­gerðum“ og sam­tali, ef svo má segja. En já, það var mjög lær­dóms­ríkt og skemmti­legt að fá að grúska svona svaka­lega mikið í laga­vali og auð­vitað læra af köll­unum á X977 sem og auð­vitað það dýr­mætasta; sam­skipti við hlust­endur og hljóm­sveitir á Íslandi.“

Flest allt í toppmálum

„Staðan er með afbrigðum góð, tón­listar- og sköp­un­ar­lega,“ vill Birkir meina en hann er sjálfur söngv­ari harð­kjarna­sveit­ar­innar I Adapt. „Ég get full­yrt að aldrei nokkurn tíman hefur verið jafn mikil gróska og fjöl­breytni og gæðin á sumum hljóm­sveitum og verk­efnum eru ævin­týra­leg. Við erum með læk sem er löngu búinn að flæða yfir bakka sína, í jákvæðri merk­ingu þeirrar setn­ingar, en afar fá rými fyrir sveit­irnar til að koma fram í. Skömm sveit­ar­fé­laga og stjórn­valda er mikil hvað það snertir. En þau kunna ekki að skamm­ast sín heldur halda áfram að gorta sig á gæðum íslenskrar tón­listar. Þið afsakið fram­hleypn­ina í mér,“ segir Birkir en segir einnig spenn­andi tíma framundan í þung­arokks­tón­leikum á Íslandi.

„Við höfum oft rætt hversu margar tón­list­ar­há­tíðir eru í svona fámennu landi sem og kosti og galla þeirrar stað­reyndar. Komumst að því að það mætti fækka hátíðum lítið eitt en ein­ungis ef það verður væn­legt að halda smærri tón­leika í mis­mun­andi rýmum. Vonandi verða „venju­legir" tón­leikar nýjasta æðið 2026 en hátíð­irnar eru auð­vitað geggj­aðar. Við elskum þær. Ég er spenntur fyrir Sátunni og Norð­an­paunk­inu svo dæmi séu nefnd. Það eru sam­komum sem þú getur farið „blint“ á ef svo má segja. Að banda­ríska und­rið High On Fire muni spila í Iðnó 24. ágúst næst­kom­andi er auð­vitað alveg gagga­lagú. Nýtt efni frá Gaddavír kítlar mann sem og inn­koma dauðarokks­sveita eins og Barna­veiki og Aft­ur­göngu. Svo fer að koma tími á almenni­legt útspil frá Geð­brigði,“ segir Birkir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu